|




|
Uppskriftir

18.2.06
Salsa kjúklingur
Uppskriftin er fyrir 3-4 4 kjúklingabringur c.a 1 poki Doritos flögur eða aðrar flögur 1 - 1 1/2 krukkur salsa osta sósaostur (piparostur, hvítlauksostur eða einhver annar góður)
Aðferð: Mylja dorritos flögurnar vel, salta og pipra einnig. Sting með prjóni gat í kjúklingabringurnar og læt ostinn inn í þær (loka með tannstöngli). Velti svo kjúklingabringunum upp úr mylsnunni steiki á pönnu ca 2 mín á hlið og læt svo í botn á eldföstu móti og inn í ofn. Þegar kjúklingurinn er að verða tilbúin þá hita ég osta salsa sósu og helli henni svo yfir eða ber fram með kjúklingnum.Borða með þessu ferskt salat og gott brauð
Kjúklingur með fetaosti
4 kjúklingabringur 1 krukka fetaostur 3 msk Pestó (bara eitthvað gott) Rauðlaukur Sveppir
Aðferð: Setjið 3/4 af fetostinum í skál, stappið hann í klessu, pestóið, og saxið rauðlauk og sveppi eftir smekk. Bætið við smávegis af fetaosts olíunni samanvið ef þurfa þykir.Setjið bringurnar í eldfast mót og sullið þessu yfir bringurnar og látið inní ísskáp í svona 1klst, en ef þið eruð að flýta ykkur þá þarf þess ekkert endilega.Berið fram með salati og grjónum.
Kjúklingabringur með paprikupestói
Hráefni:800 g beinlausar kjúklingabringur 3-4 msk Pepperoni pesto (paprikku) frá Rustichella. 2-4 hvítlauksrif, eða eftir smekk nokkrir stönglar ferskt rósmarín 1 1/2 msk hvítvíns- eða sítrónuedik 2 1/2 dl kjúklingasoð4 msk ISIO4 olía
Aðferð: Hitið ofn í 175°C. Smyrjið botninn á eldföstu móti með pestóinu. Sneiðið hvítlauk í þunnar sneiðar dreifið yfir pestóið. Skerið bringur í tvennt og leggið í mótið. Blandið saman ediki og kjúklingasoði og hellið yfir kjúklinginn. Kryddið með salti og pipar hellið ISIO4 olíu yfir. Gott er lík að smyrja smá pestói ofan á bringurnar.Vökvinn á að ná upp að ca. miðjum bringum. Þannig mun kjötið soðna neðan frá og bakast ofan frá.Bakið í opnu móti í ofninum í 15 -20 mínútur. Takið þá út og hrærið aðeins í. Leggið þá álpappír eða mót yfir mótið og bakið áfram í 10-15 mínútur eða þar til kjúklingur er tilbúinn. Berið fram með pestóspaghettíinu.
Kjúklingaréttur með Mango Chutney
Mangó kjúklingur 1/2 krukka Mango chutney 1 msk. karrý 1/2 tsk. tandory krydd 1 peli rjómi 2 kjúklingabringur (fer þó eftir fjölda manns) kryddaðar með salti,pipar og kjúklingakryddi og steiktar á pönnu.
Raðað í eldfast mót, 2 bönunum raðað ofan á bringurnar og sósan svo ofan á. Sett í ofn á 170°C í ca.20-30 mín.
