Flugmaður
/ Andri Snær & múm 1999
/ Hljómorðadiskur
Flugmaður er hljómorðadiskur þar sem Andri Snær Magnason les eigin ljóð en hljómsveitin múm notast við gítar, harmoniku, fartölvu, melódiku, gamalt Casio hljómborð og Game Boy tölvuspil til að skapa ljóðræna tónlist og fallegar stemmningar.
Náttúruóperan
/ múm 1999
/ Leikhússtónlist
Náttúróperan kom út árið 1999 í takmörkuðu upplagi. Diskurinn inniheldur tónlistina sem múm samdi fyrir Náttúruóperuna, leikrit sem ég skrifaði fyrir leikfélag MH árið 1999. múm skipa þau Örvar Þóreyjarson Smárason, Kristín Valtýsdóttir, Gyða Valtýsdóttir og Gunnar Tynes.
Raddir / Voices
Geisladiskur með upptökum íslenskra þjóðlögum sem safnað var í kringum landið og varðveitt í segulbandasafni Árnastofnunar en Andri Snær Magnason tók efnið saman og ritstýrði ásamt Rósu Þorsteinsdóttur. Raddir innhalda, rímur, sálma, Ómennskukvæði, Ókindarkvæði, Grýlukvæði, sagnadansa, drykkjuvísur, þulur, barnagælur og önnur íslensk þjóðlög sem safnað var af vörum alþýðunnar 1903-1973.
Blái hnötturinn - leikhússtónlist
múm samdi tónlistina við Bláa hnöttinn þegar hann var settur upp í Þjóðleikhúsinu árið 2001. Tónlistin var gefin út og allur ágóði hefur runnið til Rauða kross Íslands þaðan sem hann hefur farið til hjálpar stríðshrjáðum börnum í Palestínu. Einnig var lagt fé til Vina Indlands, www.vinirindlands.is. Upplýsingar um verkefnið í Palestínu má finna á redcross.is.
Diskurinn fæst á smekkleysa.net.
Úlfhams rímur
Í tengslum við Úlfhams sögu voru Úlfhams rímur gefnar út. Steindór Andersen kvað þær í heild sinni inn á tvöfaldan geisladisk. Þarna er hægt að kynna sér frumefnið og frumtextann sem var lagður til grundvallar þegar leikritið Úlfhams saga var skrifað. 12. tónar gefa út diskinn og Aðalheiður Guðmundsdóttir og Gréta María Bergsdóttir sáu um útgáfuna. Þetta er mjög merkileg útgáfa vegna þess að þarna er heil kveðin ríma í heild sinni aðgengileg almenningi. Rímur voru vinsælasta listgrein á Íslandi í 600 ár en dóu út að miklu leyti um miðja 20. öld. Kveðskapurinn í ÚIfhams rímum er ljós og aðgengilegur og ef menn aðeins átta sig á nokkrum einföldum heitum og kenningum opnast fyrir mönnum mikið ævintýri. Það er vel þess virði að leggja á sig örfáar klukkustundir og leyfa heilu listformi að opnast fyrir manni. Eivör Pálsdóttir samdi tónlistina við verkið en hana er ekki að finna á þessum diski.