© |
Fréttir
10.4 BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 2006 Fréttir Miðasala á Blúshátíð í Reykjavík dagana 11-14 apríl hefur tekið mikin kipp og við minnum á að þeir sem ætla að koma á Blúshátíð tryggi sér miða á www.midi.is . Miðaverð er með því ódýrasta sem gerist og við þökkum það stuðningsaðilum okkar, án þeirra og ykkar væri þetta ekki hægt. Zora Young og Deitra Farr verða á aðalsviði stærstu blúshátíðar í heimi Chicago Blues Festival 8-11.júní 2006 en þá mæta 750.000 mans í Grants park en þær Divur verða einmitt gestir á Blúshátíð í Reykjavík dagana 11-14 apríl.Deitra Farr situr í ráðgjafanefnd Blúshátíðar í Reykjavík . Dagskrá hér neðar á síðunni. Með kveðju Blúshátíð í Reykjavík Fjórar amerískar blússtjörnur á Blúshátíð í Reykjavík um páska Fruteland Jackson fer með gesti í blúsferð um árósa Mississippi á stórtónleikum á miðvikudagsköld, en þar koma einnig fram á veröndinni: Bjöggi Gísla, Gummi P., Dóri Braga, Siggi Sig., Krummarnir, Fjallaskáldin og óvæntur leynigestur. Skírdagskvöld taka Dívurnar þrjár völdin með Vinum Dóra, en að kvöldi föstudagsins langa, syngja þær gospel og sálma ásamt Fruteland Jackson og íslenskum tónlistarmönnum í Fríkirkjunni í Reykjavík. Miðasala er á eftirfarandi stöðum: www.midi.is , Skífan Laugavegi 26, Skífan Smáralind,Skífan Kringlunni,BT Akureyri, BT Selfossi. Verð: 2000 kr á hvert kvöld á stórtónleika á Nordica Hotel . 11.12. og 13. apríl kl 21 5000 kr aðeins 100 Blúsmiðar eru í boði sem gilda öll kvöld á tónleikana á Nordica Hotel . Handhöfum blúsmiða er boðið á setningarhátíð. Blúsmiðar gilda ekki á tónleikana í Fríkirkjunni . 2000 kr Gospel og sálmatónleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík 14.3 kl 20. Sæti niðri í kirkjunni og á fremsta bekk uppi Hér er vefur Chicago Blues Festival . Hugmyndir hafa komið fram að fjölmenna frá Íslandi á hátíðina á næsta ári 2007 ef þið hafið áhuga á því að fara í þá ferð sendið tölvupóst á blues@blues.is merkt Chicago 2007. Endilega skráið ykkur á póstlita félagssins hér til hliðar .
Dagskrá Þriðjudagur 11.apríl Nordica Hotel kl. 17, setning í samstarfi við Rás 2 • Blúslistamaður heiðraður og blúsdjamm. Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 21 • Andrea Gylfadóttir Páll Rósinkranz Skaf Björgvin Gíslason, Sigurður Sigurðsson, Eðvarð Lárusson, Birgir Baldursson, Einar Rúnarsson og Georg Bjarnason • The Bumcats Tommi, Pétur, Snorri , Helgi, Esther • Blússveit Þollýar Þollý Rósmundsdóttir, Magnús Axel Hansen, Björgvin Óskarsson, Lovísa Sigrúnardóttir, Benjamín Ingi Böðvarsson • Óvæntur leynigestur! Miðvikudagur 12.apríl Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 21 • Fruteland Jackson frá Missisippi • Á veröndinni með Dóra Braga, Bjögga Gísla Gumma P. og Sigga Sig. • Krummarnir Hrafnkell , Snorri, Magnús , Helgi og Kristján • Blúsuð ljóð eftir Kristján fjallaskáld Jónsson Hlöðver, Tommi, Rúnar • Óvæntur leynigestur! Skírdagur 13.apríl Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 21 • 3 Dívur frá Chicago Deitra Farr Zora Young & Grana' Louise & Vinir Dóra Föstudagurinn langi 14. apríl kl 20 Fríkirkjan í Reykjavík • Sálmatónleikar 3 Dívur frá Chicago Zora Young, Deitra Farr, Grana' Louise, ásamt Fruteland Jackson Eðvarð Lárusson ,Jón Rafnsson og Ásgeir Óskarsson og fl. www.zorayoung.com www. granalouise.com www.deitrafarr.com Hljóð: Jón Skuggi Hljóðkerfi frá Hljodx & Nordica Hotel
Eitt og annað um gesti blúshátíðar Andrea Gylfadóttir
Páll Rósinkranz
Skaf það þarf ekki nema að líta á liðskipan þessarar sveitar til að sjá að hér eru góðir tónlistarmenn innanborðs: Björgvin Gíslason gítar, Sigurður Sigurðsson munnharpa, Eðvarð Lárusson gítar, Birgir Baldursson trommur,Einar Rúnarsson Hammond og Georg Bjarnason á bassa.
