Vinnustaðurinn

Verksmiðja Síldarvinnslunnar h.f

Seyðisfirði

Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar hf á Seyðisfirði.

Verksmiðjan er ein af fiskimjölsverksmiðjunum á landinu og framleiðum við fiskimjöl úr loðnu, síld og kolmunna, sem aðallega fer til útflutnings. Ég hef unnið hjá verksmiðjunni í 20 ár, lengst af sem efnarannsóknamaður. Starfið felst meðal annars með því að fylgjast með gæðum hráefnisins sem unnið er úr og gæðum afurða verksmiðjunnar (mjöl og lýsi).

Rannsóknarstofan.
Rannsóknarstofan er ágætlega tækjum búin og notum við meðal annars NIR (Near infrared) rannsóknatækni. Mikil vinna var við að koma upp viðeigandi gagnaskrám fyrir tölvuna sem vinnur með NIR tækinu, frábært var að fá að vinna að því að koma þessari tækni í gagnið hjá okkur hjá SVN á Seyðisfirði.


Til baka