Bessastaðir |
|
Velkomin í sveitina okkar |
|
Fréttir 2007 |

|
2. júní 2007 Sæl verið þið öll sömul og gleðilegt sumar sem loksins er komið. Nú er heldur betur kominn tími til að setja inn fréttir.
Fyrsta folald vorsins á Bessastöðum er fætt. Milla á það og er það hestur undan Vilmundi frá Feti.
Í dag eru skólaslit frá Grunnskóla Húnaþings vestra. Hér er mynd af Helgu og Önnu Maríu á árshátíð skólans sem var í mars. Fríða er harðákveðin með það að hún er líka komin í sumarfrí frá sínum skóla og ætlar því ekki í leikskólann fyrr en Helga og Magnús fara aftur í skóla. |
|
Á sumardaginn fyrsta fórum við á árlega sumarhátíð á Hvammstanga. 50 ár eru síðan “Fegrunarfélagið” stóð fyrir því að bjóða sumarið velkomið með viðhöfn og kveðja veturinn. Félagið stóð jafnframt fyrir því að gera garð við sjúkrahúsið og gróðursetja þar tré. Margir töldu það mikla bjartsýni, en nú 50 árum seinna er þar mjög myndarlegur garður og stór tré. Ein af félagskonum var Lilla, systir ömmu Lóu. |

|
18.febrúar 2007 Um síðustu helgi var Tjarnartölt á Gauksmýrartjörninni. Jói fór með Iðu og sigraði opna flokkinn, í öðru sæti var Pálmi Geir á Rakel frá Sigumundarstöðum, sem er bara 5 vetra. Guðný fór með Pegasus og varð í fjórða sæti í áhugamannaflokknum. Myndin hér að ofan eru fimm efstu í opna flokknum. Öll úrslitin má sjá hér á Gauksmýrarsíðunni.
Í gær fór Jói með Iðu á Bautatöltið í Skautahöllinni á Akureyri og endaði í 9. sæti, þó hann hafi ekki verið ánægður með höfuðburðinn á henni í hæga töltinu.
|

|
Pálmi og Rakel |
|
Jói og Iða |
|
Fimm efstu í áhugamannaflokki: Þorgeir og Apríl; Sigga og Erla; Sirrý Ása og Stakur; Guðný og Pegasus; Tommi og Spóa |
|
Þessi mynd er “fengin” af Gauksmýrarsíðunni. |
|
Þjóðgarðshátíð 2007 verður haldin á hefðbundunum tíma, þ.e. laugardaginn 25. ágúst. Myndir frá síðustu hátíð má sjá hér. Takið daginn frá og undirbúið ykkur undir gönguferð, hugmyndapott og gleði. |
|
Myndir frá síðustu Þjóðgarðshátíð eru komnar á vefinn hér.
Myndir af folöldunum 2007 eru komnar á vefinn. Milla og Sjóður, Önn og sonur, Glóð og dóttir, Komma og dóttir. Vantar enn af Frostrós og dóttur. |
|
17. september 2007
Aldeilis var nú glimrandi gaman á Þjóðgarðshátíðinni, takk fyrir komuna og skemmtunina. |
|
Kýrnar hamast við að bera þessa dagana og við höfum varla undan við að taka á móti nautkálfum. Já, það eru fæddir 18 kálfar og af þeim eru tvær kvígur. Við þurfum rækilega að endurskoða sæðingartækni Gunnars, þetta er býsna grunsamlegt og með ólíkindum að það fæðist 16 naut í röð. En það eru nú ennþá 18 kýr eftir að bera svo við erum ekki alveg úrkula vonar um að fá fleiri kvígur. En hér eru sem sagt nautkálfar til sölu...... |
|
Hér eru myndir úr reisu Bessastaðahjónanna til Valhallar í Danmörk. Það var hin fínasta gourmet ferð, bæði í skemmtun, mat, hrossum og félagsskap. |




|
25. nóvember 2007 Jæja, það hefur nú aðeins ræst úr hlutfalli nauta og kvígna frá því síðustu fréttir voru skráðar. 19. kýrin sem bar var Búrkolla og hún kom með tvær kvígur og voru þær hið snarasta skírðar Fyrirmynd og Eftirbreytni, enda við orðin langþreytt á að fá bara nautkálfa. Í dag eru bornar 31 kú og fæddar 10 kvígur en 22 naut, sem er býsna dapurt hlutfall fyrir mjólkurframleiðanda. |
|
Árshátíð Grunnskólans var um síðustu helgi. Magnús lék Bakkabróður og Helga lék ferðalanginn sem leisti fótaflækju Bakkabræðra. |
|
Nú eru 9 hross komin inn og á járn og fljótlega verða tekin inn 8 á viðbót. Hér á myndunum er Fríða Rós að ræða við tryppin. Bylting og Forseti voru áköfust í að láta klappa sér á snoppunni. |
|
21. desember. 2007 Hurðaskellir leit við hér á bænum, fótalúinn en kátur að vanda. Hann var í verulegum vandræðum þar sem hreindýrin neituðu að draga sleðann í snjóleysinu. Því varð hann að ganga á sínum gömlu fótum þegar bjart var, en á nóttunni getur hann notað galdraprik, fyrst hreindýrin eru með múður. Hann reyndi að hringja í pabba barnanna til að fá hann til að semja við hreindýrin, en krakkarnir sögðu að hann væri nú vanari að temja dýr. Fríðu fannst lurkurinn hans ekki þess legur að hann myndi vera langdrægur, en Hurðaskellir hélt nú annað. Helga og Magnús spiluðu á “kassana” fyrir hann og hann söng af mikilli innlifun með og hossaði sér í stólnum þar til hann datt í gólfið. Ekki fannst Fríðu mikið koma til sönghæfileika hans. |
|
Á nemenda-tónleikunum fékk Magnús að spila á rafmagnsgítar, sem var verulega skemmtileg upplifun. |
|
Á uppskeruhátíð Sundfélagsins Húna fékk Helga Rún viðurkenningu fyrir bestu bætingu í sundgreinum á árinu. Hún var mjög ánægð og stolt yfir því, og foreldrarnir auðvitað líka. |