Drottning Chicago blúsins Deitra Farr
Í fyrra á tónleikum á föstudaginn langa söng Deitra Farr nokkra þekkta sálma upp úr sálmabók afa síns sem hún hafði tekið með sér að heiman og hreif áhorfendur með sér bæði í rólega íhugun og banastuð þegar hún söng sálminn “This little light of mine” þannig að allir kirkjugestir voru farnir að klappa með. . Ekki verður um villst hvernig negrasálmar og blús eru tengd órjúfanlegum böndum og úr varð í kirkjunni upplifun sem verður lengi í minnum höfð þar sem tónlistin réði ríkjum en tilefni dagsins og alvara voru þó aldrei langt undan . www.deitrafarr.com Zora Young er stundum nefnd „Blússprengjan“
Beint úr hjarta blúsins í Chicago, kemur Grana' Louise .
Grana´ Louise heldur úti mjög góðri vefsíðu www.granalouise.com og hvet ég alla til að kíkja þar inn ef þeir vilja vita meira. Hún er með mörg járn í eldinum og virðist hafa óstöðvandi orku. Á heimasíðunni sést hverjum hún hefur spilað með og þá líka þau verðlaun sem hún hefur unnið til, útgefnar hljómplötur og uppkomandi tónleikar. Fruteland Jackson
Fruteland starfar nú í Chicago. www.fruteland.com Bjöggi Gísla, Gummi P. Dóri Braga & Siggi Sig
Vinir Dóra
Hlöðver B. Jökulsson & fl.
"Ég held að vísur eins og Yfir kaldan eyðisand séu samtíða hverjum Íslendingi og Kristján bjó jafnframt yfir andstæðum sem einkenna okkar tíma. Kristján orti sig líka út úr kennikerfum 19. aldar og var á vissan hátt 20. aldar maður. Ég held reyndar að leiðin til nútímaljóðsins liggi frá Jónasi Hallgrímssyni í gegnum Kristján til Jóhanns Sigurjónssonar."1 Útisetur munu hafa farið fram á krossgötum að næturlagi, á mörkum mannlegs samfélags, reynt var að víkka út vitundina, virkja dulin sálarlífsöfl og sameina þau öflum hins heimsins, vekja tröll upp: máttarvöld óskynsemi og náttúru. ." tilvitnun Matthías Viðar Sæmundsson.
