Hænur

Gamla íslenska hænsnakynið.

Gamla Toppa (að mestu svört) og haninn frá Vopnafirði, ásamt einni dóttur.

Þegar ég var barn voru íslenskar hænur til á flestum sveitabæjum, litlar, harðgerðar og mjög litskrúðugar eins og hin íslensku búfjárkynin. Þessar hænur fengu að vera úti mikinn hluta ársins og voru fundvísar á ýmislegt ætilegt á rölti sínu um hlaðvarpann og fengu líka alla matarúrganga frá heimilinu sem hundarnir ekki vildu. Þær verptu vel yfir sumarið og unguðu út ef þær fengu það.

Upp úr 1970 þegar ég fór að huga að restunum af þessu kyni var það eina sem ég vissi um örugglega hreinræktað, ein hæna, með nokkurri vissu orðin meira en 15 ára gömul, sem Svandís Jónsdóttir á Selsstöðum í Seyðisfirði átti, og á hún miklar þakkir skildar fyrir að ala hana svo lengi en þessa hænu ásamt fleirum fékk hún hjá tengdaforeldrum sínum sem fluttu til Seyðisfjarðar frá Bárðarstöðum í Loðmundarfirði 1949 og hefur þessi hænsnastofn vafalítið verið þaðan kominn. Veturinn eftir útvegaði móðir mín Ólína Jónsdóttir, íslenskan hana frá Þorbrandsstöðum í Vopnafirði. Vorið eftir verpti Toppa 10 eggjum sem ungað var út í útungunarvél, og klöktust 6 ungar úr þeim, 4 hænur og 2 hanar.

Nokkrum árum seinna, þegar Dr. Stefán Aðalsteinsson hjá RALA hóf að safna restunum af íslenska hænsnakyninu, átti ég því all góðan stofn af þessum hænum, og gat ég sent þeim 104 egg til útungunar og 48 nýklakta unga sem aldir voru upp af RALA í Þormóðsdal í Mosfellssveit, en þetta voru um 28 % af þeim eggjum sem söfnuðust og 60 % af lifandi fuglum *. Eftir því sem ég best veit gekk uppeldið vel og var stofninn í umsjá RALA til ársins 1985 er honum var komið í fóstur á Hvanneyri. Nokkru seinna var hætt að vista stofninn á Hvanneyri en bændur á Steinum II í Stafholtstungum og Syðstu-Fossum í Andakílshreppi fengnir til að sjá um stofninn. Það er af Toppu gömlu að segja að hún verpti ekki framar en lifði þó nokkur ár til viðbótar, í góðu yfirlæti hjá fóstra sínum.

Íslensk hæna og íslenskur hani.

Ég ræktaði íslensku hænsnin í ein 18 ár og lét unga frá mér á marga staði hér austanlands en einnig vestur á Mýrar og víðar. Einnig höfðu fuglar frá söfnun RALA dreifst um landið. Þegar ég hætti búskap 1988 taldi ég stofninum vera vel borgið og hafði ekki neinar áhyggjur af honum næstu árin.

Af og til komu fréttir af íslensku "landnámshænsnunum" í fjölmiðlum sem urðu þess valdandi að ég (og væntanlega margir fleiri) fór að hafa nokkrar áhyggjur af stofninum þar sem manni virðist að sumir sem eru að rækta íslenskar hænur álíti allar litaðar hænur vera af íslenskum stofni og þar með er þeim dembt inn í ræktunina.

Það er svo ekki fyrr en 2002 að ég safnaði saman eggjum til útungunar frá nokkrum af þeim sem töldu sig vera með íslenskar hænur hér fyrir austan. Fuglarnir sem komu úr þessum eggjum ollu mér miklum vonbrigðum því þeir voru mjög misjafnir bæði að stærð og útliti - greinilega blendingar sem ég losaði mig við fljótlega. Í framhaldinu fór ég nokkuð víða um hér á austur og norðausturlandi en fór einnig í Borgarfjörð og á nokkra staði á norðurlandi en allstaðar sýndist mér vera búið að blanda einhverjum kynblendingum í stofninn. Ekkert er öruggara til að eyðileggja hreinræktaðan stofn en að blanda í hann fuglum af öðrum stofnum. Það var einungis á tveim stöðum sem ég þóttist þekkja íslenska stofninn eins og ég hafði ræktað hann en það var á Naustum við Akureyri nokkrar hænur og í Kristnesi hjá þeim Helga og Beate en þau höfðu fengið fugla frá Hvanneyri rétt eftir að stofninn var fluttur þangað og engu blandað í hann síðan. Reyndar hafa þau beint litavalinu í ræktuninni að svörtum lit þannig að lang flestir fuglarnir eru svartir og mjög fallegir, en aðrir litir eru samt til staðar. Ég fékk nokkur egg hjá þeim hjónum til útungunar og er nú með ágætan stofn af fallegum íslendingum í kofanum hjá mér og er með ólíkindum hvað sumar hænurnar eru líkar formóður sinni sem upphaflegi stofninn hjá mér var kominn út af.

Íslensk hænsni.

Íslensku hænurnar eru litlar, 1,3 - 1,5 kg að þyngd en hanar 1,7 - 2,0 kg. Þær hafa allar gulhvítar eyrnaskífur. Flestar hafa frekar lítinn fiðurtopp á höfði. Þær eru mismunandi á lit en svart og brúnt algengasti liturinn. Þær eru mjög fúsar til að liggja á eggjum og er það mjög einkennandi eiginleiki. Eggin eru frekar keilulaga 50 - 60 gr. að þyngd og eru frá því að vera svo til hvít til þess að vera ljós brún. Ég hef að gamni mínu mælt þurrefni í eggjum úr íslenska stofninum í samanburði við egg frá eggjaframleiðendum og kom í ljós að mun meira þurrefni virðist vera í eggjum úr íslensku hænunum, eða sem nemur 1,5 - 2,0%, en þörf er á því að rannsaka þetta betur.

Eggin eru frekar keilulaga 50 - 60 gr.

Íslenskar hænur eru hvorki með fiðraða fætur eða vangaskegg en ég vil benda á að dverghænur sem lengi hafa verið til víða um land og blandast íslenskum hænum mjög auðveldlega eru mjög gjarnan með þannig fiðurlag og sömuleiðis með mjög fjölbreyttar kambgerðir. Ennfremur komu af og til fram litaðir einstaklingar frá þeim sem seldu holdakjúklinga til áframeldis hætt er við því að þessir fuglar ásamt dverghænum hafi náð að blandast inn í íslenska stofninn.

Ekki má heldur gleyma að á Íslandi voru til innfluttir litaðir stofnar s.s. Brúnir ítalir og Barred Plymuth Rock - holdakyn frá USA sem var nokkuð útbreitt hér fyrir austan á árunum milli 1950 og 1960.

*) KH & SA 1976.

Hæna með andarunga, hún er kynblendingur af Plymuth Rock og íslenskum hænum. Eitthvað kannast ég við drenginn.

Nýklaktir hænuungar af íslenskum stofni (eldri ræktun).

Nýklaktir hænuungar af íslenskum stofni (núverandi ræktun).


Umhirða íslensku hænsnanna

Til baka