|
BÓKMENNTAKVÖLD | 6. OKTÓBER 2006
Að kvöldi föstudagsins 6. október var haldið bókmenntakvöld í Populus tremula undir yfirskriftinni Minning um áfangastað. Þar voru kynnt kvæði Aðalsteins Svans Sigfússonar í tali og tónum.
Höfundur las ásamt Sigurði Heiðari Jónssyni úr ljóðakverinu Kveikisteinum og einnig las Aðalsteinn úr óbirtu handriti.
Að þessu loknu steig höfundur á stokk og gerðist trúbadúr; söng og lék undir eigin lögum við eigin kvæði. Var þetta frumraun hans á þessu sviði einn og óstuddur af fullri alvöru.
Myndirnar tóku Sigurður Ormur Aðalsteinsson og Kristján Kristjánsson.
Þökk sé þeim.

Aðalsteinn Svanur og Sigurður Heiðar.

Meðal gesta voru Gunnar frá Stíl og Kristján Pétur, söngvari með meiru.

Spengilegir kvæðalesarar...

Kominn með gítarinn í hönd og mæk fyrir skoltinn.

Fleiri góðir gestir, Anna Lilja, Hallmundur, Kristín og Jón Kr. Malpokar voru leyfðir og notaðir.

Kominn í gírinn.

Nánustu aðstandendur þetta kvöldið.
TIL BAKA Á FORSÍÐU
|