|
TÍMINN SNÝST EINS OG JÖRÐIN
sýning í tilefni af aldarfjóðungs starfi að myndlist
Um páskana 2007 sýndi Aðalsteinn Svanur ljósmyndir í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri í boði Gilfélagsins.
Sýningin var haldin í tilefni þess að um þessa páska voru liðin 25 ár frá fyrstu myndlistarsýningu Aðalsteins sem var haldin í Árskógi 1982 og má finna dæmi af þeirri sýningu á þessum vef.
Í Deiglunni voru sýndar hringlaga ljósmyndir, prentaðar á límdúk og límdar beint á veggi salarins. Með góðum vilja má finna skírskotun til tímans í öllum myndunum.




TIL BAKA Á FORSÍÐU
|