Íslenska

English

LoveStar

Alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið - markaðssett dauðann, skomið skipulagi á ástina og reist stórfenglegasta skemmtigarð sögunnar í Öxnadal þar sem LoveStar blikkar á bak við ský. Indriði og Sigríður eru handfrjálsir einstaklingar í þessu hátæknivædda samfélagi. Þau telja sig hafa fundið ástina upp á eigin spýtur þar til hræðilegt bréf berst frá stórveldinu. Á sama tíma er LoveStar sjálfur um það bil að gera stærstu uppgötvun allra tíma og stemmningsdeildin hefur stórfenglegar áætlanir um hvernig megi fullkomna LoveStar veldið.

LoveStar var ein af metsölubókum ársins 2002. Hún hlaut frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda, var kjörin skáldsaga ársins af íslenskum bóksölum, hlaut menningarverðlaun DV í bókmenntum og tilnefningu til hinna íslensku bókmenntaverðlauna.

LoveStar kom út í kilju árið 2004. Hún hefur verið þýdd á ensku en er ekki enn komin út.

Fæst í Netverslun Eddu-Miðlunar.

Vefhönnun: Hringbrot. Allt efni á þessum vef er ©Andri Snær Magnason.