Til Baka


Þórðarbúð, mánudaginn 3. október 2011

Síðan komin í gang aftur! Takk, Hafliði fyrir að græja það.

Undir "Dagskrá" í stikunni á forsíðu síðunnar má sjá það sem er á döfinni hjá okkur til áramóta. Bæði það sem er á dagskrá á mánudagskvöldum, þegar fundir eru, og einnig hvaða námskeið eru í gangi hverju sinni. Dagskráin er keyrð í Goggle Calendar svo það er auðvelt að tengja það við sitt eigið Google Calendar. Okkar notendanafn er "bjsv.arsol".

Í kvöld er farið í börur í bíl, og næsta mánudag verður farið í leitartækni.

Fundargerðir aðalfunda 2010 og 2011 eru nú komnar á vefinn undir "Um okkur > Fundagerðir".

Þórðarbúð, fimmtudaginn 28. apríl 2011

Loksins, eftir margra mánaða streð við viðgerðamenn hefur síðan opnast á nýjan leik.
Því fer loks að komast á skriður á nýjan leik í formi frétta og fleira.

Tenglarnir hér til vinstri eru horfnir, og þarf að skoða það nánar.

Kv. vefstjórinn.

28. júní 2010

Hefðbundið vinnukvöld var í kvöld. Góð mæting! Áfram rætt um hálendisverkefnið, og eru menn spenntir fyrir þessu.

Svo er hafin vinna á að klæða gamla húsið okkar. Það verður því gaman og glæsilegt að sjá þegar það hefur fengið andlitslyftingu. Þá á einungis eftir að klára vegg austanmegin við bílastæðið, og vinna í lóð á suð-vestur horni lóðarinnar.

24. júní 2010

Nokkrir úr sveitinni sóttu fund á Héraði þar sem skipulag hálendisverkefnisins var rætt. Ársól fékk úthlutaða eina viku í verkefninu, 23.-30. júlí, og verðum við staðsett á Kili. Þegar hafa átta félagar lýst yfir áhuga á að fara, og er verið að skipuleggja hvenær hver verður þessa vikuna.

Hálendisverkefnið er frábært tækifæri fyrir félaga sveitarinnar þar sem mörg misjöfn mál koma í hlut þeirra að leysa meðan á dvöl á hálendi stendur. Það væri því frábært ef veður yrði líka gott því gaman er að skoða hálendi landsins í góðu veðri. Þeir sem fóru 2008 voru mjög heppnir með veður og tókst verkefnið þá með eindæmum, en sveitin var staðsett það sumar að Fjallabaki.

15. júní 2010

Malbikunarverktaki Fjarðabyggðar lauk nú í dag malbikun á bílastæði neðan við aðalveginn hjá húsinu okkar. Það er því komin frábær aðstaða fyrir sveitina sem og aðra á Reyðarfirði að sjóasetja. Glæsilegt!

6. júní 2010

Sjómannadagurinn þetta árið rann ljúflega ofan í gesti sveitarinnar sem komu hér í kaffi. Svipaður fjöldi mætti og í fyrra eða um 180 manns. Það var óljóst hvort bátsferðir yrðu fyrir börnin þar sem rifa kom á bátinn daginn áður þegar hann var í fylgd með sjóferðinni á Eskifirði. Það reddaðist þó þegar við fengum lánaðan bát frá félögum okkar á Neskaupstað. Börnin voru því glöð, og erum við þakklát Gerpi mjög fyrir lánið. Það eru nefnilega krakkarnir sem fara hérna glaðastir eftir salibunu á bátnum!

21. maí 2010

Eftir vinnu drifu menn sig í að steypa viðbót við rampinn sem er hér við neðan veg og liggur út í sjó. Rampurinn var stækkaður um helming og er því komin góð aðstaða til að sjósetja fyrir sveitina og aðra sem eru með bát.

Að auki við þessa steypuvinnu var grunnur lagður að stækkun á búnaðar- og búningageymslu sveitarinnar. Stækkun verður að norðanverðu og mun geymslan stækka um helming. Við það mun koma pláss að auki fyrir stóla og borð úr sal.

17. maí 2010

Hér í kvöld hafa menn verið stórhuga og tekið aldeilis vel til í húsakynnum sveitarinnar. Ekki veitir af víst sjómannadagurinn er í nánd en hann verður haldinn hátíðlegur 6. júní n.k. með kaffisölu. Einnig er verið að huga að stækkun á húsnæði hér bakvið ásamt því að klára varnarvegg á austanverðu bílastæðinu, en norðurveggur hans var kláraður í haust með aðstoð starfsfólks Alcoa Fjarðaáls.

