Flugmaður
nokkur ljóð af diskinum:
- Flugvélabensín
- Skilaboð til vegfarenda
- Varaáætlun
- Snati og Óli
- Nýjar reglur fyrir stríð
Flugvélabensín
Flugvélabensín, það er besta lyktin, að ganga út úr útlenskri flugstöð og finna hvernig lyktin af flugvélabensíni blandast díselreyknum frá langferðabílunum í hitamollunni um leið og maður sér eftir því að hafa flogið í síðbuxum og maður er dálítið hræddur við að verða rændur en veit samt að næstu tvær vikur verða skemmtilegar. Flugvélabensín, það er ævintýralyktin og þegar maður maður finnur sömu lykt við Reykjavíkurflugvöll þá fær maður fiðring í magann og sér eftir því að hafa farið í buxur og heldur að næstu tvær vikur verði alveg frábærar.
Skilaboð til vegfarenda
Ég veit ekki af hverju ég stöðvaði bílinn og tók upp köttinn sem lá í blóðrauðum polli á malbikinu því ég keyrði ekki á hann en þar sem ég stóð með köttinn í fanginu á miðri götunni og hugsaði hvað ég ætti að gera við hann því blóðið myndi klínast í áklæðið þá fann ég hvað hann var enn undarlega mjúkur og volgur en þegar ég sá hörkuna í augum fólksins sem ók framhjá vissi ég hver var sekur og skildi að sá einn er saklaus sem heldur fullri ferð áfram.
Varaáætlun
Ef heimurinn hryndi af einhverjum ástæðum þá ætlaði ég alltaf að flýja norður á Melrakkasléttu og lifa af landinu kringum eyðibýlið eins og forfeður mínir höfðu gert í þúsund ár en þá rann upp fyrir mér að í verkfærakassanum var ekkert nema 7 sexkantar sem fylgdu með IKEA húsgögnum og ef ég kæmist yfirleitt norður þá stæði ég með þessa sexkanta innan um svamlandi selinn og gaggandi mávinn og vaxandi grasið og ég myndi öskra á selinn og mávinn og grasið og læsa tönnunum í rekaviðinn og deyja hægt.
Snati og Óli
Snati minn!
snjalli vinur
þú ert víðsjárverður
svona laflaus á rásinni!
svona kallinn
leyfðu mér að þrengja sjóndeildarhringinn
aðeins betur um hálsinn
(jæja þá í þetta sinn)
en farðu ekki langt yfir skammt
(eða var það skemmt?)
því eftir næstu skilaboð
kemur
HUNDAKEX!
já hann borgar sig hlýðniskólinn
og ég lofa að verða fyrstur
til að selja þér jólin
Nýjar reglur fyrir stríð
1. Óvinurinn fær 700 milljónir fyrir að skrúfa sundur
olíuhreinsunarstöð, brú eða flugvöll
lofar að kubba engu saman fyrr en að stríði loknu
2. óvinurinn fær 70 milljónir ef hann skrúfar sundur farartæki
3. sá hermaður sem þykist dauður fær 7 milljónir
ef óbreyttur borgari fær óvart 7 milljónir verður bara að hafa það
4. sá vinnur sem
a) lætur hinn aðilann skrúfa sundur flestar verksmiðjur og farartæki
b) hefur látið svo marga karlkyns óvini fá 7 milljónir að aðeins aldraðir og unglingar eru eftir
þá flýgur sigurvegarinn yfir höfuðborgina á sprengjuþotu
dreifir
karamellum
túlipönum
og 70 milljörðum í seðlum
loks segir þulurinn á skjánum
við mælum með myndunum
sem hér koma á eftir