Brandari sumarsins 1994
Tölvuherbergið í íbúðinni okkar snýr út að útivistar eða grænu svæði og í dag hafa unglingar úr Kópavogi verið að snyrta beðin hér rétt fyrir utan gluggann minn sem stendur opin sökum veðurblíðu. Vinna unglinganna er í hlutfalli við kaupið: lítil og í raun bara til málamynda.
Áðan fóru tveir drengir í keppni í að höggva framan af lítilli trjágrein með rekunni sem þeim var falinn. Keppnin stóð í á að giska 5 mínútur og sýndist mér sá minni hafa betur. Þá berast stöku köll eða ómur frá unglingunum til mín, aðallega frasar úr bíómyndunum en líka stöku athugasemdir sem eiga að vera töff.
Ég hef ósjálfrátt farið að hugsa til sumarsins 1994 þegar við félagarnir úr Ártúnsholtinu, nýfermdir, vorum að stíga okkar fyrstu skref í unglingavinnunni. Það var góður tími og gengum við óhræddir til verks allt þar til Jón byrjaði að vinna. Hann var líka úr öðru hverfi, reykti og svo var hann með tattú!! (ákveðnum aðilum stóð sko alls ekki á sama þegar þeir þurftu að vinna með honum.)
Allavega þá var þetta góður tími, við hlustuðum á Looser með Beck og Crast Test Dummies með lagið MMM MMM MMM MMM, þótti mjög gott.
Aulahúmorinn var einnig allsráðandi og man ég enn þá eftir brandara sumarsins. Við vorum að vinna í einhverju beðinu þegar Hjörtur Snillingur snéri hrífunni við, setti við kinnina á sér dró hana upp og niður og sagði svo ,,Hey, strákar ég er að raka mig"
Svipurinn á honum, tónfallið, og glottið eftir á er gersamlega fast í huga mér.
Hámarki aulahúmorsins hafði verið náð, við vissum að enginn myndi toppa þetta. (þó mikið hafi verið reynt)
posted by Gudni Mar Hardarson 13:59 X
Með lífsmarki...
Kæru lesendur
Í lífi hvers Íslendings kemur sá tími að hann hafi ekki mikinn tíma til að gefa sér tíma til að blogga í tíma og ótíma.(spekin vellur bara úr manni).
Uppá síðkastið hef ég sökum tímaskorts ekki gefið mér stund til að blogga. Líf mitt er skemmtilegt þessa daganna, vinnan mín er snilld og hef ég freistast til að taka aukavaktir sökum þessa, þá hef ég einnig verið aðeins að vinna í Árbæjarkirkju og að undirbúa Sæludaga í Vatnaskógi en þar verður spennandi dagskrá.
Það sem gerir vinnu mína öðru fremur skemmtilega er hvað samstarfsfélagarnir í vinnunni eru skemmtilegir. Í dagslok getur maður yfirleitt litið um öxl, ljómandi sem jónsmessusólin yfir atburðum dagsins. (þvílík skáldagáfa hjá mér í dag)
Svo er frúin komin heim eftir 8 daga í Köben. Gott að fá hana heim aftur.
Að lokum eru nokkrar heillaóskir...
Til hamingju Óli Jói með afmælið 15. júní
og Erna systir með afmælið þann 23. júní (maturinn var snilld)
og svo Hlynur með útskriftina úr HR og dúndurgott partý í Steinaselinu.
posted by Gudni Mar Hardarson 23:05 X
Gríðarleg vonbrigði með niðurstöðublaðamannafundar á Bessastöðum...
...ég sat spenntur við sjónvarpið með popp og kók þegar blaðamannafundurinn hófst minnugur fundarins á Bessastöðum sumarið 2000 þegar Ólafur tilkynnti um trúlofunina. Ég taldi mig vita hvað hann ætlaði að fara segja þjóðinni, en það er með harmi sem ég verð að viðurkenna að ég misreiknaði ég mig algerlega, Dorrit er ekkert ólétt!!
Ég hafði alveg séð þetta fyrir mér. Ólafur standandi við hlið hennar með fagurt málverk í bakgrunn og segjandi kumpánlega um leið og hann legði hönd á maga hennar: ,,Kæra þjóð. Það er með stolti í hjarta að við hjónin greinum ykkur frá því að nú á haustmánuðum kemur sá tími að Dorrit verður léttari."
Svo hefði hann slegið um sig með sínu alþekkta gríni og sagt. ,,Og þá er ég ekki að meina að hún sé að fara í megrun. (smá pása fyrir glottið) Nei, kæra þjóð það lifir víst lengi í gömlum glæðum." ,,Vonandi veitið þið okkur það tilfinningalega svigrúm sem meðgangan krefst."
posted by Gudni Mar Hardarson 16:49 X