20. apríl 2010

Um liðna helgi sátu átta félagar úr björgunarsveitinni námskeiðið Fjallabjörgun 1 sem haldið var í Þórðarbúð. Leiðbeinendur voru Kolbeinn frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Anton frá Súlum á Akureyri, en þeir eru báðir starfandi undanfarar og sprenglærðir í fjallabjörgun. Bóklegi hlutinn fór fram í Þórðarbúð og verklegar útiæfingar á Hólmahálsi. Voru menn sammála um að námskeiðið hefði verið bæði fróðlegt, spennandi og tekist í alla staði vel.

Af þessum átta manna hópi voru nokkrir nýliðar sem hafa gengið í sveitina í vetur og er það styrkur að fá inn nýtt fólk. Þetta námskeið var eitt af þeim sem tilheyra "Björgunarmaður 2" en til að ljúka þeim hluta þá þurfa menn að klára 80 klst. af námskeiðum af eigin vali og einnig "Björgunarmaður 1".

22. mars 2010

Margt hefur á daga okkar drifið hér í björgunarsveitinni. Við hittumst hér hvert mánudagskvöld til skrafs og ráðagerða og dittum að eignum okkar, þar á meðal bílum og báti. Svo höfum við verið dugleg að sækja námskeið en það er markmið okkar næstu 3 árin að allir meðlimir á útkallsskrá verði með menntunina "Björgunarmaður 1". Sem dæmi um námskeið sem við höfum sótt þá er fyrsta hjálp 1, ferðamennska, leitartækni og slöngubátar.

Þessa dagana eru leitarhundar Landsbjargar ásamt þjálfurum við æfingar í Oddskarði og má segja að hópurinn hafi fengið öll þau veður sem hægt er að fá! Um helgina var hið fínasta veður, sól og blíða, en í dag var skollinn á stórhríð og stormur. Það er því frábært að hundar og menn fái svona fjölbreytt veður því eins og við öll vitum þá er allra veðra von á Íslandi og þörf á leitarhundi þegar veður er sérstaklega slæmt.

Við viljum minna á að nýjir félagar eru ávallt velkomnir til okkar hvert mánudagskvöld!

18. janúar 2010

Gleðilegt ár!

Rólegur hefur ritari vor verið síðustu vikur við skrif. Hið hefðbundna hefur átt sér stað hjá okkur í sveitinni eða sala á flugeldum, brenna og flugeldasýning, ásamt því að jólasveinarnir voru aðstoðir á aðfangadag. Það var  glatt á hjalla þegar fjórir rauðklæddir bræður gengur hús úr húsi á Reyðarfirði með hangilæri utanklæða ásamt gjöfum handa börnum bæjarins. Mikil gleði eins og endra nær þó einhver börn hafi orðið smeyk við þá síðskeggjuðu!

Í dag, mánudaginn 18. janúar, var björgunarsveitum á Austurlandi afhentur styrkur frá samfélagssjóði Alcoa að upphæð 12,5 milljón kr. Þessari upphæð, sem sett verður í sérstakan sjóð björgunarsveitanna, er ætlað að styrkja þær til menntunar og þjálfunar. Athöfnin var haldin í húsi Ársólar, Þórðarbúð, að viðstöddu félögum frá sveitunum sem um ræðir. Mikill gleðidagur fyrir björgunarsveitarfólk á Austurlandi, og einnig fyrir ungliðastarf sveitanna en þær munu njóta góðs af að auki. [Skoða má nánari frétt með mynd hjá Austurglugganum hér]

20. desember 2009

Nú er búið að laga dagskránna, og verður hún uppfærð eftir bestu getu. Námskeiðin voru tekin út af henni, og sett á sér síðu sem má nálgast út frá síðu dagskrárinnar. Svo má sjá hér, út frá síðu námskeiðanna, hvaða námskeið eru skylda til að verða fullnuma "Björgunarmaður 1".

16. desember 2009

Útkall á hæsta viðbúnaðarstigi kom í dag, en trilla fórst við Skrúð. Lesa má nánar um þetta útköll og önnur sem sveitin er boðuð í hér.

