Bessastaðir

Velkomin í sveitina okkar

Fréttir 2008

Okkar bestu óskir um gleðilegt ár framundan.

Takk fyrir allar skemmtilegar stundir á síðasta ári. Sjáumst hress og kát.

Ekki nógu snemma í janúar 2008.

 

Nú er búið að setja inn upplýsingar um hrossin sem verða í þjálfun og tamningu í vetur hér á bænum.

 

Hér er ströndin á Bessastöðum í allri sinni dýrð. Hún er unnin úr því sem sjórinn gefur okkur, rekaviði og stórum steinum.

Ströndin sómir sér vel hvort sem er í tunglsljósi eða dagsbirtu. Hvort sem hún er þakin snjó eður ei. Hvort sem einhver liggur á henni eður ei. Hvort sem hún skýlir trjám eður fólki. Hvort sem hún er til að príla í eður ei. Hvort sem fuglar sitja á henni eður ei. Bara nefndu það, ströndin klikkar ekki.

Sindri, fyrsta afkvæmi Millu okkar lofar býsna góðu. Hann lét lítið yfir sér í uppvextinum en er opinn fyrir öllu þegar farið er að temja hann.

21. febrúar 2008

Var að setja inn nýjar myndir af innihrossunum

.

Þá er Fríða Rós loksins orðin 5 ára. Það er heldur betur búið að bíða eftir þeim tímamótum, og nú er mjög langt þangað til hún á aftur afmæli, eins og hún hafði orð á í morgunn.

Það hefur líka lyngt eftir margar vindasamar vikur. Einn daginn var meira að segja svo hvasst að tíkin Tóta  fauk út af veginum í einum reiðtúrnum með Jóa, hesturinn tolldi á veginum, enda nýjárnaður og Jói tolldi á baki, enda ýmsu vanur.

 

Við fórum á Tjarnartölt á Gauksmýri um daginn og lentu Guðný og Heron í 2 sæti í 2. flokki en Jói og Lávarður voru í 6. sæti í 1. flokki. Helga Rún og Rúrí voru í 5. sæti í barna– og unglingaflokki og var þetta í fyrsta sinn sem daman keppti.

Unglingaflokkur á Tjarnartölti

9. mars 2008

Fórum í gær á Ís-Landsmót á Svínavatni. Þar var fjöldinn allur af góðum hestum að keppa í A og B flokki og tölti.

Jói fór með Lávarð og Hvirfil í A-flokk.  Mótið var í alla staði til fyrirmyndar, topphestar og blíðu veður.

 

Klárarnir okkar gerðu ágætlega það sem farið var fram á, en betur má ef duga skal í svo sterkri keppni.

 

Úrslit má sjá á síðunni Svínavatn-2008

Hvirfill frá Bessastöðum

Lávarður frá Þóreyjarnúpi

Lávarður frá Þóreyjarnúpi

Meyvant frá Feti

Dívurnar

Ung og efnileg frá Þyt

Senjoritur frá Þyt

Hestakosturinn var almennt í góðu lagi. Jafnbesti hópurinn var trúlega frá Grafarkoti.

Fjórir íslandsmeistarar síðasta árs frá hestamannafélaginu Þyti sýndu listir sýnar og fengu viðurkenningu frá félaginu. Frábær árangur hjá einu félagi.

31. mars 2008   

Á laugardaginn var Stórsýning Húnvetnskra hestamanna haldin í reiðhöllinni á Blönduósi. Þar voru mörg skemmtileg atriði bæði barna og fullorðinna. Jói fór með Lávarð til að sýna hversu nauðsynlegt væri að hafa fiman og fráan hest í smalamennskum. Hann ætlaði að segja sögur og útskýra fimi hestsins jafnhliða með gaman-sögum af sveitungum, en batterísleysi hrjáði hljóðnemann svo lítið varð um talað mál. Hesturinn var hins vegar ágætur. Hann fór líka með Sóllilju, en hennar vettvangur er meira rými.

Logi og Fanney sýndu Meyvant frá Feti, ungan fola sem Kostur group hefur fjárfest í. Svo voru dívurnar með punkinn yfir i-ið.