Í sumar verður veitingastaðurinn okkar opin daglega frá miðjum maí en annars er alltaf hægt að panta stórar sem smáar veislur fyrir öll tækifæri.

Matseðillinn er byggður upp úr því besta sem Ísland hefur að bjóða. Veitingastaðurinn er lítill og þjónustan er í senn persónuleg og fagmannleg.

Á kvöldin bjóðum við upp á litla en breytilega matseðla. Ef bókað er fyrirfram getum við einnig boðið upp á hópamatseðla og nánast allar séróskir frá gestum. Við höfum t.d. haldið humar og hreindýraveislur ef þær eru sérpantaðar.

Í hádeginu bjóðum við meðal annars upp á "feng dagsins" og aðra minni rétti eins og gratineraðan geitaost á sumarsalti með sýrópsgljáðum valhnetum og truffluolíu eða baguette með parmaskinku, salati og heimagerðu pestói og mayo.

Yfir daginn og til kl: 17:00 er kaffihúsið opið með kökum, góðu ítölsku kaffi og minni réttum. Því miður er oft ekki unnt að halda kaffisölu opinni lengur en til 17:00 þar sem það þarf að dekka upp salinn með hvítu damaski og kristal fyrir kvöldið.

Við leggjum metnað í að nota hráefni úr næsta nágrenni

Fiskur. Með hjálp frá veiði og sjómönnum fjórðungsins fáum við sérvallin “feng dagsins” veiddum af djúpsjávarbátum eða úr hreinum ferskvatnsám fjarðanna og á Héraði. Fisktegundir sem oft eru á matseðlinum okkar eru: Skötuselur, Humar, Silungur, Steinbítur, Lax, Karfi, Þorskur og Sólkoli, svo eitthvað sé nefnt.

Kjöt. Íslenskt lambakjöt, hreindýr, naut eða hvalkjöt. Einnig bjóðum við stundum upp á svartfugl, endur eða aðra villta fugla frá Austurlandi.

Grænmeti. Þegar það er mögulegt notum við lífrænt ræktað grænmeti frá Vallanesi á Héraði. Á haustin höfum við notað villta sveppi úr skóginum, ber og íslenskar kryddjurtir. En á vorin og fram á sumar höfum við keypt mikið af grænmeti frá dreifingaraðilum sem flytja inn frá meginlandi Evrópu eða kaupa nýja íslenska uppskeru.

Pantanir í síma 472-1277