-----------------------------
Fylltar kjúklingabringur með pesto hrísgrjónum
Hráefni 6 stórar kjúklingabringur með skinni 1 bolli soðin hrísgrjón ½ tsk salt 2 msk sýrður rjómi ¼ tsk pipar 2 msk olífuolía 1 bolli ferskt basilkum1 msk sterk sósa (tabasco) 2 hvítlauksgeirar saxaðir ½ bolli Valhnetur 1 msk bráðið smjör ¾ bolli rifinn parmesan ostur
Matreiðsla Losið skinnið frá bringunum til að mynda vasa fyrir fyllinguna. Kryddið með salti og pipar. Blandið saman í matarvinnsluvél basilkum, hvítlauk og valhnetur. Blandið saman í stórri skál parmesan osti, hrísgrjónum, sýrðum rjóma, ólífuolíu, sterkri sósu og basilkum blöndunni. Setjið u.þ.b. 1/3 bolla af blöndunni undir skinnið á hverri bringu* Raðið í eldfast mót, penslið með bræddu smjörinu og steikið í 165°heitum ofni í u.þ.b. klukkutíma eða þangað til bringurnar eru tilbúnar (fer eftir stærð) *Ef skinnið losnar, pressið það yfir fyllinguna og festið með tannstönglum
skrifað hefur Salvor 18.2.06
Kjúklingaréttur fyrir tvo 2 kjúklingabitar (fyrir þá sem ekki borða kjöt má nota geitarost í staðinn fyrir kjúkling) 6 nýjar kartöflur, skornar í báta Rauð paprika, skorinn í strimla 1 rauðlaukur (með hýði), skorinn í átta geira 8 hvítlauksgeirar (með hýði) ólífuolía (hellt yfir) timjani (sáldrað yfir allt saman)
Öllu raðað í eldfast form eða steikarfat (í þeirri röð sem það er talið upp) og sett í ofn í klukkustund og rétturinn borinn fram eins hann kemur úr ofninum.
---------------------------------------
Tortillas flatkökur Salsasósa Svartar olífur Rifinn ostur (helst sterkur) olía Tex mex krydd ( eða ehv annað krydd) Salsasósa smurð ofan á flatkökurnar, svartar olífur þar yfir og að lokum rifinn ostur. Önnur flatkaka lög ofan á. Flatkakan er smurð með olíu og kryddi stráð yfir. Sett í ofn á um 200°C í ca 10 mínútur -------------------------------------- Túnfisksalat 1 dós túnfiskur í dós (í vatni) 1 dós kotasæla eða 3 eggjahvítur og 1 rauða 1/4 rauðlaukur smátt skorinn 1/2 rauð paprika smátt skorinn ------------------------------------ Pecanhnetueplakaka
6 stór græn epli flysjuð, skorin í báta 2 dl pekanhnetur (má drýgja með öðrum hnetum) kanilsykurblanda 1 stór krukka eplamauk Döðlubotn Stráið smá kanilskykri yfir eplin og pekanhneturnar og bakið í 20 mín. Eplamauk sett á döðlubotninn, kanilsykri stráð yfir. Eplunum og pekanhnetunum raðað óreglulega ofan á. Hægt er að gera karmellu og hella yfir kökuna. Gott að hita kökuna í 10 mín í ofni áður en hún er borin fram með rjóma eða ís. Karmella 3 bollar af sykri settir í pott og 2 msk af sítrónusafa kreistar yfir og hrært vel saman ------------------------------------ Speltvöfflur
8 dl spelt 2 tsk vínsteinslyftiduft salt af hnífsoddi 1 tsk malaðar kardimommur 1 tsk vanilluduft 2-3 egg 7 dl ab-mjölk 1/2 dl olífuolía Hrærið saman þurrefnin og bætið kardimommum og eggjum útí. Bætið mjólk og olíu útí, nógu miklu til að gera deigið að þykkum graut. Athugið að í staðinn fyrir ab-mjólk má nota hrísgrjón- soja- eða kúamjólk. Sumum finnst best að láta deigið standa í um 1/2 klst. í ísskáp áður en bakað er úr því. Dugar í 8-10 vöflur. ------------------------------------- Plokkfiskur með hafragrjónum
