Ha,ha,ha! Þvílíkur brandari! Á endanum þurftum við bara að taka út annan af brúsunum okkar góðu og hann er meira að segja helmingi og stór.

Labuan er fríhafnar eyja hér í Borneo og eins og Jap vinur okkar var búinn að segja okkur og ég bara trúði ekki ,,það er auðveldara að kaupa 100 lítra af Johnny Walker á Labuan en að kaupa 100 lítra af eldsneyti", en þegar ég mætti á Shell stöðina í dag komst ég að því að dagskammturinn er rúmir 11 lítrar.
Eldsneyti er niðurgreitt hér og því svo sem sanngjarnt að útendingar geti ekki nýtt sér það út í það óendanlega. En það væri gott ef þeir væru með plan B sem gerði bátafólki kleift að fylla tankana áður en haldið er aftur út á hafið.
Það verður skrítið næstu daga að trítla einu sinni á dag og kaupa hálfan brúsa af eldsneyti. Við þurfum hátt í 400 lítra og svo er líka að sjá hvort þeir setji kannske bara stop á þessar heimsóknir mínar eftir að vissu hámarki er náð. Þá verðum við bara að sigla yfir til Brunei þar sem gert er ráð fyrir eldsneytisþörfum bátafólks og hægt er að kaupa stærri einingar. En hálf er það nú skítt að þurfa að skrá sig inn í landið bara til að geta fyllt tankana.