Aldamótabærinn
Óvíða á Íslandi er að finna jafn heillega byggð eldri timburhúsa og á Seyðisfirði. Hér fóru saman mestu velmegtarár kaupstaðarins og blómaskeið timburhúsabygginga á Íslandi.
Á öndverðri 19. öldinni var að þróast í Noregi ný tækni í byggingariðnaði. Sögunarmyllurnar tóku að framleiða tilbúin hús til útflutnings um allan heim. Seyðfirskir athafnamenn með mikil tengsl við Noreg gripu tækifærið og reistu hér á árunum 1895-1922 glæsileg og afar vönduð tilsniðin hús bæði bæði einbýlishús, verslanir og opinberar byggingar. Mörg þessara húsa standa enn og gefa bænum svipmót aldamótanna.
|