7. desember 2009

Betur fór en á horfðist s.l. föstudag þegar sveitin fór ásamt tveimur öðrum í útkall ofan Eskifjarðar. Þangað var sótt illa lærbrotin rjúpnaskytta en hún var ein á ferð og kom farsíminn henni til bjargar. Rjúpaveiðitímabilinu lauk svo í gær og var þetta því eina útkall sveitarinnar í tengslum við þessa vertíð og erum við þakklát að ekki hafi þau verið fleiri.

Athugið að hægt er að fylgjast með útköllum sveitarinnar á útkallssíðunni, hérna.

30. nóvember 2009

Nú er vetrarríki á Austurlandi, og mikill snjór í byggð. Við í björgunarsveitinni hvetjum fólk til að fara varlega þegar það er akandi og gæta fyllstu varúðar því undir snjónum getur leynst hálka. Það skal því fara sér hægt. Einnig er gott fyrir gangandi vegfarendur að fara varlega því það sama gildir um þá að undir snjónum á gangstéttum og annars staðar gæti leynst hálka. Brýnum að auki notkun endurskinsmerkja!

*-*-*-*

Um helgina sátu Harpa Vilbergsdóttir og Steinar Ísfeld Ómarsson, meðlimir í stjórn bjsv., ásamt Eiði Ragnarssyni, meðlimi í stjórn Slysavarnaf. Landsbjargar, fulltrúaráðsfund að Ásvöllum í Hafnarfirði. Þar var farið yfir ýmis mál, og ber þar hæst flugeldasalan 2009. Í ár er mikið af nýjungum, bæði í formi terta, gosa og raketta, og hvetjum við fólk að kynna sér þetta þegar flugeldasalan hefst, en það verður mánudaginn 28. desember.

Við ætlum að stefna að því að hafa í sýningu myndband sem verið er að útbúa er sýnir hvernig terturnar eru þegar þær springa. Mjög spennandi!!

23. nóvember 2009

Unglingadeildin okkar lenti í hasar um helgina þegar hún fór í helgarferð í Snæfell. Á heimleiðinni skall á brjálað veður, og voru ferðalangarnir ansi lengi að keyra neðan út Snæfelli og í byggð. Það kom þó ekki að sök því gleðin var mikil, og fannst krökkunum þetta gera ferðina ennþá meira skemmtilegri! Því hvað er betra en óttablandin spenna og fjör upp á hálendi?

Jólin eru komin í hús sveitarinnar því í kvöld voru jólaseríur hengdar upp í gluggana. Það er notalegt að hafa falleg og björt ljós til að lýsa upp gluggana í þessu svartamyrkri sem er nú.

16. nóvember 2009

Félagar hittust í kvöld í húsi sveitarinnar og skeggræddu um málefni líðandi stundar. Svo var hafist handa við að telja þær dósir sem sveitinni hefur borist, en í stóru tunnurnar austan við húsið geta bæjarbúa komið með flöskur og dósir. Allur ágóði rennur til sveitarinnar. Eftir vel unnið verk var gólf nýja hússins að lokum þrifið.

Athugið að undir "Um okkur > Fundagerðir" hefur fundagerð fyrir aðalfund ársins 2009 verið sett inn. Einnig fundagerð fyrir aðalfund síðasta árs, en hún gleymdist þangað til núna.

9. nóvember 2009

Salan á neyðarkallinum var um helgina, og gekk salan vonum framar. Ársól þakkar öllum þeim sem keyptu kall!

2. nóvember 2009

Fyrsta æfing unglingadeildanna á Reyðarfirði og Eskifirði var haldin s.l. laugardag.

Æfingin fólst í leit og fyrstu hjálp á fjögurra manna hópi sem lenti í vandræðum í gönguferð á fjalli þannig að einhverjir þeirra slösuðust við fall og einn varð viðskila við hópinn.

Æfingin gekk mjög vel og voru allir sáttir með framkvæmd hennar. Þeir sem stóðu að æfingunni vilja þakka fyrir frábæran dag og í framhaldinu verður sett upp önnur æfing síðar í vetur.

26. október 2009

Um liðna helgi fóru 6 félagar frá Ársól á landsæfingu Landsbjargar sem haldinn var á Reykjanesi. Fjölmörg verkefni voru í gangi, og tók hópurinn þátt í rústabjörgunaræfingu sem gekk vel. Einhverjar myndir voru teknar, og koma þær á myndasíðuna fljótlega.

Í kvöld var svo hefðbundinn mánudagsfundur. Góð mæting var hjá félögum, og nýtt fólk kíkti við! Allir velkomnir að koma á mánudögum og kynna sér það sem við erum að gera. Hittumst kl. 20:00.

19. október 2009

Í kvöld komu til sveitarinnar tveir nýjir félagar. Það er frábært að fá nýtt fólk til liðs við sveitina og bjóðum við Kristján og Loga Stein velkomna!

Að auki var farið yfir búnað sem tekinn verður með um helgina á landsæfingu sem er haldinn á Reykjanesi. Þangað fara 10 félagar, en þeir eru reyndar dreifðir um landið vegna náms og annarra starfa og verða þeir teknir upp á leiðinni suður.

5. október 2009

Vetrarfærð er komin á Austurlandið og var því drifið í því kvöld að setja viðeigandi dekk undir bílana okkar. Einnig var allsherjar tiltekt í húsinu, og aðstaðan í nýja húsnæðinu þrifin. Hér er því orðið hreint og fínt!

3. október 2009

Fyrsta laugardag októbermánaðar mættu galvaskir sjálfboðaliðar frá Alcoa Fjarðaáli (ACTION verkefnið) til að aðstoða okkur við að reisa varnarvegg norðanmegin á bílastæðinu við húsið. Veðurútlit þennan dag var ekki mjög skemmtilegt framan af, en þó mættu til okkar 14 starfsmenn Alcoa (hluti hafði þó fyrr um daginn aðstoðað Rauða Krossinn við útburð á fatasöfnunarpokum) ásamt nokkrum mökum og börnum.

Unnið var frá 13-17 þennan dag, og varð til þessi líka fíni veggur, en áframhaldandi vinna við vegginn austanmegin á bílastæðinu mun verða unnin af okkur í sveitinni síðar. Eftir velheppnaðan vinnudag launaði Alcoa fólkinu með pitsaveislu á Fjarðahótel, en Alcoa mun einnig gefa björgunarsveitinni peningastyrk.

Hér má sjá hópinn eftir góðan vinnudag í dæmigerðu íslensku veðri!

Standandi á veggnum fína, frá vinstri: Dagný Alda Hauksdóttir, Dagbjört Li Bryngeirsdóttir, Þorsteinn Jóhannsson,
Tristan Ingólfsson, Kristján Jónsson, Birkir Ingi Óskarsson, Eiður Ragnarsson, Hilmar Sigurbjörnsson,
Sigurður Ágúst Einarsson og Snjólfur Björgvinsson.

Standandi fyrir framan vegginn, frá vinstri: Haukur Guðjónsson, Bergur Kári Ásgrímsson (í vagni), Harpa Vilbergsdóttir,
Sigrún Sæmundsdóttir, Inga Lára Ásgeirsdóttir, Ingólfur Fannbergsson, Þórarinn Guðjónsson, Steinþór Þórðarson,
Karina Garska, Ketill Hallgrímsson, Aðalheiður Vilbergsdóttir, Björgvin Þórarinsson (sitjandi á vegg), og Jónas Pétur Bjarnason.

Á myndina vantar tvo starfsmenn Alcoa Fjarðaáls sem voru einnig þarna þennan dag,
þær Sigríði Guðmundsdóttur og Freyju Ómarsdóttur.

28. september 2009

Landsæfing verður hjá björgunarsveitum þann 24. október á Reykjanesi, og var mánudagsfundurinn nýttur í upprifjun á skyndihjálp. Þetta var kærkomið fyrir nokkra sem höfðu ekki farið á námskeið í talsverðan tíma.

Um liðna helgi var landsfundur umsjónarmanna unglingadeilda haldinn á Gufuskálum, og var okkar tengiliður þar Stefán Magnús Jónsson. Á fundinum var m.a. kynnt ný reglugerð um starfsemi unglingadeilda, ásamt því sem Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur hélt fyrirlestur um hópefli og starf með unglingum.

25. september 2009

Rætt var meðal félagsmanna að virkja síðuna betur, og mun Harpa Vilbergsdóttir, ritari stjórnar, taka að sér vefstjórnina. Fylgist því grannt með því fréttir af mánudagsfundum sveitarinnar ásamt öðrum viðburðum munu koma hér inn eftir því þeir gerast. Einnig verður reynt að setja myndir inn eftir því sem við á.

21. september 2009

Félagar hittust á vikulegum mánudagsfundi og skeggræddu hin ýmsu mál. Hæst bar þó á góma landsæfing Landsbjargar sem verður haldin á Reykjanesi þann 24. október n.k. Talsverður fjöldi félaga ætlar að mæta ásamt nokkrum úr unglingadeild. Einnig ræddu félagar um inflúensuna sem nú er mikið í fréttum og hvaða viðbrögð verða höfð ef skæður heimsfaraldur mun koma.

