Bessastaðir

Velkomin í sveitina okkar

Fréttir 2008

Sími á Bessastöðum: 451 2912

Jói GSM: 892 7981 ; Guðný GSM: 893 7981

Netfang: bessast@simnet.is

Höfundur síðunnar er Guðný Helga Björnsdóttir

29. maí 2008

Vorverkin langt komin. Búið að ganga frá flögum og dreifa dýrum áburðinum. Klippingar á skjólbeltum hafnar og farið að huga að plöntun í úthaga. Kýrnar komnar á beit og stóru kálfarnir komnir í sumarhagann, og það er ennþá maí. Segið svo að það sé ekki blíða við Hrútafjörðinn.

Fyrsta folald þessa vors er fætt. Það er undan ótaminni meri sem við fengum frá Hafsteini á Bálkastöðum þegar hann hætti búskap. Merin er notuð til að passa óreynda graðfola á sumrin og verður hún með Sjóði og Alexander í sumar, gaman að því..... Merin er undan Álmi frá Lækjamóti, en folaldið er merfolald undan Leifi heppna. En hann ber nafn ekki alveg með rentu því hann er svolítið óheppinn, þar sem fætur hans ganga ekki heilir til skógar.

Fríða og Tóta eru aldeilis góðir vinir.

 

Gleðilegt sumar

7. júní, 2008

Fórum í gær og fyrradag með 10 merar í kynbótadóm á Blönduósi. Þar er mjög góður völlur og aðstaða til að sýna hross. Það voru þrjár 4 vetra merar, þrjár 5 vetra merar, þrjár 6 vetra merar og ein meri sem Hlynur, verkneminn okkar, á, og sýndi hann hana auðvitað sjálfur með stakri prýði.

Árangur erfiðisins, eftir stranga vetrarþjálfun, var ágætur. Gulltoppa og Sameind voru efstar í 6 vetra flokknum. Sóllilja var önnur í 5 vetra flokknum og náði einkunn til að komast inn á Landsmót. Vinsæl og Hugsýn voru efstar í 4 vetra flokknum. Vinsæl fékk 8,54 fyrir byggingu, sem er magnað fyrir 4 vetra hryssu.

 

Hér eru upplýsingar og myndir af 4 vetra merunum og Lukku hans Hlyns.

 

Hér eru upplýsingar og myndir af 5 og 6 vetra merunum.

Fegurðardísin Vinsæl frá Halakoti

Landsmótsmerin Sóllilja frá Seljabrekku

Í morgunn kastaði Önn hestfolaldi og er pabbinn Grettir frá Grafarkoti. Hér er mynd af folaldinu nýkomnu í heiminn og stóra systirin Hera er að líta á bróðurinn.

Kynbótasýning Blönduósi: 3 efstu 6 v. merarnar:

Gulltoppa 8,02, Sameind 8,01 og Elding frá Fornusöndum 7,94.

Kynbótasýning Blönduósi: 3 efstu 5 v. merarnar:

Líf frá Syðri-Völlum 8,10, Sóllilja 8,06, Drottning frá Fornusöndum 7,95.

Kynbótasýning Blönduósi: 3 efstu 4 v. merarnar:

Vinsæl 7,82, Hugsýn 7,79, Hvönn frá Syðri-Völlum 7,77.

17. júní 2008

Hæ, hó, jibbíjei og jibbíjaje. Gleðilega þjóðhátíð.

Sláttur er hafinn á bænum. Vallarfoxgrasið er að byrja að leggjast, þó það sé ekki skriðið, svo það er ekki seinna vænna en að rífa það niður áður en það leggst alveg og ómögulegt verður að slá það.

Norðanáttin fer dálítið hratt þessa dagana og er ansi býsna köld, enda fljóta með henni ísbirnir.

Milla er köstuð hestfolaldi við Stimpli frá Vatni.

Hann er mikill fjörhestur.

Jói og Hlynur eru búnir að vinna stíft á Ströndinni undanfarið. Búnir að setja upp vindhest, sigurboga og voldugt hlið. Sjólbeltið á Atlaflötum var klippt niður, þar sem mikið af alaskavíðinum var að velta um koll. Krakkarnir voru mjög dugleg að bera afklippurnar að vagninum og fylla hann.

Svo var strandveisla um helgina.