1 meðalstór laukur 1 msk óllífuolía 1 1/2 ýsu- eða þorskaflak 1 1/2 bolli vatn 1 1/2 msk arómat 1 1/2 tsk pipar 1 tsk karrí 1 bolli hafragrjón eða 1 1/2 bolli haframjöl Skerið laukinn smátt og steikið létt í potti í ólífiolíunni. Bætið vatninu við, ásamt ýsunni og sjóðið í 3-5 mínútur. Blandið kryddi og haframjöli saman við, hrærið allt saman í mauk og látið kólna. Berið fram með rúgbrauði eða setjið maukið í tortillur og vefjið þær upp. ---------------------------------- Jarðaberja-banana morgunverðar Muffins
4 eggjahvítur 1/2 bolli ósæt eplamús 1/2 bolli canola olía eða bara olífu olía 1/2 bolli Splenda ( sætuefni) 2 matskeiðar sykurlaust sýróp 1 1/2 tesk vanilu sykur 3 vel þroskaðir bananar ( maukaðir ) 2 bollar hveiti ( má nota spelt ) 60 gr prótein duft 2 matsk hafragrjón 1 tesk bökunarsódi 1 tesk kanill 1 1/2 bolli niðurskorin jarðaber 1. Hitið ofninn í ca 160° C . Notið muffins form , gott að spreyja með olíu. 2. Blandið saman eggjahvítum, eplamús, olíu, splenda, sýrópinu, vanilusykri, og bönunum. Í aðra skál er blandað saman hveiti, próteini, hafragrjónum, bökunarsóda og kanil. Blandið svo saman við hina blönduna. Jarðaberin sett saman við. 3. Setjið í muffins form (fylla þau). Bakið í 25 mínútur eða þar til tilbúið. Kælið.
skrifað hefur Salvor 18.2.06
7.10.04
Hér er vefur með mikið af góðum uppskriftum og gagnlegum fróðleik varðandi hollustu: http://cafesigrun.com
skrifað hefur Salvor 7.10.04
9.7.03
Karrýfiskur með hrísgrjónum (hitaeiningasnauður réttur) Mjög góður fiskréttur
600 g. fiskflak, roð- og beinhreinsað 2 dl. hrísgrjón 2 dl. súrmjólk 4 msk. léttmajónes 2 tsk. karrý salt 100 gr. nýjir eða niðursoðnir sveppir 3 msk. ostur, rifin Aðferðin: Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbeiningunum á umbúðum. Hrærið saman súrmjólk, majónes, karrý og salt, (best er að hræra majónesið vel fyrst svo það komi ekki kekkir). Setjið soðin hrísgrjónin í smurt, ofnfast fat. Skerið fiskinn í bita og raðið honum yfir hrísgrjónin og stráið salti yfir. Sneiðið sveppina og dreifið þeim yfir fiskinn. Hellið karrísósunni yfir réttinn. Bakið í miðjum ofni við 200°C í 30-40 mínútur. Stráið osti yfir réttinn og bakið áfram þar til osturinn hefur fengið fallegan lit. Uppskriftin er fyrir fjóra.
skrifað hefur Salvor 9.7.03
27.1.03
Uppskriftir af hornum http://www.lisoe.dk/opskrifter/ho.htm frá Lissie Uppskriftir af muffins http://www.lisoe.dk/opskrifter/muff.htm
Kristin´s sinfully sweet almond croissants (Mine syndige mandelhorn)
125 grams butter 6 desilitres milk 50 grams yeast 1 1/4 dl sugar 1/4 tsp salt 1/2 tsp ground cardamom 15 desilitres flour
Filling : 125 grams ground almonds, 125 grams powdered sugar and just enough water to keep this together. Should be quite sticky.
