Gleðilegt Nýtt Ár! Jamm, við erum enn lifandi en það er bara búið að vera svo mikið að gera og gaman að vera til að ég hef ekkert mátt vera að því að skrifa.
Samviskan var farin að klóra illilega í mig, því ég er alveg viss um að fólk hefur saknað skrifanna minna mikið :-) En við réðumst í það stóra verk að lakka öll gólfin um borð og það er sko enginn leikur þegar maður býr svona þröngt og flytur ekki út á meðan.

Af einhverjum ástæðum virðist ég tekin við af Kötu með hárlosið (ekki hægt að kenna henni lengur um) og því er ég alla jafna rekin frá borði, eða boðið í bæjarferð um leið og búið er að lakka skammt dagsins.

Við tökum gólfin í bútum svo við getum gengið um eftir kúnstarinnar reglum eftir að lakkið hefur náð að harðna nóg til að ryk og hár festist ekki í því. Erfiðast er að vakna á nóttinni og þurfa að muna hvar má stíga niður á leiðinni að klósettinu :-)

Friðrós ætlar að heimsækja okkur bráðlega og mig er farið að hlakka mikið til að fá skottuna í heimsókn. Við komum þó varla til með að sigla mikið með hana hér. Þetta verður meira eins og heimsókn ef við byggjum hér. Ekkert mál að skreppa í göngu- eða strætóferð hvenær sem er og það sem meira mál er, það er hægt að fara í margar sturtur á dag án þess að þurfa að hafa neinar áhyggjur af vatnsnotkun - eða þannig, það er nokkuð sem er algjör luxus í seglbát.

Við erum búin að skoða hin ýmsu hverfi hér í stórborginni og smásaman að mynda okkur skoðun um hvert okkur líkar að fara og hvert ekki. Við skokkum hér flesta morgna og einn daginn skruppum við yfir til Singapúr í verslunarleiðangur eftir bátahlutum sem okkur hefur ekki tekist að finna hér.
Því miður virðast heimamenn hér í Johor Bahru ekki enn hafa áttað sig á því að þeir eru að missa heilmikinn bisness yfir brúnna. Hér hafa verið byggðar flottar marínur sem eru yfirfullar af bátum sem verið er að ditta að á einn og annan hátt. Þegar maður býr í bát er endalaus verkefnalisti og það er ótrúlega margt stórt og smátt sem vantar til að halda fólki og fleyi gangandi.

Árið 2009 sigldum við 4.206 mílur, þar af voru 1.840 mílur sigldar með rallýinu. Við keyptum 1.672 lítra af eldsneyti. Af þessum 4.206 mílum var fleyið knúið af vél 2.902 mílur.