|
Um mig


|
Ég fæddist í Reykjavík þann 20.janúar árið 2001, klukkan 8 mínútur yfir 9 að morgni til. Ég var 54 sm á lengd og 17 ½ mörk að þyngd. Ég var búin að stríða mömmu svakalega oft með að vera að koma en hætti alltaf við. Hún var búin að fara 8 sinnum upp á Landsspítala en ég lét ekki bæra á mér. Mamma var eiginlega farin að halda að ég kæmi ekkert svo hún labbaði út um allt með samdrættina sína. Daginn áður en ég kom í heiminn fór hún í Kringluna og gekk út um allt og fékk sér að borða í mestu rólegheitum. Þegar hún kom heim hélt hún að hún væri bara með í maganum frá matnum og fór og lagði sig. Þremur klukkutímum seinna var hún mætt upp á spítala eina ferðina enn og tók ekkert með sér nema mæðraskýrsluna. Þá var ég tilbúin og mamma komin með 6 ½ í útvíkkun, eins og sagt er. Ég var svo stór að það gekk ekki vel að koma mér í heiminn en mér fannst líka svo gott að vera í bumbunni á mömmu að ég var ekkert að hjálpa þeim við að ná mér út. Það tók mömmu næstum því 10 klukkutíma að koma mér í heiminn. Þegar ég loksins kom var ég látin utan á magann en mér fannst það ekkert eins gott og grét alveg heil ósköp en lungun mín voru svo góð að það heyrðist örugglega til mín í Kína. Ég var með svakalega mikið og svart hár og svo stórar kinnar að ég var eins og 6 mánaða gamalt inúítabarn.
Frá því að ég fæddist og þar til ég var fimm mánaða áttum við mamma heima í Hafnarfirði með Kidda frænda en þá ákvað mamma að flytja aftur austur til Eskifjarðar þar sem hún átti heima sem barn. Þar náði mamma að hressa sig við og einbeita sér betur að því sem skipti hana mestu máli, sem erum við stelpurnar. Systur mínar fluttu til okkar þegar ég var um 15 mánaða og ég hef alltaf fengið að vera með þeim hvað sem er að gerast. Mamma kynntist æskuástinni sinni aftur, honum Jóni Svani, og hann flutti til okkar og er núna kennari í skólanun hérna á Eskifirði og mér þykir mjög vænt um hann og hef aldrei þekkt annan pabba en hann. Alvöru pabbi minn hét Stefán Heiðar Brynjólfsson en hann lést árið 2004.
|