Melt butter in a saucepan, add milk and heat until lukewarm. Break up the yeast in a large baking bowl, pour in the finger-warm milk and butter. Add sugar, salt and stir. Sift in cardamom and flour, then knead the dough firmly until the texture feels right. Cover with a damp cloth and leave to rise until the dough has doubled in size. Divide the dough into four equal parts, and use a rolling pin to form a large even circle of each part. Cut the circle into eight triangles. Place a spoonful of filling in the broad edge of each triangle, and carefully roll in towards the middle until you have a nicely-shaped croissant. Repeat until you have 32 curved croissants. Let them rise under cover to double size, brush them with a mixtute of milk and slightly whipped eggs to give them a delicious golden color. Use baking paper on your trays as the rolls tend to be sticky Bake in the middle of your oven at 250° C for 5-8 minutes. Keep an eye on them, they brown very quickly ! Wonderful with steaming hot coffee or tea.
skrifað hefur Salvor 27.1.03
Hrísgrónabúðingur með mangó http://www.dk-kogebogen.dk
Innihald 1 l. kókosmjólk 100 g. langkorna hrís 50 g. púðursykur 1 knsp. stødt kardemomme 1 knsp. salt 2-3 friske mangofrugter
Varm ovnen op til 160 grader.
Bland kokosmælk, ris, brun farin, kardemomme og salt godt i et ovnfast fad. Stil fadet i ovnen i 1 time, til risen er kogt, og konsistensen er cremet. Undervejs kan man røre i risen, så den ikke klumper til en fast masse.
Skræl mangofrugterne og skær frugtkødet i skiver. Anret mangoskiverne på tallerkener og server med store skefulde risbudding til.
Tips:
I stedet for mango kan man bruge bananskiver eller appelsinbåde.
skrifað hefur Salvor 27.1.03
Svínastrimlar - tælenskur pottréttur
Innihald 1 matsk. sesamolía 2 laukar í þunnum sneiðum 1 rauður chili, án kjarna, hakkaður ½ kg. magurt svínakjöt í þunnum strimlum 100 g. púðursykur 1 1/4 dl. vatn 1 matsk. fiskisósa 1 búnt af steinselju, hakkað.
Hita olíu í þykkbotna potti. Bæta við lauk, chili og kjöti. Steikja við háan hita og hræra stöðugt í 5 mínútur. Bæta við púðursykri, vatni og fiskisósu. Láta sjóða upp. Lækka hitann og láta réttinn malla með því að hræra í í um 10 mínútur þangað til sósan er orðin þykk. Strá hakkaðri steinselju yfir.
skrifað hefur Salvor 27.1.03
Möndluhorn 16 stk. 100 g smjör 1½ dl rjómi eða mjólk 25 g ger 1½ matsk. sykur ¼ tsk salt 300 g hveiti Fylling: remonce af 50 g sætar möndlur 5 stk beiskar möndlur 50 g mjúkt smjör 50 g ljós púðursykur 1 tsk vanilla Penslun: hrært egg Skraut: möndluflísar
Bræða smjör og setja rjómann í. Mylja gerið í skál og hræra út með vökvanum. Setja í sykur, salt, egg og hveiti en geyma smávegis. Slá deigið vel í gegn og setja afganginn af hveitinu. Láta deigið hefa sig á volgum stað, um 40-60 mínútur. Skola möndlurnar og saxa þær smátt í blandara eða kvörn. Hræra smjör og sykur vel saman og setja í það möndlur og vanillu. Setja deigið á borð og hnoða það. Skipta því í 2 kúlur sem hver um sig er hnoður í hring sem svo skiptist í 8 þríhyrninga. Setja smávegis af möndlufyllingu á hvern þríhyrning og rúlla upp horninu. Láta svo eftirhefast í 30 mínútur. Pensla hornin og skreyta með möndluflísum.
Bökunartími: ca. 15 min. við 200° .