Blússveit Þóllýar skipar skemmtilegur bræðingur af hljómlistarmönnum sem koma úr ýmsum áttum og eru á öllum aldri. Í þessu líflega vímuefnalausu bandi leggja þau til hliðar fyrrverandi tónlistarstefnur. Þungarokkarinn, gospelsöngkonan og jazzarinn sameinast hér í leit sinni að rótunum. En sameiginlega rót sína hafa hljómsveitarmeðlimir fundið í trúnni á æðri mátt og blúsnum. Og blúshjartað mun flytja okkur rokkblúsaðan sálm svo eitthvað sé nefnt. En hljómsveitin fer mjög óhefðbundnar leiðir í lagavali og efnistökum. The Bumcats er rokkabillýkántrýgospelblúsband sem stofnuð var í byrjun þessa vetrar og þreytir frumraun sína opinberlega á blúshátíð. Hljómsveitina skipa hjónin Tómas Ragnarsson og Esther Jökulsdóttir auk tengdafrændans Péturs S. Jónssonar á gítar og kjörsonanna Helga Egilssonar á kontrabassa og Snorra Páls Úlfhildarsonar sem flengir húðir. Hjónakornin syngja auk þess sem húsbóndinn þenur munnhörpuna og semur lög og ljóð á síðkvöldum. Rónakettirnir stefna ótrauðir að því að fá ljósastaur í Nashville og umferðareyju í Minsk nefnda í höfuð sér og útiloka ekki framboð til komandi sveitastjórnarkosninga. Krummarnir undir forustu Hrafnkels ætla að taka flugið með Snorra, Magnúsi , Helga og Kristjáni Þetta eru ungir og efnilegir menn sem ekki eru ókunnugir blúsnum. Margir þeirra stunda nám við FÍH skólann og ætla að að koma á óvart með tónlist sinni og láta hefðir og lögmál víkja fyrir augnablikinu. Sönn ánægja að kynna þá til leiks. Blúsmaður verður heiðraður Það stendur til að heiðra blúsmann við setningu Blúshátíðar í Reykjavík um páskana og gera að heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur . Sendið tilllögur hvern ætti að heiðra á netfangið blues@blues.is . Magnús Eiríksson var heiðraður 2004 og Björgvin Gíslason 2005 Miðasala á Blúshátíð í Reykjavík um páska fer vel af stað . Miðaverði hefur tekist að stilla í hóf og ber að þakka það stuðningsaðilum , sem láta tónleikagesta njóta lágs miðaverðs og glæsilegrar Blúshátíðar í Reykjavík. Deitra Farr biður að heilsa til Íslands og sagði" við Divurnar getum ekki beðið eftir að koma og syngja fyrir ykkur" . Andrea Gylfa er að frumsýna í kvöld og sagði í dag" það er ekkert smá fjör hjá mér um þessar mundir ,það verður ekkert smá gaman að koma og syngja á blúshátíð "
.4. F9ullt var út úr dyrum á lokakvöldi Blúshátíðar annað kvöldið í röð og enn einu sinni sýndu Vinir Dóra að blús er tónlist fólksins með því að bjóða uppá skemmtun af bestu gerð þar sem þátttaka gesta og áheyranda er í hávegum höfð. Einnig spiluðu þeir blús eins og hann gerist bestur. Blúshátíð vill þakka öllum fyrir komuna og þeim sem lagt hafa okkur lið...Munið eftir að skrá ykkur á póstlista Blúsfélags Reykjavíkur hér til hliðar til að fá blúsfréttir í tölvupósti. Blúshátíð í Reykjavík er komin til að vera! Gleðilega páska Blúshátíð í Reykjavík bluesfest@blues.is
Myndir Júlíus Valsson
Vinir Dóra
Kalli Bjarni kom og söng nokkur lög og gestir tóku hraustlega undir með honum enda var frábær stemming á Hótel Borg.
Páll Rósinkranz söng nokkur lög með Vinum Dóra og sýndi að þar er á ferð alvöru blússöngvari.
8.4 Uppselt var á Hótel Borg miðvikudaginn 7.4. Myndir Júlíus Valsson
Þeir Blúsmenn , Guðmundur Pétursson á gítar, Jóhann Hjörleifsson á trommur og Einar Rúnarsson á Hammond fengu Mezzofortemanninn Jóhann Ásmundsson á bassa til liðs við sig
Fylgdu þeir félagar Andreu upp í hæstu hæðir töfraheims blústónlistar eins og hún gerist best.
Í lokin var frumkvöðull Blúshátíðar, blúsmaðurinn Dóri fenginn uppá svið við mikinn fögnuð viðstaddra..að þessu sinni án hattsins ......
6.4. Fyrsta kvöldið á Blúshátíð var stórkostlega vel heppnað og góð mæting og menn fóru á kostum á sviðinu. Frábær byrjun á Blúshátíð sem lofar góðu um næstu kvöld. Blúskompaníið með þá Magga Eiríks og Pálma Gunnars í fararbroddi voru í banastuði.
