|
Ég sjálf
Myndir
Gestabók
Forsíðan
Stjörnumerkið mitt
Ættartréð mitt

Dagbjört Nótt
Kolbrún Sól
Karl Jóhann

Adam Ingi
Arndís Bára
Atli Dagur, Benna Sóley og Olga Snærós
Bjartey María
Bjartmey Jenný
Björn Grétar
Einar Andri
Harpa Mjöll
Hólmfríður og Björn Hermann
Hákon Ernir
Heiðrún Ósk
Hildur Bára
Júlían Vignir
Kolbrún Ósk
Kristófer Snær
María Karen
Nikola Kristinn
Sigurður Viðar
Telma
Þorvaldur
|
  
Ég er 4 ára skotta og er á Bláa kjarnanum á Leikskólanum Dalborg á Eskifirði. Mér finnst svakalega gaman að syngja og leika mér, ég verð eiginlega alltaf að hafa eitthvað að gera því annars verð ég bara pirruð. Ég er svakalega dugleg að hjálpa til og þegar mamma eða pabbi ætla að þrífa heima verð ég að fá að vera með og mér finnst svakalega gaman að fá að vaska upp þó mamma reyni að malda í móinn með að við eigum uppþvottavél. Mottóið mitt er Ohana, það þýðir fjölskylda og að enginn er skilinn útundan. Ég á tvær stórar systur sem ég elska ofsalega mikið og hermi eftir þeim út í ystu æsar og svo er ég búin að eignast lítinn bróður sem ég er alltaf að hjálpa mömmu að passa – stundum segir mamma meira að segja að ég sé of dugleg að hjálpa til. Uppáhaldsliturinn minn er bleikur og uppáhaldsmaturinn minn er kjötbollur.
Ef þú vilt vita meira um mig farðu þá í krækjulistan hér til vinstri og ýttu á “Ég sjálf”.
.
Grafík frá:
Bergþóra Linda
Copyright©
2002 -
2005.
|