18. september 2009

Aðalfundur björgunarsveitarinnar var haldinn í gær. Metmæting var, eða 15 manns sem verður að teljast mjög gott! Ný stjórn var kosinn, og ber þar hæst að Eiður Ragnarsson, formaður sveitarinnar s.l. 12 ár, sagði af sér og var Ingi Lár Vilbergsson, varaformaður síðustu ára, kosinn formaður. Aðrir í stjórn voru kosnir og skiptu þau með sér verkum sem hér segir: Andri Rafn Sveinsson, varaformaður, Steinar Ísfeld Ómarsson, gjaldkeri (endurkjör), Harpa Vilbergsdóttir, ritari (endurkjör), Gylfi Frímannsson, meðstjórnandi, og varamenn Eiður Ragnarsson og Kjartan Svavarsson.

Fundargerð aðalfundar mun koma á síðuna fljótlega, þá hér.

3. ágúst 2009

Sitt lítið af hverju verið brasað í sumar.  Hæst ber þó ferð unglingadeildarinna Ársólar á Landsmót unglingadeilda SL sem haldið var á Hnífsdal dagana 15.-19. júlí.  Fór stór og myndarlegur hópur héðan frá Reyðarfirði á þetta mót, en taldi hópurinn alls 25 manns þar af voru umsjónarmenn og bílstjórar 5.

Var þetta mót í alla staði hið besta og munu krakkarnir hafa skemmt sér stórvel í blíðskaðparveðri, í Hnífsdal, á Ísafirði og Bolungarvík en verkefni voru á öllum þessum stöðum fyrir krakkan að leysa.  Á laugardeginum fóru svo fram björgunarleikar þar sem keppt var í hinum ýmsu hlutum á milli liða og bar rauða liðið sigurorð af félögum sínum en als voru liðin 9.

Heim var síðan komið á sunnudagskvöld, og má segja að það hafi verið ákaflega þreyttur hópur sem skilaði sér heim á sunnudagskvöldinu.

Hópurinn í upphafi ferðar..

Fleiri myndir hér..:http://picasaweb.google.com/Asbyrgi/LandsmotUngllingadeilda2009#5363118531584942082

 

23. júní 2009

Lítið hefur verið sett hér inn að undanförnu þó svo að mikið hafi verið í gangi.  Mesta púðrið hefur þó farið í húsið en nú vantar ekki mikið uppá að allt sé klárt, einungis eldhús og gólfefni í salinn, en þó á eftir að klæða gamla húsið að utan, en búið er að panta klæðningu og er hún væntanleg fljótlega.

Flugeldasala gekk nokkuð vel þessi áramót, og við erum nokkuð sáttir, því að viðbúið var að það yrði samdráttur í sölu þetta árið.  En ljóst er að þegar að næstu flugeldasölu kemur verðum við að halda vel á spöðunum til að passa afkomuna.

Sveitin tók þátt í björgunaræfingu sem haldi var á Fjarðarheið ií vetur, og voru þar um 70 manns frá öllu Austurlandi og Dalvík, við æfingar.  Gekk þessi æfing vel, fengum við gott verður og aðstæður voru góðar að öðru leyti.

Unglingastarfið er í fullu fjöri, nýr umsjónarmeður hefur verið með krakkana í vetur, en hún heitir Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir og hefur starfað með Slysavarnardeildinni Báru á Djúpavogi áður en hún kom hingað til okkar.  Stefnt er á landsmót unglingadeilda í sumar, en það er haldið á Vestfjörðum nánar tiltekið á Hnífsdal og eigum við því nokkuð langt ferðalag fyrir höndum.

Sjómannadagskaffið var vel sótt þetta árið og var met mæting, hagnaður af kaffinu fer í að kaupa eldhúsinnréttingu í eldhúsið okkar, en stefnan er sett á að vera með eldhúsið klárt fyrir næsta sjómannadagskaffi.

Við munum skella inn fleiri nýjum myndum fljótlega og taka okkur á í uppfærslu frétta..

Með sumarkveðju Stjórn Ársólar

 

   


Björgunarsveitin Ársól - Þórðarbúð - Reyðarfirði - 4741310 - arsol@simnet.is

Vefstjóri: Harpa Vilbergsdóttir - harpav@hotmail.com