h a u s a r

Dagana 11. - 26. júlí 1998 var haldin samsýningin Hausar í Deiglunni á Akureyri
og var hluti Listasumars á Akureyri. Á sýningunni voru aðeins portrettmyndir.




Hugmyndasmiður og sýningarstjóri var Aðalsteinn Svanur Sigfússon.
Fór hann þá leið að bjóða til sýningarinnar hópi myndlistarmanna sem búsettir voru á Akureyri og hver þeirra bauð með sér öðrum listamanni sem búsettur var annars staðar. Úr þessu varð skemmtilega samsettur hópur þar sem tilviljun réð samsetningu að hluta til. Sýningin tókst í alla staði vel og var góður rómur að henni gerður. Aðsókn var feikimikil, ekki síst á opnun eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
Sýnendur voru þessir:

Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Akureyri
Alexandra Cool, Belgíu
Ari Alexander Ergis magnússon, Reykjavík
Arna Valsdóttir, Dalvík
Ásta Ólafsdóttir, Reykjavík
Colin Kirkpatrick, Orkneyjum
Dröfn Friðfinnsdóttir, Akureyri
Erlingur Valgarðsson, Akureyri
Guðríður Valva Gísladóttir, Svarfaðardal
Guðrún Þórisdóttir, Ólafsfirði
Gunnar Kr. Jónasson, Akureyri
Hallgrímur Ingólfsson, Akureyri
Haraldur Ingi Haraldsson, Akureyri
Helga Björg Jónasdóttir, Akureyri
Helgi Þórsson, Kristnesi
Ingileif Thorlacius, Reykjavík
Jónas Viðar Sveinsson, Akureyri
Jonna, Akureyri
Lárus Hinriksson List, Akureyri
Martin J. Meier, Sviss
Pálína Guðmundsdóttir, Akureyri
Páll Viðar Kristinsson, Kópavogi
Ragna Hermannsdóttir, Reykjavík
Raqnhildur Stefánsdóttir, Reykjavík
Suchan Kinoshita, Hollandi
Þóra Þórisdóttir, Reykjavík
Þórarinn Blöndal, Akureyri






Verk Aðalsteins Svans á Hausum, en þar sýndi hann ljósmyndaverk í fyrsta sinn. Á myndinni er einnig verk Ragnhildar Stefánsdóttur.










Fjölmenni var á opnun Hausa eins og sést á þessari mynd og þeim næstu. Hér má greina Harald Inga fremst og grípur fyrir vit sér. Þórarinn Hjartarson frá Tjörn er glaðbeittur, sömuleiðis Erlingur Jón Valgarðsson sem er á tali við Snorra Ásmundsson...










Fremstur fyrir miðri mynd er Gunnar Kr. Jónasson, myndlistarmaður.










Fremstur á leið niður tröppurnar er Jónas Viðar, á eftir honum Haukur Sigfússon, bróðir Aðalsteins, og hans kona Svanhildur Sigfúsdóttir. Vangasvipurinn á Sigurði Ólafssyni lengst til vinstri.






FERILL