uppskrift frá Birthe's Madside
skrifað hefur Salvor 27.1.03
31.7.02
Jarðhnetupasta með chilipipar engifer og hvítlauk (af bestu lyst) 400 g tagliatelle eða spagetti 3 tsk engiferrót rifin 3 hvítlauksrif 1/2 msk ólífuolía 1 dl jarðhnetur 1 msk sojasósa 1 msk sykur 1 msk edik 1 tsk sesamolía 3 msk grænmetis eða kjúklingasoð 1 chilipipar 1 blaðlaukur ferst kóríander (má sleppa) Setjið engiferrót, hvítlauksrif, jarðhnetur, sojasósu, sykur, edik, sesamolíu og soð í matvinnsluvél og maukið í augnablik. Hitið ólífuolíu á pönnu. Fjarlægið kjarnan úr chilipiparnum og skerið hann í bita og blaðlauk í strimla. Mýkið í olíu í smá stund. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Blandið heitu og nýsoðnu pasta saman við jarðhnetusósuna og hellið chilipipar og blaðlaukstrimlum yfir. Stráið fersku kóríander yfir. Berið fram með grófu brauði og salati. heimild: Af bestu lyst
skrifað hefur Salvor 31.7.02
26.7.02
Góð Baileys súkkulaðikaka af eldhus.is Kakan 3 Egg 5 dl sykur 7 dl hveiti 1 tsk. matarsódi 2 tsk. lyftiduft 200 gr. smjörlíki 2 dl mjólk 2 dl Baileys Irish cream 2 tsk vanilludropar 1,5 dl Cadbury's kakó
Kremið 150 gr smjörlíki 1 b Cadbury's kakó 3 b flórsykur 1/2 b heit mjólk 2 tsk vanilludropar eða kaffi Slurkur af Baileys Irish Cream, smakkað til (eiginlega ekki hægt að setja of mikið) Kakan Þeytið saman eggin og sykurinn svo það verði ljóst og létt. Setjið öll blautefni útí, svo brætt smjörlíkið og svo þurrefnin. Bakið í þremur kökuformum við 180 gráður í u.þ.b. 20 mínútur.
Sniðugt er að bræða súkkulaði (50-100 gr) og láta það leka á smjörpappír eins og maður væri að krassa með því, láta það harðna og setja svo ofan á kökuna til skreytingar.
Kremið: Bræðið smjörlíkið í potti og bætið kakóinu útí, síðan volgu mjólkinni, flórsykrinum, dropunum og svo Bailey's eftir smekk. Kremið þykknar þegar það kólnar.
skrifað hefur Salvor 26.7.02
18.10.01
Súkkulaðikaka
1 1/4 bolli Sykur 150 gr Smjörlíki 2 egg 1 1/2 bolli hveiti 2 Msk Kakó 3/4 tsk Salt 1 1/4 tsk Natron 1. Bolli Súrmjólk
Sykri og smjörlíki hrært saman eggin sett útí og þeytt vel Síðan þurrefnin og svo súrmjólkin hrært eins lítið og hægt er
Bakað við 190° í 40-50 mín
Kremið: 350-400 gr flórsykur 1 egg 3 Msk Kakó 100gr brætt smjörlíki setja svo kalt kaffi í ef þetta er of þykt
skrifað hefur Salvor 18.10.01
Rice Krispís kaka
100 gr Rice Krispís 50-100 gr Suðusúkkulaði 60 gr Smjörlíki 5 Msk Síróp
Allt nema Rice Krispísið brætt og hrært saman í potti Krispísið sett útí og þessu öllu síðan helt í mót og inní frysti í ca 15. mín
skrifað hefur Salvor 18.10.01
Lasagna
350 gr nautahakk 2 stórar gulrætur 1 laukur 3 hvítlauksrif 1 dós tómatsósa 1 msk tómatpúrra 12 lasanjaplötur 100 gr mozarellaostur
"Ég byrjaði á að steikja hakkið og kryddaði það með smá season all svo setti ég gulræturnar, laukinn og hvítlaukinn (sem ég var búin að skera smátt) saman við. Þegar það var orðið steikt bætti ég tómatssósunni og tómatpúrrunni saman við og lét það malla í 5 mín. Svo raðaði ég þessu saman byrjaði á sósunni og svo plötunum o.s.frv og setti svo ostinn ofan á allt saman. Þetta bakaði ég svo í ofninum við 200° í 20-25 mín. eða þar til osturinn var orðinn bakaður. " af vefnum