Góður rómur var gerður að leik Dóra og Gumma P sem opnuðu kvöldið að blúshætti frumherjana frá Missisippi Delta svæðinu
Strákarnir í Mood sýndu að ungu blúsmennirnir eru að á uppleið
Opnunarhátíðin var í í beinni á Rás 2 þeirri öndvegisrás okkar landsmanna...Opnunarhátíðin milli 17-18 var í í beinni á Rás 2 þeirri öndvegisrás okkar landsmanna....og fólk þáði veitingar meðal annars bláan blúsdrykk sérlagaðan af barþjónum á Hótel Borg. Hið Íslenska Byssuvinafélag er sérstakur verndari blúshátíðar og settu þeir byssuvinir svip á opnunarhátíðina með sínar rauðu húfu.. Júlíus Valsson tók þessar frábæru myndir. Gleðilega Blúshátíð í Reykjavík
6. Apríl kl 17.00 Setningarathöfn Blúsdjamm kl 21.00 Maggi Eiríks & Blúskompaníið, Dóri & Gummi P Mood. 7. Apríl kl 21.00 Blúsmenn Andreu Smokie Bay Blues Band Mikki & Danny Pollock 8. Apríl kl 21.00 Vinir Dóra Páll Rósinkranz & Kalli Bjarni Doug Lang Eitt og annað um Blúshátíð Blúshátíðir eru sjálfsagður hluti af menningarlífi allra betri borga hins siðmenntaða heims og löngu tímabært að Reykjavík hljóti eina slíka. Hátíðin verður haldin í hinum fornfræga gyllta sal á Hótel Borg dagana 6. 7. og 8. apríl . Dagskrá hátíðarinnar er vegleg og vönduð og mikið í hana lagt. Sérstakur fengur er að því að Blúskompaníið sem er elsta starfandi blússveit landsins kemur saman að nýju á opnunarkvöldi hátíðarinnar með þá Magnús Eiríksson og Pálma Gunnarsson í fararbroddi.Ungliðarnir í Mood kynda upp fyrir þá kappa. Dóri og Gummi P verða með hluta af sveitablúsdagskrá sinni í anda frumherjanna frá óshólmum Missisippi árninar í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Miðvikudagskvöldið stígur ókrýnd blúsdrottning Íslands á svið ásamt blúsmönnum sínum í Blúsmönnum Andreu en hún hefur fyrir löngu lagt Ísland að fótum sér. Frumherjarnir Pollock bræður sem blúsuðu sig inn í hjörtu þjóðarinnar með Utangarðsmönnum kynna nú til sögunnar glænýja sveit sína Smokie Bay Blues Band . Hátíðinni lýkur svo á 15 ára afmælistónleikum Vina Dóra á skírdag, en mönnum eru enn í fersku minni hinir rómuðu tónleikar Vinanna á árum áður á Hótel Borg. Blúskóngurinn Dóri Braga kynnir til blúsleiks nýja vini sína þá stórkostlega efnilegu blússöngvara Pál Rósinkranz og Kalla Bjarna Idolstjörnu sem sló svo eftirminnilega í gegn þegar hann vann íslensku Idol-keppnina með því að syngja blúslagið sívinsæla um Salvöru á villitryppinu (Mustang Sally) við mikinn fögnuð íslensku þjóðarinnar. Aðdáendur gítarsnillingsins Guðmundar Péturssonar verða heldur ekki fyrir vonbrigðum á hátíðinni því hann mun þenja gítarinn af sinni alkunnu snilld með hinum og þessum öll kvöldin. Sérstakur gestur hátíðarinnar er Doug Lang sem kemur alla leið frá Vancouver í Kanada og leikur frumblús á kassagítar.
26.3 Blúshátíð í Reykjavík
Dagskrá:
10.3 Nú er að rætast gamall draumur blúsáhugamanna því ákveðið hefur verið að halda fyrstu BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK. Það eru listamenn ásamt ykkur í Blúsfélagi Reykjavíkur sem standa fyrir hátíðinni í samvinnu við stofnanir og fyrirtæki. Á hátíðinni munu koma fram flestir af okkar bestu blústónlistarmönnum m.a. Andrea Gylfadóttir, Magnús Eiríksson, Halldór Bragason, Guðmundur Pétursson, Vinir Dóra, Páll Rósinkranz, Kalli Bjarni,Smokie Bay Blues band sem í eru meðal annara Pollock bræður , Doug Lang frá Kanada og fleiri með
fyrirvara um breytingar á dagskrá. Rás 2 hefur sýnt áhuga á að taka hátíðina
upp og senda jafnvel beint út. Það er stefnt á að BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK verði árlegur liður í menningarlífi borgarinnar um páskana. Sýnum samstöðu og fyllum húsið og sköpum þannig grundvöll fyrir áframhaldandi blúshátíðahöldum um ókomin ár.
