Fleirri myndir frá aðalfundi eru hér....

Aðalfundur
Átthagafélags Vestmannaeyinga
á Reykjavíkursvæðinu.

Var haldin á Kornhlöðuloftinu 18. mars 2007.
Að venjubundnum aðalfundarstörfum loknum,
flutti Jón Bernódusson ( Nonni í Borgarhól) okkur frásögn af
“ villingunum í miðbænum” ,
og fór hann á kostum í þessari frásögn sinni. Fundargestir skemmtu sér mjög vel yfir þessum minningum hans Nonna.

Átthagaspilið var kynnt og tilboð á því til félagsmanna. Það tilboð gildir til 1. maí 2007 (nánari upplýsingar hjá stjórnarfólki )
Félagið fékk spil að gjöf frá Astrid. Stjórnin ákvað að fundargestir
skrifuðu nafn sitt á miða og dregin var út einn lukkumiði.
Sá heppni var Kristján Ágústsson, ( maður Kristínar Vigfúsdóttur (Waagfjörð) ).

Björn Jónatansson ( Brimhólum) var sérstakalega heiðraður,
fyrir frábæra mætingu
á nánast alla viðburði á vegum félagsins frá stofnun þess.
Hann fékk átthagaspilið að gjöf og var fagnað vel af fundargestum.

Hafsteinn G. Guðfinnsson leiddi fjöldasöng af sinni alkunnu snilld.

Því miður raskaðist aðeins áður auglýst dagskrá. Elliði Vignisson, bæjarstjóri,
komst ekki upp á land vegna veðurs, ( “Því miður, ófært. Athuga kl. fimm” )
en sendi fundargestum sínar bestu kveðjur
og Hafsteinn Þórólfsson forfallaðist vegna veikinda

Fundarstjóri var Grétar Guðni Guðmundsson.

Við þökkum öllu þessu frábæra fólki fyrir að gera okkur stundina eftirminnilega.

Stjórn átthagafélagsins 2007:
Elías Stefánsson
Guðný Helga Guðmundsdóttir
Hrafnhildur Hlöðversdóttir
Marta G. Hallgrímsdóttir
Sigfríð Hallgrímsdóttir
Sigurður Guðnason
Sigurjón Guðmundsson
Sigurjón Sigurjónsson
Vignir Sigurðsson
Tónlistarstjóri:
Hafsteinn G. Guðfinnsson.