Í dag er 4. mars, Friðrós farin heim og hálf tómlegt hér á meðan við komum okkur upp nýrri rútínu án hennar.
Svo er að heyra að síðastliðinn mánuður sé með þeim heitustu á þessum slóðum síðan mælingar hófust og í sjónvarpinu heyrði ég að febrúar hafi verið sá alþurrasti í Singapúr síðan mælingar hófust. Þú getur rétt ímyndað þér hversu ánægð við erum með loftkælinguna okkar þessa dagana þegar hitinn hefur farið í 35 gráður í skugga og þó ekki rigni er (að mér finnst) óvenju mikill raki í loftinu, sérstaklega á morgnana.
Það fór lítið fyrir skokki hjá okkur í febrúar en í morgun dreif ég mig smá hring og fann ágætlega fyrir hitanum strax klukkan sjö í morgun. Jamm, svo er að sjá á íslensku blöðunum að það sé ansi mikill munur á veðrinu heima og hér.
Þar sem Kári er ekkert fyrir það að láta nudda sig hef ég ekki mikið tekið eftir hinu gífurlega framboði hér á nuddi allskonar á alveg ótrúlega lágu verði. Friðrós náttúrulega lét ekki á sér standa að drífa mig með í slíkt og eftir smátíma var mín farin að læra hjá sprenglærðum tælenskum nuddurum.
Einn daginn þegar við vorum á leið (í strætó) til að láta nudda okkur settumst við kátar að fá sæti og eftir smástund heyrist ofurlágt í Friðrós ,,konan fyrir framan okkur er grálúsug" og viti menn. Þegar ég setti upp gleraugun sá ég ekki bara líflegt lífið heldur líka eggjafjöldan í hárinu. Ein spræk og vel alin lús var komin í ævintýraferð eftir stólbakinu og þar sem útlit var fyrir að hún væri til í að flytja frá ættingjum sínum stóðum við all snarlega upp og stóðum það sem eftir var að næsta stoppi, sem var okkar.
Við vorum nú ekki hvekktari en svo að við tókum hiklaust strætó heim að afloknu nuddi.
Nú er komið að því að við vinnum aftur í að koma Lafðinni í gott form og drífa okkur héðan. Kári hlúði að startaranum um daginn, en hefur ekki gefið sér tíma enn til að kanna hvað það er sem kvelur Hr. Perkins. Mér finnst óspennandi tilhugsun að geta ekki fullkomlega treyst vélinni hér niður ánna, í gegnum þéttskipað hafsvæðið í kringum Singapúr og ef við ákveðum að fara til Langkawi, þá förum við í gegnum Malacca Strait með allri sinni umferð. S.s. eins gott að hafa vél sem má treysta að fari í gang og haldist gangandi eins lengi og maður vill.
Svo kannske förum við ekki héðan fyrr en í fyrsta lagi í byrjun apríl?