26.1 Tækifæri fyrir blúsara að gefa út??
19.1 2004 Blús á Borginni Fimmtudaginn 29.1 kl 21.00 11.1 Blúsmaðurinn Halldór Bragason býður uppá stutt námskeið fyrir einn eða fleiri. Þetta er upplagt fyrir vini að taka sig saman og dusta rykið af hljóðfærinu og koma sér af stað að spila blús eða rokk. Einnig er hægt að hafa samstarf við fyrirtæki um kennslu. Upplýsingar og bókanir bluesice@hotmail.com eða 6975410 1.11 Stofnfundur Blúsfélags Reykjavíkur og blúsdjamm aldarinnar.
Stofnfundur
Blúsfélags Reykjavíkur og blúsdjamm aldarinnar.
Blúsfélag Reykjavíkur mun verða formlega stofnað á Kaffi Reykjavík fimmtudaginn 6. nóvember kl 21 . Dagskrá 21 00 ávarp tilgangur og stofnun Blúsfélags Reykjavíkur kosin undirbúningsnefnd Kynntur hugmyndabanki og póstlisti ...umræður 21 30 Blúsdjamm Maggi Eiríks og K.K. Vinir Dóra, Blúsþrjótarnir , Blúsmenn Andreu,Páll Rósinkrans.o fl blúsa ......blúsandi svífur yfir sálarlífið 22 00 Félagi heiðraður 22 05 Blúsdjamm Á fundinn munu mæta allir helstu blúsarar landsins, s.s. Heiðursfélagi nr. 1 verður útnefndur á fundinum. Aðgangur er ókeypis og eru allir sem vilja taka þátt í þessu velkomnir. Undanfarna mánuði hafa áhugasamir aðilar staðið að ýmsum blúskvöldum og hefur það sýnt sig að mikill blúsáhugi er hér á landi og er sívaxandi. Með stofnun Blúsfélags Reykjavíkur er markmiðið að greiða fyrir framgangi blústónlistar á Íslandi og sameina blúsáhugafólk í eitt félag sem ætti að auðvelda framgang tónlistarinnar.
13.9 Vinir Dóra koma saman á ný eftir hlé fimmtudaginn 25.9. á Vídalín 10.9 Tónlistarhátið á Vídalín í september dagskráin er hér. Sett
hefur verið tónlistar hátíð á Vídalin í september. Hátíðin
kallast 10.
South River Band (Heimstónlist) 21.8 ný síða með blústextum sjá hér til vinstri 20.8 Fyrirhuguð er hópferð til Köben í október með blúsáhugamönnum spilað verður á tónleikum og verður þetta helgarferð farið á föstudegi og komið á sunnudegi. verið í sambandi til að fá nánari upplýsingar 23.7 Þættir Halldórs um sögu blússins verða endurteknir í ágúst á rás 1 á miðvikudögum kl 23.15 11.7 Munið þáttaröð Halldórs um sögu blússins á Rás 1 og verða þeir alls 7. Á fimmtudögum kl 10.15 og hann endurtekinn daginn eftir kl.22.15....Blúsmenn Andreu fara núna um helgina og leika á blúsfestivali í Svíþjóð. 1.7 Piano Blues - leikstjórinn og píanóleikarinn - blúsunnandi - Clint Eastwood (Play Misty for Me, Bird, Unforgiven) gerir mynd um píanóblús,
tekur
viðtöl og þar koma meðal annars fram goðsagnir eins og vinur
okkar Pinetop Perkins og Jay McShann, ásamt Dave Brubeck og Marcia
