|
Skógræktarland
fjölskyldunnar að Hálsi í Eyjafjarðarsveit
Árið 1995 tók ASvS á leigu landspildu til
skógræktar á Hálsi í Eyjafirði.
Þar hefur Skógræktarfélag
Eyfirðinga úthlutað um 50 félagsmönnum
landi til skógræktar gegn vægri leigu. Spildan
er 2 ha að stærð og er nú nánast fullpantað
í landið. Hér að neðan eru nokkrar myndir
frá skógræktinni á Hálsi.

1998, þremur
árum eftir að gróðursetning hófst,
sjást plönturnar ekki á mynd.
Hér sitja feðgar á steini og Sigurður Ormur er 2ja ára.

En árið 2001 hafa þær heldur betur tekið
við sér. Myndin er tekin á sama stað og efri
myndin. Sömu feðgar á sama steini en nú er lerkið farið að vaxa hraðar er strákurinn.

...og nú fara hlutirnir að gerast hratt! Munurinn er
augljós milli ára. Enn á sama steini nema nú er það Bjarki vinur Sigurðar sem er með honum og þeir orðnir 6 ára.

Svona leit sama spilda út í júlí 2004. Feðgar enn en kominn til sögunnar nýr drengur, Atli Sigfús rétt um eins árs. Fegnir að tylla sér á steininn góða.

Enn hafa liðið tvö ár. í ágúst 2006 er steinninn horfinn í skóginn og rétt grillir í Niðurlot.

Félagarnir Þórður, Bjarki og Sigurður
Ormur að störfum á Hálsi 2002.

Atli Sigfús á þriðja ári í júní 2006, enn að glíma við sama steininn.

2002 ber skóginn við himin.

Í júní 2002 var dregið lítið
hjólhýsi á spilduna og komið þar
fyrir til frambúðar. Húsið hefur fengið
nafnið Niðurlot.

Og 2004 var að verða þokkalega staðarlegt fyrir
nægjusama sveitamenn...

Sumarið 2004 er veruleg mynd að komast á skóginn.
Þessi glæsilega kónguló býr að
Niðurlotum.
TIL BAKA Á FORSÍÐU
|