|
Þá erum við að fara að setja undir okkur
betri fótinn og flytja til lands losta og svínakjöts. |
||
|
Danmerkur flutningar Árnýjar og Mumma |
|||
| Gagnlegir
Hlekkir Upplýsingar Nám í danmörku Verslun Skemmtun/söfn |
miðvikudagur, desember 29, 2004
Gleðilegt nýtt ár öllsömul og takk fyrir það gamla... vona að hallir springi nú ekki í tættlur þessi áramótinn. og svo er að kvitta fyrir sig í skjóðuni hér að neðan...
Með svaka kveðjum frá dk.... Mummi og Árný Lára laugardagur, desember 11, 2004fimmtudagur, október 07, 2004
Daginn öll ég veit að ekki hefur mikið verð skrifað hérna... enda erum við með hvort sitt bloggið líka.. þannig að það er eitthvað lítið til að skrifa um hérna...
en málið er að ég er að vinna í að endurskipuleggja síðuna og mun hún koma með nýju og breittu útliti innan skamms....(eða seint um síðir) og þá munuð þið sjá hvað við ættlum okkur með síðuna... en annars er allt bara í stuði... og ég fer að setja inn nyjar myndir... bara nóg að gera... kv Mummi danadjöfull mánudagur, september 13, 2004
Heldur er orðið haustlegt um að lítast hjá okkur í kóngsins Köben!! Laufin orðin gul á trjáunm og farin að falla í miklu magni. Rok og rigning telst nú til hversdagslegra hluta og hitinn hefur dottið undir 15 gráður yfir daginn sem að hefur ekki gerst síðan við komum fyrst í byrjun júlí. En allt gengur vel hjá okkur skötuhjúum. Í þessari viku byrja 3 áfangar af 4 sem ég tek en einn byrjaði í síðustu viku svo að núna fara hlutirnir að gerast. Mummi er búinn að vera að fá vinnu tvo daga í viku hjá Wilson sem er flutningsfyrirtæki en í dag komu betri fréttir og líklegast fer hann að vinna á lager 5 daga vikunnar í einhvern tíma og vonandi er möguleiki á fastráðningu þar!!!:D Ásgeir vinur hans Mumma úr öryggismiðstöðinni er að koma til okkar í vikunni og verður fram á sunnudag og svo er Ásdís frænka mín að koma með Hirti kærastanum sínum en þau gista ekki hjá okkur. En þau reka nú nefið vonandi inn til okkar:-D
föstudagur, september 03, 2004
Þetta líka frábæra veður búið að vera í dag. Yfir 20 stiga hiti og hin besta sumarblíða. Við skelltum okkur í svona Kanal siglingu og sigldum í svona 50 mínútur og var það alveg rosalega gaman. Við mælum sko með svona siglingu við alla sem eiga ferð til Kaupmannahafnar. Svo spókuðum við okkur á Strikinu og það var sko margt um manninn enda bauð veðrið upp á útiveruna.
sunnudagur, ágúst 29, 2004
jæja... en líða dagarnir... ég er búinn að vera að bæta við hlekkjum hérna á síðuna til hægri... og er búinn að flokka þá aðeins... og er enn að finna til hlekki og á eftir að koma með meira af þeim.. já eins og ég sagði í fyrri skrifum þá er ég búinn að setja inn meira af myndum og set inn meira von bráðar...
Ég og Árný fórum aðeins í bæinn til að kynna okkur hvernig Köben er að næturlagi og um helgar... við brugðum okkur í tívoli til að byrja með (árskortið heldur búið að borga sig) og sáum þar ljósa sýningu mikla og flugeldana.. svo löbbuðum við niður Strikið og þá mátti sjá djamm glaða dani og túrista... og ekki fóru nú landar okkar á milli mála... enda algerir dónar upp til hópa.. einnig mátti sjá fullt af götubetlurum og öðru fólki sem var að skemmta gegn frjálsum framlögum... sumir góðir og aðrir algert rusl... já og svo voru matstaðir opnir sem og staðir sem selja ruslfæði mcD og kónga borgara og kjúlla staðurinn KFC og voru þeir flestir opnir til 6 á morgnanna alla daga vikunnar... og opna aftur um 10... og þegar við vorum að bíða eftir lestinni þá urðu á vegi okkar 15 sníglar að heiman... veðrið var rosa gott í allt gærkvöld og þurrt og stjörnubjart... ekki var nú meira gert það kvöldið... laugardagur, ágúst 28, 2004
jæja þá var ég að setja inn meira af myndum frá því að nína og co og strákarnir voru hérna hjá mér... og til að koma þessu öllu fyrir þá þurfti ég að eiða því elsta sem var þarna.... meira kemur.. hef meira þarf bara að vinna það og setja það inn..
góða skemmtun.... laugardagur, ágúst 21, 2004
Í dag höfum við tekið lífinu með ró. Veðrið brestur á með skúrum en stefnan er tekin á Tívolí í kvöld. Jón hlakkar náttúrulega mikið til að fara í öll tækin og svona en ég get ekki beðið eftir að sjá flugeldasýninguna:-D Ég sendi bara Mumma með Jóni í tækin þvi að ég er ekki alveg búin að mana mig upp í þetta hehehe. Á morgun erum við að spá í að fá bílinn lánaðan hjá pabba og keyra eitthvað. Ég ætla að sýna Jóni skólann minn og svo kíkjum við á eitthvað fleira skemmtilegt. Og nú er bara um að gera að hafa gott veður á morgun!!!
þriðjudagur, ágúst 17, 2004
Þá erum við sameinuð á ný hérna í Köben og mikið ósköp er það nú notalegt:-D Við Jón bróðir minn lentum í gærkvöldi klukkan 21:10 að staðartíma eftir 1 og1/2 tíma seinkun. Svo bara tókum við lestina heim og mikið var nú gott að koma heim loksins. Mummi og Jón sváfu svo lengi í morgun en ég haskaði mér af stað í skólann um hálf 9. Skólinn er mjög flottur og fólkið úr öllum áttum og held ég að þetta verði alveg rosalega skemmtilegt. Í dag erum við svo bara róleg, ætlum út í Fisketorvet að fá okkur Pizzu og svo látum við bara hlutina ráðast.
sunnudagur, ágúst 15, 2004
Daginn gott fólk þá er að koma að því. Arný mín er að koma aftur út til mín. ég er búinn að vera hérna einn og yfirgefin í mánuð. og er búinn að sakkna hennar ógurlega mikið allan þennan tíma en hún kemur til mín um 20:00 á morgun og verða þá mikkilir fagnaðar fundir. og kemur með hanni jón bróðir hennar til að skoða landið í viku tíma eða svo. og verður bloggað mikið eftir það. ég hef svo sem ekki verið of duglegur við það en það kemur allt.. meira síðar...
|
||