|
Við lok 19. aldar var blómatími Seyðisfjarðar vegna umsvifa norskra síldveiðimanna. Mörg norsk timburhús voru byggð og eitt þeirra var Hótel Aldan, sem var byggð sem hótel og talin eitt hið besta á öllu landinu.
Click the image to view a 360° degree panorama picture; QuickTime is required.
Sumarið 2005 tvöfölduðum við fjölda herbergja í okkar þjónustu og tókum við og endurgerðum Hótel Snæfell sem er byggt árið 1908. Í gegnum árin hefur það þjónað bæjarbúum sem pósthús, hótel og veitingastaður. Það hýsti einnig fyrsta glymskratta sem kom til Austurlands. Það er nú endurgert og hefur að geyma 9 herbergi.
Móttakan okkar, veitingastaðurinn og kaffihúsið eru til húsa í einu af elstu verslunarhúsnæðum landsins, þekkt undir nöfnunum; Framtíðin og Verslun Jóns G. Húsnæðið hefur enn að geyma upprunalegar innréttingar frá 1920.
Nú, um öld síðar, hafa húsin verið gerð upp og öðlast fyrri glæsileik á ný.
|