skrifað hefur Salvor 18.10.01
Túnfiskpasta
1 laukur olía til steikingar 1 dós túnfiskur 1 dós tómatar (krossaðir) 1 l sós tómatpúrra 1-2 rif hvítlaukur spagetti krydd:svartur pipar ,chilipipar, sykur Aðferð: steikið lauk og hvítlauk í olíunni þar til laukurinn er orðim mjúkur,hellið tómat úr dós,tómatpúuru og túnfisk út í og hrærið saman kryddið með svörtum pipar,chili og sykri (ca 1 msk sykur) láttið malla á mjög vægum hita meðan spagetti er soðið túnsfisksósunni svo hellt yfir spagetti og parmesan stráð yfir ef þið viljið. borðið fram með grófu brauði
skrifað hefur Salvor 18.10.01
Þúsund eyja brauðterta
1 flaska þúsund eyja sósa 2 dósir sýrður rjómi 1 skinkubréf, smátt skorin ½ dós maískorn púrrulaukur, eftir smekk 1 skorið brauðtertubrauð
Blandið þúsund eyja sósunni og sýrða rjómanum saman. Takið u.þ.b. 2/3 bolla til að smyrja á brauðtertuna í lokin. Blandið öllu nema brauðinu saman í skál. Smyrjið salatinu á milli brauðlaganna og smyrjið brauðtertuna að lokum. Skreytið að vild.
skrifað hefur Salvor 18.10.01
12.9.01
Sítrusávaxta-ostakaka
75 g smjör, lint 175 g hveiti 375 g sykur 4 egg safi úr 1 sítrónu fínrifinn börkur af 2 sítrónum 600 g rjómaostur, linur 3 msk maísmjöl fínrifinn börkur af 1 appelsínu fínrifinn börkur af 1 límónu (lime) 1 dós (2 dl) sýrður rjómi (36%) 2 dl appelsínumarmilaði 2 msk appelsínulíkjör eða brandí (má sleppa)
Ofninn hitaður í 220 gráður og meðalstórt springform smurt með 1 msk af smjörinu. Afgangurinn settur í matvinnsluvél (eða hrærivélarskál) ásamt hveiti og 75 g af sykrinum og þeytt saman. Eitt eggið aðskilið og rauðunni þeytt saman við ásamt 2 tsk af sítrónusafanum og berki af annarri sítrónunni. Sett í formið og þrýst niður á botninn og upp með hliðunum - deigið á að ná á að giska upp á miðjar hliðar en það þarf ekki að vera slétt eða áferðarfallegt. Penslað með eggjahvítunni, sett í ofninn og bakað í um 15 mínútur. Osturinn þeyttur með afganginum af sykrinum þar til hann er alveg sléttur. Þá er sítrónusafa og berki, appelsínuberki og límónuberki hrært saman við ásamt maísmjölinu og síðan eggjunum, einu í senn. Þegar blandan er alveg slétt er sýrða rjómanum hrært saman við. Ostakökubotninn tekinn úr ofninum og hitinn lækkaður í 175 gráður. Ostablöndunni hellt í formið - það gerir ekkert til þótt hún fljóti vel yfir barmana á skelinni (verra ef þeir standa upp fyrir). Sett í ofninn og bakað í um 1 klst, eða þar til ostafyllingin er stíf út við barmana og farin að springa en dúar enn í miðjunni. Slökkt á ofninum, hann opnaður en kakan látin standa í honum í um 10 mínútur. Þá er hún tekin út og látin kólna á grind og síðan látin standa í kæli yfir nótt. Marmilaðið hitað í potti með líkjörnum eða brandíinu og soðið í 3-4 mínútur. Látið kólna ögn. Kakan losuð úr forminu (með hníf), sett á fat og marmilaðinu hellt yfir. Kælt þar til marmiliaðigljáinn hefur stífnað.
