Íslenska

English

Sagan af bláa hnettinum

Á bláum hnetti lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Þetta eru eiginlega villibörn því enginn skipar þeim fyrir verkum. Börnin sofna þar sem þau verða þreytt og borða þegar þau eru svöng en leika sér þar sem þeim dettur í hug. Eitt kvöldið þegar Brimir og Hulda eru stödd í Svörtufjöru birtist stjarna á himni sem stefnir beint á þau! Stjarnan lendir í fjörunni með mikilli sprengingu en í reyknum mótar fyrir skuggalegri veru sem starir út í myrkrið. Þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um myrka skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá sem aldrei fyrr á vináttu og ráðsnilld barnanna á bláa hnettinum.

Sagan af Bláa hnettinum er komin út á 12 tungumálum. Leikritið var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 við mikla vinsældir og verður sett upp í Toronto vorið 2005.

Sagan af bláa hnettinum hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999, Janusz Korczak honorary award 2000 og Vestnorrænu Barnabókaverðlaunin 2001.

Hún er fáanleg á þessum tungumálum: Íslenska, danska, sænska, eistneska, júgóslavneska, taílenska, grænlenska, franska, spænska, ítalska, færeyska og kóreska.

Fæst í Netverslun Eddu-Miðlunar.

Historien om den blå planet

Danmörk

/ Útgefandi: Gads Forlag, Kaupmannahöfn 2000.
/ Þýðing: Annette Lassen.
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: 95.

ISBN: 87-12-03703-6

Berättelsen om den blå planeten

Svíþjóð

/ Útgefandi: Kabusa Böcker, Ystad 2003.
/ Þýðing: John Swedenmark.
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: 95.

ISBN: 91 89680 05 7

Sinise Planeedi Lugu

Eistland

/ Útgefandi: Eesti Raamat, Eistland 2001.
/ Þýðing: Lemma Saukas.
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: 95.

ISBN: 9985-65-294-0

Søgan um bláa knøttin

Færeyjar

/ Útgefandi: Bókadeild Føroya Lærarafelags, Þórshöfn 2001.
/ Þýðing: Laurina Niclasen
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: 95.

ISBN: 99918-1-230-X

Nunarsuarmit tungujortumit oqaluttuaq

Grænland

/ Útgefandi: Atuakkiorfik, Nuuk 2002.
/ Þýðing: Benedikte Thorsteinsson.
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: 95.

ISBN: 87-558-1738-6

Les enfants de la planète bleu

Frakkland

/ Útgefandi: Gallimard, Paris 2003.
/ Þýðing: Francois Emion.
/ Teikningar: Pef.
/ Bls: 127.

ISBN 2-07-054745-0

La historia del planeta azul

Spánn

/ Útgefandi: Ediciones Omega, Barcelona 2001.
/ Þýðing: Kristinn R. Ólafsson, Sól Álvarez.
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: 95.

ISBN: 84-282-1293-7

Il pianeta blu

Ítalía

/ Útgefandi: Fabbri editori, Milano 2002.
/ Þýðing: Maria Cristina Lombardi.
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: 173.

ISBN: 88-451-8050-6

Prica o plavoj planeti

Serbáa

/ Útgefandi: Draganic, Belgrad, 2002.
/ Þýðing: (Nafn vantar).
Tihomir, teiknari / Teikningar: Tihomir (til hægri á mynd).
/ Bls: 116.

ISBN: 86-441-0401-2

(Nafn vantar)

Thailand

/ Útgefandi: Image Publishing, Bangkok 2003.
/ Þýðing: (Nafn vantar).
/ Teikningar: (Nafn vantar).
/ Bls: 146.

ISBN: (Vantar)

(Nafn vantar)

Kórea

Tarina sinisestä planeetasta

Finnland

/ Útgefandi: (Nafn vantar)
/ Þýðing: (Nafn vantar).
/ Teikningar: Áslaug Jónsdóttir.
/ Bls: ?.

ISBN: (Vantar)

Vefhönnun: Hringbrot. Allt efni á þessum vef er ©Andri Snær Magnason.