Herbergi

Herbergin okkar eru í tveimur sögulegum byggingum umhverfis lónið í miðjum Seyðisfjarðarkaupstað. Þessum tveimur byggingum skiptum við upp í tvö hótel; Hótel Ölduna og Hótel Snæfell, sem hvor um sig hafa að geyma 9 herbergi hvert með sinn sjarma og stíl.

Hótel Aldan

Hótel Aldan hefur í nær heila öld hýst bankann í Seyðisfirði. Upphaflega hafði það þjónað sem eitt af bestu hótelum landsins. Mikil áhersla hefur verið lögð á að viðhalda sögulegum anda hússins, en um leið tekið tillit til nútíma þæginda.

Árið 1898 voru 19 herbergi í húsinu, þar af eitt dans og hnattborðssalur. Síðan húsið hefur gengið í endurnýjun lífdaga og er orðið glæsilegra en nokkru sinni fyrr, þá bjóðum við þar upp á 7 tveggja manna og 2 þriggja manna herbergi.

Í flestum herbergjunum er pláss fyrir auka rúm og þar að auki er hægt að koma fyrir sex manna fjölskyldu í einu af herbergjunum.

Vegna sveigjanlegrar hönnunar er hægt að setja saman sum herbergin þannig að þau myndi "svítur" eða fjölskylduherbergi fyrir 4 til 6 persónur, án þess að bæta við auka rúmum.

Hótel Snæfell

Hótel Snæfell er þriggja hæða bárujárnsklætt timburhús byggt 1908. Það stendur við lónið þar sem er að finna fjölskrúðugt dýralíf fugla, laxfiska og oft á tíðum má sjá sel forvitnast um hagi Seyðfirðinga. Húsið var upprunalega pósthús bæjarins og árið 1943 var því breytt í hótel. Í gegnum árin hefur það gengt mörgum hlutverkum, m.a. hefur verið þar skóvinnuverkstæði, leigubílastöð og stór veitingastaður. Húsið hefur einnig verið heimili nokkurra fjölskyldna áður en það varð hótel. Meðal íbúa þar var Ingi T. Lárusson okkar ástsæla tónskáld.