(Það er vel hægt að nota bara marmilaði í gljáann og þannig er raunar upprunalega uppskriftin. Mér fannst bara vanta eitthvað í hann. Raunar notaði ég Mandarin Napoleon sem vildi til að ég átti en Grand Marnier passar örugglega vel, eða Cointreau. Eða bara svolítill sítrónusafi.)
tekið af vef - frá Nönnu Rögnvaldardóttur (Matarást póstlistinn)
skrifað hefur Salvor 12.9.01
TARTALETTUR
1 askja sveppaostur.1 dós grænn aspas. 4 sn skinka brytjuð. Ostur og skinka og aspas sett í skál hrært vel saman eftil vill pínu soð af aspas sett í tartalettur og hitað þar til orðið er vel heitt ígegn
DUGAR Í 10 tartalettur
skrifað hefur Salvor 12.9.01
18.6.01
Gulrótarkaka
1½ bolli matarolía 2 bollar sykur 4 egg 2 tsk lyftiduft 2 tsk kanill 1½ tsk sódaduft 1 tsk salt 2 bollar hveiti 2 bollar rifnar gulrætur (setja þétt í bolla) 1 bolli kurlaður ananas sem búið er að sigta vel 2 tsk vanilludropar
1 bolli saxaðar valhnetur (má sleppa) 1 bolli saxaðar rúsínur (má sleppa)
Hrærið saman olíu og sykri og bætið einu eggi í einu út í. Þurrefnum hrært saman við og að síðustu gulrótum, ananas, (valhnetum og rúsínum). Setjið í stórt eldfast form, t.d. bangsa eða barbí form, eða tvö minni og bakið í vel smurðu formi/formum við: 180 gráðu hita í 1 og ½ klukkustund.
Nú veljið þið annað hvort kremið!
Hefðbundið krem 50 g rjómaostur (vel mjúkur) 350 g flórsykur sítrónusafi
Osti og flórsykri hrært saman og bleytt í með sítrónusafa. Kremið á að vera þykkt. Hjúpið kökuna vel með kreminu og svo má skreyta t.d. með valhnetum eða lita kremið með matarlit og teikna á kökuna eða punktasprauta kjólinn á barbí með mismunandi litum.
Finnskt krem 90 g rjómaostur (vel mjúkur) 4½ msk smjör/smjörvi (vel mjúkt/mjúkur) 1 tsk vanillusykur pínulítið salt 4½ dl flórsykur
Hrærið rjómaostinum og smjörvanum saman og bætið restinni við. (Þessi uppskrift er frá Kolbrúnu Kolbeinsdóttur kennara í Iðnsk.)
skrifað hefur Salvor 18.6.01
16.5.01
Kleinur
4 cups flour 3 tsp. baking powder 1 tsk. hartshorn salt (Ammonium Carbonate) 2 tsp. Cardamom 1/2 cup margarine 4 1/2 tblsp. sugar 7 tblsp. milk 1 egg
Mix together flour, baking powder, hartshornsalt and cardamom. Add the margarine, sugar, egg and the milk. Work up into dough. Roll out the dough to about 1/8 inch thick (3mm). Cut into strips about 3/4 inch (19mm) wide and about 3 inch (76mm) long in a slantwise direction, using a pastry wheel and ruler. Make a slit in the center of each kleinur and pull one pointed end through. Lower the kleinur, one at a time, into hot fat and fry them until golden brown. (Deep fat frying). Lift them out and let them drain on a paper-towel. Eat them hot or cold.
skrifað hefur Salvor 16.5.01
12.5.01
Eplakaka 1 bolli hveiti 1 bolli sykur 150 gr. smjörlíki 2 egg 1 tsk lyftiduft 1 msk kanelsykur 1-2 epli
Bræðið smjörlíkið, hrærið sykur, egg, hveiti og lyftiduft út í. Setjið deigið í eldfast form og raðið eplabátum yfir. Sáldrið kanilsykri yfir. Bakið við 200 gráður í um 20. mín
skrifað hefur Salvor 12.5.01
|