Verið hjartanlega velkomin á sameiginlega síðu okkar systkinanna. Hér verður hægt að fylgjast með okkar stóru fjölskyldu. Dagbjört Nótt og Kolbrún Sól komu fyrstar af okkur, þær eru eineggja tvíburar og eru að verða 8 ára í ágúst. Sesselja Bára kom næst og er ný orðin 4 ára og svo kom litli snáðinn okkar hann Karl Jóhann sem er ekki orðinn eins árs.
Við búum á Eskifirði sátt og sæl og bröllum margt skemmtilegt saman.

Ef þið viljið skoða myndir af okkur erum við með sameiginlegt albúm þar sem er um auðugan garð að gresja. Okkur finnst svo gaman að sjá hverjir eru að reka inn nefið þannig að það er um að gera að skrifa í gestabókina okkar. Endilega skoðið síðurnar okkar sem við erum með hvert fyrir sig til að kynnast okkur betur. Annars er í sameiginlegri dagbókinni okkar skrifað um hvað við erum dugleg að stækka og dafna og hvaða prakkarastrik
hafa verið framin. Eða bara hvað hefur á daga okkar drifið. Njótið vel.
Grafík frá: