fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Ég er búin að skipta um bloggsíðu... nýja slóðin er:

www.godsbanegade.blogspot.com

þessi gamla verður opin í smá tíma í viðbót en endilega setjið nýju síðuna inn í minnið hjá ykkur svo þið missið nú ekki af mínum stórskemmtilegu bloggfærslum:) :)


miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Elsku besta amma Marý.. Innilega til hamingju með afmælið í dag!!


mánudagur, ágúst 14, 2006

Komnar nýjar myndir



Já helgin helgin.. helgin var góð:-D

Ég byrjaði á því að fara út að borða á Hótel Rangá á föstudagskvöldið. Ég fór með Sigrúnu, yfirmanni mínum á Sögusetrinu, og henni Önnu Stefaníu sem að ég er búin að vera að vinna með í sumar. Við fengum alveg hrikalega góðan mat, hreindýrakjöt og skyrtertu í eftirrétt mmmmmm:-D

Nú klukkan 3 aðfaranótt laugardagsins þá lagði ég af stað með foreldra mína á Keflavíkurflugvöll en þau áttu flug til Þýskalands klukkan 7 á laugardagsmorgun. Ég var nú alveg ogguponsu þreytt þegar ég náði heim til mín aftur en svefninn lét á sér standa þar til upp úr hádegi og svaf ég þá svona dálítið fram á dag.. það var ósköp notalegt:)
Ég fór svo til Elísabetar á laugardagskvöldið og við fengum okkur smá öl meðan við vorum að bíða eftir að mamma hennar kæmi heim frá Hellu.. amma Hoffý ætlaði nefnilega að passa börnin svo að eftir að hún kom í hús töltum við heim til mín. Þar tóku á móti okkur nokkrir drengstaular sem höfðu fengið sér aðeins í tánna og það var nú gaman að þeim að vanda!! Ég var nú dálítið mygluð eftir svefnvitleysu dagsins svo að ég var ekki í Hellu stuði og hún Beta súpervinkona mín ákvað að vera heima líka... þrátt fyrir það slógum við nú ekki slöku við og rauðvín og bjór rann ágætlega niður:)

Viðburðir kvöldsins náðu svo hápunkti þegar komið var með Jón "mannlega" heim, dálítið útjaskaðan svona, og þegar Sævald kom heim og þótti réttast að fara að ryksuga - eins gott að við búum ekki í fjölbýlishúsi!!! Mjög skemmtilegt kvöld:)
og Beta...

"Hún er þarna í Stundinni Okkar, er annað hvort Birta eða Bárður... jaaa en líklegast er hún ekki Bárður"

Sunnudagurinn fór í tvíburahitting í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, geitungafælni, heimsókn til hennar Kollu sætu og sjónvarpsgláp:)


föstudagur, ágúst 11, 2006



Lovísa Karen og Bryndís Rut eru 1 árs í dag!!
Það var fyrir einu ári síðan sem að mamma þeirra lá í sófanum hérna heima hjá mér, grá og gugginn og þótti rétt að fara að athuga hvort eitthvað væri að gerast.. Mér leist orðið ekkert á hana og var nokkuð ákveðin á þessum tíma að verða aldrei ólétt.. greyinu henni Betu leið svoo illa!!! Akkúrat á miðnætti þennan sama dag fæ ég svo sms um að komnar séu tvær stelpur og öllum heilsist vel:) Svo fórum við Kolbrún Vaka að kíkja á stúlkurnar og ég hef aldrei verið svona lengi á sjúkrahúsi áður.. við gátum bara ekki slitið okkur frá þessum fallegu börnum!!:)

Innilega til hamingju með afmælið elsku Lovísa og Bryndís.. og elsku Elísabet mín, til hamingju með þessar fallegu stelpur sem þú átt - þær eru yndislegar eins og mamma sín:):):)


fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Mér finnst Magni búinn að vera sérdeilis góður í þessari viku..

Ég er í fríi núna fram á mánudag.. mér finnst það gott - ég er nefnilega orðin dálítið stirð í þjónustulundinni og komin með frosið hjálparbros á vor :-s gott að taka þá bara hvíld á þetta. Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur fengið upp í kok af því að segja frá hvað er skemmtilegt að skoða hér í kring og hringja og athuga um lausa gistingu úti um hvippinn og hvappinn:-D já væl og skæl..

En núna eru alls 3 vikur þar til að ég fer aftur til Danmerkur.. það verður gott að komast til Mumma en leiðinlegt að fara frá ykkur hérna heima!! Alltaf svoleiðis:-D


sunnudagur, ágúst 06, 2006

Elsku Ólöf Guðbjörg.. til hamingju með afmælið í gær!! Vonandi var veislan í Eyjum góð og það er eins gott að fólk hafi sungð hástöfum afmælissönginn fyrir þig:)

Það er bara búið að vera hin fínasta vinnuhelgi núna.. dálítið brjál að gera en samt alveg ágætt!! Ég ákvað bara að taka forskot á verslunarmannahelgina á fimmtudagskvöldið en þá var mér boðið í mat til Helga og Heiðu. Það var sko alveg þvílíkt gaman.. fyrst þurfti ég náttúrulega aðeins að knúsast í Sigurþóri Árna en þegar það kom frekjuöskur og skæl þá skilaði ég honum:-D Eftir dýrindismáltíð, fordrykki og meðdrykki þá sátum við og spjölluðum og Gunna nágranni bættist í hópinn. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt kvöld og ég var ekki komin heim fyrr en um hálf 3 leytið!! Mikið var talað um Kaupfirðinga, exem, ferðalög, áfengi og svo framvegis:D:D:D
Takk takk fyrir frábært kvöld!!!

Núna er bara vika þar til að mamma og pabbi skella sér til Þýskalands og það eru bara 25 dagar þangað til að ég fer aftur til Kaupmannahafnar.. allt líður á súperhraða:)


fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Á þriðjudagskvöldið skellti ég mér milli hreppa því að hún Kristín Ósk var svo afar sæt í sér að bjóða mér til kvöldverðar. Maturinn var eins og á besta veitingahúsi, piparpasta á kálbeði;) og við áttum gott spjall eins og alltaf.. þetta varð nú kannski pínu endasleppt því ég fékk einhverja skrattans magapínu og varð hálf partinn að rjúka heim.. en takk takk fyrir mig elsku Kristín Ósk og næst býð ég í mat.

Í gær fórum við mamma svo í höfuðborgina þar sem ég eyddi mánaðarlaununum í fataleppa og ræmur.. nei nei kannski ekki alveg svo slæmt en það fer nú að koma að því að ég þurfi aukatösku fyrir farangur þegar ég flýg til Köben aftur. Það verður þá bara að hafa það...

Í kvöld er ég svo að fara til Helga og Heiðu því ég heimtaði að þau myndu bjóða mér í mat.. fusssss frekjan en já já þau létu undan. Ég verð nú líka aðeins að snúllast í Sigurþóri Árna og leyfa Laufey að fræða mig um kýr upp úr ensk-íslenskri orðabók;)