Ball. 30.6 Rás 1 bætti við 3 þáttum í þáttaröð Halldórs um sögu blússins og verða þeir alls 7. Á fimmtudaginn verður 3. þáttur kl 10.15 og hann endurtekinn daginn eftir kl.22.15.... 30.6 Frábært var á Blue North Festival í Ólafsfirði um helgina mikil stemming og veðrið frábært yfir 20 stiga hiti. Fólk skemmti sér konunglega og góð mæting. Frábært framtak hjá ollum sem standa að þessu. Við þökkum kærlega fyrir að fá að taka þátt í þessu. Þetta sýnir að bæjarfélag getur gert stórkostlega hluti þegar samstaðan er fyrir hendi. Reglulega ánægjulegt að sjá unga sem aldna skemmta sér svona saman yfir góðri metnaðrfullri dagskrá. 7.6 Fullt var á tónleikunum á Vídalín í gærkvöldi og við þökkum öllum sem komu og aðstoðuðu.Ef þú vilt vera á póstlista og fá sent fréttabréf og tilkynningar um blúsviðburði sendu þá póst á bluesice@hotmail.com . 26.6.Nokkrir hafa haft samband og hafa áhuga á námskeiði ef þú hefur áhuga hafðu samband.Ef næg þátttaka fæst höldum við kannski annað. 23.6 Námskeiðið gekk vel um helgina og við þökkum öllum sem komu og þeim sem lögðu okkur lið .Þegar í dag hringdu tveir til að skrá sig á næsta, en ef áhugi er á að koma á námskeið sakar ekki að hafa samband ,aldrei að vita nema við endurtökum leikin ef áhugi er fyrir öðru námskeiði. 18.júní Halldór Bragason byrjar með þætti um sögu blússins á rás 1 kl 10.15 19.6 og verða þeir vikulega alls sjö þættir.Þátturinn er endurtekinn daginn eftir kl 22.15. 16.6. Tónleikarnir í Hafnarfirði í gærkvöldi stóðu svo sannarlega undir nafni "Bjartir dagar" Kaffi Aroma er svo skemmtilegt þar er gott útsýni yfir höfnina og okkur fannst góður hljómur í salnum. Frábært kvöld og góður tími að spila 20.30. Bestu þakkir til Hafnfirðinga fyrir kvöldið. 15.5 Enn ein veislan Blue North Festival í Ólafsfirði dagskráin er komin. 12.6. Góðar viðtökur við námskeiðinu margir búnir að bóka sig það borgar sig að skrá sig fyrr en seinna 9..6. Annað námskeið verður haldið 21.& 22 júní í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar nánar hér 9.6. Blue North Festival er búið og var mjög vel heppnað.Þvílík fegurð er í Hólminum .Ég þakka kærlega fyrir frábæra gestrisni Hólmara og þetta var frábær helgi. Allir skemmtu sér konunglega og gaman að fá að taka þátt í þessu. Leifur tók fleiri myndir þær eru hér þökkum honum
Dóri að djamma með Norðmönnunum hann hafði ekkert spilað á rauða fenderinn í marga mánuði kominn tími til....
4.6.Veisla framundan fyrir blúsara Blue North Festival um helgina. dagskráin er hér. Sjáumst í Hólminum.......... 3.6. Slæmt veður setti svip sinn á Chicago blúshátíðina um síðustu helgi allt niður í 7 stiga hita og hvirfilvinda viðvaranir frá veðurstofunni á föstudaginn ,hægt er að sjá dagskránna hér og lesa á ensku frétt hér. Samt komu 560,000 á hátíðina. Vinir Dóra komu fram með Pinetop þarna 1993. Vinkona okkar Shirley King (já hún er er dóttir BB King)sem kom hingað og söng og kom síðan fram með Vinum Dóra á Sardiníu á Rocce Rosse blúshátíðinni söng með Willie Kent, aumingja hann!! hún er ekki skemmtileg ,á Ítalíutúrnum hafði hún allt á hornum sér kvartaði yfir ítalska matnum og fl .Að lokum var hún send heim og urðu allir fegnir .BB King var samt ánægður með okkur sagði við mig."thank you for taking my daughter overseas"!!!!!
