|
HEIMKYNNI
Föstudaginn
10. desember 2004 var opnuð í Populus tremula á
Akureyri sýningin Heimkynni. Á sýningunni voru
25 ljósmyndir, bleksprautuprentaðar á pvc dúk.
Samtímis var opnuð sýningin Öxlar og illþýði
eftir Sigurð Heiðar Jónsson, einnig í Populus
tremula.
Á opnunarhátíðinni lék hin ástsæla
hljómsveit Sigurðar Jónssonar lög eftir Tom
Waits, Nick Cave og söngvara sveitarinnar, Kristján
Pétur Sigurðsson. Fram komu einnig sem gestasöngvarar
sýningarhaldararnir Sigurður Jónsson og Aðalsteinn
Svanur Sigfússon.
Hér að neðan eru nokkrar myndir af sýningunum.



Öxlar og illþýði - sýning Sigurðar
Heiðars Jónssonar
Hluti hljómsveitar Sigurðar Jónssonar

Aðalsteinn Svanur þreytti frumraun sína sem trúbador
og söng eigin kvæði og lög með meiru.
AFTUR Á FORSÍÐU
|