2. febrúar
Vefsíðan hefur verið færð!
Vefurinn minn hefur verið uppfærður og fluttur á nýjan vefþjón. Nýi vefurinn er á andrisnaer.is. Enski vefurinn er á andrimagnason.com.
Þessi vefur verður uppi um sinn á meðan ég færi allt efni af honum og í nýja kerfið.
19. maí 2008
Það sem er gott fyrir bæjarins bestu er gott fyrir miðbæ Reykjavíkur
Blaðið er með umfjöllun um miðborgina og bað um að fá að fjalla um hugmyndirnar sem unnu hugmyndasamkeppni Landsbanka Íslands á sínum tíma. Hér eru þær, pdf skjal með myndum sem má hala niður. Hér er ljósmynd af gardínum sem snúa út að Lækjartorgi. Stjórnarráðið speglast í glugganum. Það skiptir engu hversu glæsilegar hugmyndir menn fá um miðbæinn og hversu mörg málþing verða haldin. Þótt Bónó og Dalai Lama kæmu með tillögur um eflingu Lækjartorgs þá er valdið í höndum þeirra sem reka Héraðsdóm Reykjavíkur. Með því að hafa dauða starfsemi á jarðhæð og draga ljótar gardínur fyrir glugga andspænis Stjórnarráðinu þá hafa menn fyrir sitt leyti gefið Lækjartorgi og mannlíf í miðbænum langt nef. Þeim ætti að refsa með því að flytja starfsemina í Smáratorg. Í þessu skjali má finna 20 blaðsíður af hugmyndum.
15: apríl 2007
Blái hnötturinn í Japan
Blái hnötturinn var að koma út í Japan, í þýðingu Akiko Haji. Bókin kemur út í sama broti og á Íslandi, með teikningum Áslaugar Jónsdóttur. Allir sem eiga vini í Japan eru hvattir til að kaupa bókina hér.
27. september 2006
Slökkvum ljósin. Horfum á stjörnurnar.
Slökkvum ljósin á morgun og hlustum á beina lýsingu á himninum á Rás 2.
29.ágúst 2006
Blái hnötturinn á svið í Finnlandi
Blái hnötturinn verður frumsýndur í Finnlandi þann 11. október. Áhugasamir geta pantað miða hér.
Leikstjóri er Mika Myllyaho en hann þykir einn efnilegasti ungi leikstjóri Finnlands um þessar mundir.
17. ágúst 2006
Bónusljóð á hollensku
Nokkur Bónusljóð hafa verið þýdd á hollensku og birtast hér á vefritinum komkommer&kwel (leitið undir poezie).
19. mars 2006
Útgáfuhátíð!
Í tilefni af útkomu bókarinnar Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð heldur höfundurinn, Andri Snær Magnason, fyrirlestur í Borgarleikhúsinu mánudaginn 20. mars kl. 20:00. KK leikur og syngur.
Andri Snær fer á kostum þar sem hann ræðst beint að kjarna stærstu mála samtímans og hrærir upp í heimsmyndinni með leiftrandi hugmyndaflugi og hárfínum húmor. Svona bók hefur aldrei verið skrifuð á íslensku.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
3. febrúar 2006
Ný bók komin í umbrot
Nýja bókin er loksins að líta dagsins ljós. Hún er komin í umbrot. Meira um það síðar.
3. febrúar 2006
Fyrstu verðlaun fyrir tillögu að nýjum höfuðstöðvum Íslandsbanka
Arkítektúr.is, Einrúm Arkítektar og Andri Snær Magnason lögðu saman krafta sína og gerðu tillögu að nýjum og stækkuðum höfuðstöðvum Íslandsbanka við Kirkjusand. Hlutverk skáldsins var að leita að heimspeki hússins, sögulegum tengingum og tengslum við umhverfið. Tillagan fékk fyrstu verðlaun en hvort og hvenær bankinn verður byggður kemur í ljós.
12. apríl 2005
Úlfhamssaga til Færeyja
Úlfhamssaga verður sýnd tvívegis í Færeyjum í sumar, þann 17. og 18. júní. Allir þeir sem misstu af sýningunni í Hafnarfirði ættu að drífa sig til Færeyja í sumar og sjá Eivöru Páls á heimavelli.
12. apríl 2005
Blái hnötturinn til Litháens
Blái hnötturinn verður gefinn út í Litháen, um það var samið í dag.
25. mars 2005
Sýningum lokið á Bláa hnettinum í Toronto
Sýningum er lokið á Bláa hnettinum í Toronto í Kanada. Alls sáu 16.615 manns leikritið frá 29. janúar til 20. mars 2005.
31. janúar 2005
Engin faðmlög eða selaát takk
Samkvæmt fulltrúa kanadísks útgefanda, eru Kanadabúar viðkvæmir fyrir selaáti og börnum sem faðmast og kyssast. Andri Snær var beðinn að breyta þessu í Sögunni af bláa hnettinum til að geta gefið hana út, en hann afþakkaði.
1. janúar 2005
Blái hnötturinn í Toronto
Blái hnötturinn verður settur á svið í einu stærsta barnaleikhúsi Norður Ameríku, Lorraine Kimsa Theatre for Young People. Frumsýning þann 3. Febrúar og sýningar standa yfir fram í lok mars.
Desember 2004
Lovestar í McSweeney's
Brot úr LoveStar er birt í nýjasta hefti ameríska bókmenntatímaritsins McSweeney's.
Desember 2004
Lovestar Icelandic Review
Brot úr LoveStar birt í nýjasta hefti Iceland Review.
Október 2004
Strandhögg í Litháen
Verk birtast í safnriti í Litháen.
Vefhönnun: Hringbrot. Allt efni á þessum vef er ©Andri Snær Magnason.