2..6 Margir eru að spyrja um annað námskeið og við erum að spá í helgina 21&22 júní verið í sambandi ef þið viljið vera með. Nú þegar eru nokkrir búnir að panta pláss á næsta námskeið. Tónleikarnar á Vídalín heppnuðust vel ,okkur leið vel með að spila á sjómannadaginn. Við reynum alltaf að nota augnablikið í leik okkar, að láta tónlistina streyma fram. Blúsinn er tónlist augnabliksins og það sem hjóðritað hefur verið af blús segir svipaða sögu og mynd úr sumarleyfi rifjar upp stemmninguna en kemur þér ekki á staðinn. Það er þessi upplifun sem tengir sálartetrið við hjartað .
31.05. Gaman var að spila í Grindavík í gær og góður rómur var gerður að leik okkar....Við renndum í nokkur ný lög og tókst vel.Frábært fólk í Grindavík enda á Gummi P. ættir að rekja þangað. Þannig að hann gat sagt með sanni að hann væri kominn í sína heimasveit. Færum við Grindvíkingum þakkir okkar fyrir mjög eftirminnilegt kvöld og vonum að við komum aftur að spila þar. 28.5.Gummi P. og Dóri lögðu inn umsókn að kynna blús í skólum í verkefninu Tónlist fyrir alla http://listir.is/tfa það er kominn tími á að skólabörn landsins fái tækifæri á að kynnast blústónlist........fróðlegt verður að vita hvort umsókn þeirra fær brautargengi. 26.5 Vinur okkar og guðfaðir Pinetop Perkins blúspíanóleikari vann Handy verðlaunin 2003 12. árið í röð nú um helgina. Hann vann líka árið 2002. Hér er hægt að sjá lista yfir þá sem unnu í ár. http://www.blues.org/articles/index.cfm?ID=171 Pinetop Perkins verður 90 ára í sumar.Hér er mynd af Pinetop frá Chicago Blús hátíð 2002.
Við óskum honum til hamingju með Handy verðlaunin.
Einnig óskum við vini okkar Willie Kent til hamingju með verðlaun sem besti bassaleikarinn.Hann leik með okkur í Chicago tónleika ásamt Andreu Gylfa. Þess má geta að hann bjó þá í bíl við illan kost en er orðin stjarna í dag.
23.5. Gummi P og Dóri þakka fyrir þáttökuna á fyrsta blúsnámskeiði Íslandssögunar um helgina.Fullt var á námskeiðið og komust færri að en vildu. Fyrri daginn var farið í söguna og grunnatriði en seinni dagur var með Master class fyrirkomulagi. Við vonum að allir hafi haft gagn og gaman af og hafi betri innsýn í heim blússins og hafi nú verkfæri í höndunum til að þróast sem blúsleikarar.Við höfðum mjög gaman af þessu. Greinilega þörf fyrir svona námskeið. Ánægulegt var að sjá hvað margir góðir ungir spilarar voru og framtíðin er björt. Blúsinn lifir.....!!!!!!! Þökkum öllum sem hjálpuðu okkur við þetta. Við hvetjum alla sem áhuga hafa á svona námskeiði að hafa samband og fylgjast með þegar næsta námskeið verður auglýst Það er komið nýtt efni á vefinn http://www.simnet.is/bluesice/loops.htm stillingar og neðst er blússkalinn og hægt að æfa hann þar. 23.5. Frábærar móttökur við námskeiðinu.Við viljum þakka öllum stuðninginn : Tónlistarskólanum í Hafnarfírði ,fjölmiðlum og öllum sem lagt hafa á plóginn að gera þetta að veruleika. Vertu í sambandi ef þig langar á námskeið sem verður auglýst nánar síðar....... 22.5.Fullt er að verða á námskeiðið um helgina og síðasta tækifæri til að bóka sig.. 15 05. Helgarnámskeið í blúsleik fyrir hljóðfæraleikara helgina 24. og 25. maí frá kl 10 -17 báða dagana í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar , nánar hér 3.5. Það vakti athygli er framsóknarmenn létu búa til barmmerki sem á stóð VINIR DÓRA Það skal tekið fram að það tengist þeim félögum ekki á neinn hátt..... en við óskum þeim til hamingju með góða útkomu úr kosningunum.
|