allra fyrsta sýningin

Um páskana 1982 hélt Aðalsteinn Svanur sýna fyrstu myndlistarsýningu - það var u.þ.b. hálfu ári eftir að hann ákvað að gerast listmálari og fór út í bókabúðina Huld á Akureyri og keypti liti og pensla...

Sýningin var haldin í Árskógi á Árskógsströnd, heimasveit listamannsins og var vel sótt. Þess er vert að geta ekki hefur listamaðurinn í annan tíma selt meira af verkum sínum en á þessari sýningu.

Á sýningunni var fjöldi verka, olíumálverk, pastelmyndir, kola-, blýants- og pennateikningar og ægði öllu saman. Augljóst að listamaðurinn var að þreifa fyrir sér og kunni lítið til verka.

Hér að neðan eru
myndir af nokkrum þessara verka og áhrif frá súrrealismanum næsta augljós. Þær eru sýndar hér vegna þess að þær marka upphafið af ferlinum, ekki vegna þess að þær séu á nokkun hátt markverð listaverk.






Til hægri má sjá Ómar Gylfason míga út af heimsenda



































FERILL