Bónusljóð 33% meira
/ Bónus 2003
Nú með meira efni! 33% meira frítt!
Bónusljóð lýsa guðdómlega gleðilegu ferðalagi um undraveröld Bónus stórmarkaðar. Hún hefst í Aldingarðinum, (grænmetisdeildinni), fer í Niflheim niður (frystikisturnar) og endar svo í Hreinsunareldinum, hreinlætisvörurnar). Bónusljóðin komu fyrst út árið 1996 og varð metsölubók. Bónusljóð var síðan ófáanleg um langt skeið þar til hún var endurprentuð og lengd um 33% með nýjum ljóðum: Bónusljóð 33% meira. Hún er fáanleg í Bónusverslunum en árituð eintök er hægt að nálgast hjá Andra Snæ.
LoveStar
/ Mál og Menning 2002 / Kilja 2004
Skáldsaga um ástina, dauðann og guð og ýmislegt fleira. Indriði og Sigríður búa í samfélagi þar sem laumuhýslar, galarar og gildrur eru á hverju strái og LoveStar skemmtigarðurinn í Öxnadal er miðpunktur ástar og dauða í veröldinni. LoveStar fékk menningarverðlaun DV í bókmenntum árið 2002.
Sagan af bláa hnettinum
/ Mál og Menning 1999
Sagan um villibörnin á bláa hnettinum hefur komið út í 12 löndum. Hún kom fyrst út á Íslandi árið 1999 og fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin, fyrst barnabóka. Leikritið um Bláa hnöttinn er núna á þremur sviðum í heiminum. Sem skólaleikrit í Bad-Kreutznach í Þýskalandi. Ungmennafélagið Íslendingur hefur sett upp verkið af miklum metnaði í Brún í Bæjarsveit í Borgarfirði. LKTYP í Toronto frumsýnir síðan verkið þann 3. febrúar. LKTYP er eitt stærsta barnaleikhús í Norður-Ameríku.
Engar Smá sögur
/ Mál og Menning 1996
Engar smásögur komu út árið 1996. Þetta eru skrítnar sögur um margt og mikið. Þarna er saga um sambúðarraunir sjóara og hafmeyju, um vísundinn hann Andra sem afhjúpar samsæri vísindanna, um skáldið Arnar sem lendir í klóm Gunnlaðar skáldkonu og þar er einnig bálkurinn, Lögmál árstíðanna saga í fjórum þáttum þar sem heimurinn fer á hvolf eftir að guð lætur lögmál heimsins breytast eftir árstíðunum, þannig að hver árstíð hafi sitt eigið lögmál.
Bónusljóð
/ Bónus 1996
Bónusljóð lýsa guðdómlega gleðilegu ferðalagi um undraveröld Bónus stórmarkaðar. Hún hefst í Aldingarðinum, (grænmetisdeildinni), fer í Niflheim niður (frystikisturnar) og endar svo í Hreinsunareldinum, hreinlætisvörurnar). Bónusljóðin komu fyrst út árið 1996 og varð metsölubók. Hún var síðan ófáanleg um langt skeið þar til hún var endurprentuð og lengd um 33% með nýjum ljóðum árið 2003: Bónusljóð 33% meira. Hún er fáanleg í Bónusverslunum en árituð eintök er hægt að nálgast hjá Andra Snæ.
Ljóðasmygl og skáldarán
/ Nykur 1995
Fyrsta bókin mín, Ljóðasmygl og skáldarán kom út árið 1995. Þetta eru ljóð sem ég orti frá því ég var 17 ára þar til ég var 22 ára. Þetta eru ástarljóð, hækur, örljóð og ýmislegt fleira í bland. Bókaforlagið Nykur var stofnað til að gefa út Ljóðasmygl og skáldarán, hún var prentuð í þrígang, eintök má nálgast hér.
Bók í mannhafið
/ Nykur 2002
Hefur þú séð þessa bók?
Bók í mannhafið kom út árið 2000 og inniheldur ljóð eftir 12 skáld sem þá voru yngsta kynslóð ljóðskálda á Íslandi. Enginn má eiga þessa bók, hún á að berast um mannhafið eins og flöskuskeyti. Menn mega lesa bókina en síðan eiga menn að skrifa nafnið sitt aftast og fundarstað og skilja hana síðan eftir á sólríkum og þurrum stað. EF ÞÚ FINNUR ÞESSA BÓK Í BÓKAHILLU! TAKTU HANA MEÐ ÞÉR! FRELSAÐU BÓKINA!