Aligæsir
Gæsaræktin

Gæsirnar sem ég byrjaði gæsabúskapinn með ´74.
Gæsabúskapurinn sem ég byrjaði á ´74 var verulega skemmtilegur og ólíkur annarri alifuglarækt, meðal annars vegna þess að gæsir eru í eðli sínu einkvænisfuglar og hafa sama maka ævilangt úti í náttúrunni, en taka sér annan maka ef annað hvort deyr. Aligæsirnar voru hafðar í hópum, 4 - 5 gæsir og einn gassi, en þannig fékkst frjósemin best.
Fyrstu gæsirnar sem ég keypti voru frá Magnúsi Hjaltested á Vatnsenda við Reykjavík, og var mest allur gæsastofninn út af þeim. Eins og sjá má á myndinni að ofan voru þetta mjög mismunandi einstaklingar, en reynt var að rækta sem mest af hvítum þar sem þær reyndust frjósamari og gáfu fallegri skrokka.
Þessi gæsastofn verpti 30 - 45 eggjum frá mars til júní, þannig að útungun stóð yfir í um það bil þrjá mánuði.

Gæsapar með unga.
Ýmis vandamál komu upp sem þurfti að leysa því þó ég hefði erlendar bækur og bæklinga virtust þær ekki passa við okkar aðstæður og varð maður því að prófa sig áfram þar til besta lausnin var fundin. Nánast engar upplýsingar var að fá hér innanlands þar sem engin sem ég vissi um hafði verið með gæsarækt í svo stórum stíl, þ.e. ungað öllum eggjum út í vélum og alið ungana upp við tilbúna hitagjafa.
Ungarnir eru ákaflega viðkvæmir fyrstu vikurnar og þola ekki hrakviðri, en verða samt að fá að vera úti þegar veður leyfir og bíta gras en það er þeim lífsnauðsynlegt og er reyndar þeirra eðlilega fæða.
Gæsirnar voru fitaðar á haustin fyrir slátrun og var þeim þá gefið korn eins og þær vildu éta í þrjár til fjórar vikur.

Gæsahópurinn sem verið er að fita, bíður eftir kvöldgjöfinni. Sonur minn hefur slegist í hópinn.

Ungarnir sem eru að venjast útiveru, líta á stúlkuna sem móðir sína.
Þegar ég hætti búskap seldi ég allar gæsirnar mínar og þar á meðal nokkrar af gamla íslenska stofninum sem ég fékk frá Víkurgerði á Fáskrúðsfirði. Nokkrum árum síðar komst ég að því að sá stofn var nánast horfinn, einungis voru eftir hjá bóndanum sem keypti af mér gæsirnar nokkrir blendingar. Afkomendur þessara gæsa eru nú hjá mér, en þær eru mikið minni en innfluttu gæsirnar, lifandi þungi er 4 - 5 kg og þær verpa nálægt 12 eggjum hver. Atferli þeirra er nokkuð frábrugðið stóru innfluttu gæsunum, þær geta til dæmis verið ákaflega hávaðasamar, liggja vel á eggjunum, eru góðar mæður og koma oftast með unga. Ég vil hvetja fólk til sveita til þess að fá sér gæsapar, þær eru verulega skemmtilegir fuglar og sjá að miklu leiti um sig sjálfar.

Gæsahópurinn.
Til baka