Um mig

 

Ég fæddist í Reykjavík þann 6. ágúst 1997, klukkan 7 mínútur í 5 að degi til. Ég er eineggja tvíburi og fæddist fyrst, heilum 10 mínútum á undan systur minni, Kolbrúnu Sól. Ég var 47 sm á lengd og 9 merkur að þyngd. Það er bara pínulítið en það er bara vegna þess að mér lá svo á í heiminn að ég kom fjórum vikum á undan áætlun. Það var um miðja nótt sem mamma missti legvatnið og vegna þess að við vorum tvær í maganum hennar var hringt á sjúkrabíl og mömmu keyrt upp á Landsspítala. Sjúkraflutningamennirnir voru ekkert að flýta sér og stoppuðu í sjoppu til að kaupa bensín og keyptu kók fyrir mömmu. Þegar mamma kom á spítalann hættum við við að koma og það þurfti að koma mömmu af stað, eins og sagt er. Mamma var að eiga í fyrsta skiptið og var svo viss um að þetta væri vont að svæfingalæknirinn gaf henni mænudeyfingu. Mamma fann ekkert eftir það og þurfti að tengja bumbuna við mónítór, sem er tæki sem mælir hríðarnar. Amma mín (Súsanna) var viðstödd og var mömmu stoð og stytta í þessu og stundum fannst mömmu nú nóg um hvað hún var afslöppuð yfir þessu. Eftir að mamma mátti hjálpa mér og ýta mér út úr maganum sínum tók það mig ekki nema hálftíma að koma. Mér var ekki leyft að leggjast hjá mömmu því ég var svo lítil og var sett í hitakassa á vökudeild spítalans þar sem ég var fyrstu 5 dagana. En ég var nú tekin úr kassanum annað slagið til að gefa mér að drekka og leyfa mömmu og pabba að halda á mér. Mamma var svo skotin í mér að hún tímdi eiginlega ekkert að fara frá mér til að sofa og segir að ég hafi verið eins og pínulítil dúkka með helling af svörtu hári.






Frá því að ég var tveggja og hálfs árs og þar til ég var að verða fimm ára bjó ég heima hjá ömmu minni og manninum hennar Halla, sem mér finnst svakalega vænt um. Við bjuggum í Njarðvík og í Mývatnssveit þar sem amma og Halli búa núna og eru með kindur. Á meðan við bjuggum hjá þeim eignaðist ég litla systur og mamma og pabbi skildu. Þegar mamma var orðin hress aftur flutti ég til hennar á Eskifjörð og höfum við skvísurnar allar dafnað þar vel. Mamma kynntist æskuástinni sinni aftur, honum Jóni Svani, og hann flutti til okkar og er núna kennari í skólanum mínum og mér þykir mjög vænt um hann og finnst eins og hann hafi alltaf verið pabbi minn. Alvöru pabbi minn hét Stefán Heiðar Brynjólfsson en hann lést árið 2004.