Forsíða

Bókabúðin Eskja

Vöruflokkar

Eignaskiptayfirlýsingar

Lindarbrekkufrænkur ehf

Eskifjörður

Fyrirspurnir/vörupantanir

Áhugaverðir tenglar

Páskahandavinnan:
Páskahandavinna fæst í bókabúðinni Eskju, frauðegg að ýmsum stærðum og útsaumsvörur s.s. löberar og dúkar og litlar veggmyndir með ramma auk þess eigum við úrval af Bucilla vörunum sem fólk vinnur að allt árið til að eiga tilbúið um jól, þar eigum við sokkana vinsælu, jólatrésdúka, hurðakransa og ýmsa aðra skrauthluti stóra og smáa.

Fermingar framundan:
Nú styttist í fermingar og að vanda á Bókabúðin Eskja ýmislegt gagnlegt fyrir fermingarundirbúninginn og veislurnar. Við seljum sálmabækur með og án nafnáletrunar og útvegum fallegar sígildar gestabækur með nafnáletrun, fermingarhanskar fást einnig hjá okkur sem og úrval af kertum og kertskreytingaefni. Til kertaskreytinga eigum við kertakreytingapenna og vax sem ýmist er formað í myndir og tákn eða sléttar plötur sem fólk formar sjálft. Borðrenningar eru til í ýmslum litum hjá okkur sem og fallegir borðdúkar, hlífðardúkar úr plasti eru væntanlegir á næstu dögum. Litaðir "steinar" í bómavasa og borðskreytingar fást í Bókabúðinni Eskju sem og ýmsar gerðir af skrautlengjum. Við eigum allar gerðir nýju Biblíuútgáfunni þ.á.m. tölusetta viðhafnarútgáfu sem í tilefni ferminga er seld á tilboðsverði.

Öskudagur:
Í febrúar flæddu inn grímubúningar og fylgihlutir, grímur, hárkollur, andlitsmálning, gervihúð, nef, eyru og annað tilheyrandi öskudeginum sem aldrei fyrr. Vont veður og ófærð dagana fyrir öskudaginn varð til þess að ekki komust allir sem vildu á staðinn en daginn fyrir öskudag var þó þokkalegt veður og þá var heldur betur líf og fjör í búðinni.

Jólin koma:
Skólavöruvertíðin var ekki fyrr farin að réna en jólabókaflóðið hófst, flóðið byrjar ævinlega eins og smáleki sem stigmagnast og nær ekki hámarki fyrr en í desember. Að vanda var Bókabúðin Eskja með á annað þúsund bókatitla, flesta þá nýjustu og allmarga frá fyrri árum. Bóksala eykst ár frá ári i bókabúðinni enda hefur bókabúðum með heilsársþjónustu fækkað mjög og þeir sem kunna að meta slíka þjónustu sýna það í verki með því að koma langar leiðir til að versla í alvöru bókabúð.

Skólarnir hefjast:
Skólavörusalan er í hámarki nú í skólabyrjun, að vanda býður Bókabúðin Eskja upp á fjölbreytt úrval úrval af öllum helstu skólavörunum á mjög samkeppnishæfu verði enda kemur fólk úr nágrannabyggðarlögunum talsvert til að kaupa skólavörurnar í bókabúðinni.

Ferðamenn á Austurlandi:
Mikið hefur verið um ferðafólk, bæði innlent og erlent, í Bókabúðinni Eskju í sumar, talsvert meira en undanfarin sumur, starfsfólk búðarinnar telur ástæðuna ekki vera þá að fleiri séu á ferðinni heldur þá að búðin sé farin að vekja meiri athygli en áður enda betur staðsett en í eldra húsnæðinu.

Prjónakaffið:
Prjónakaffi Bókabúðarinnar Eskju, sem mun vera hið elsta á Íslandi, stofnað í apríl 2006, hefur verið í löngu sumarfríi sem af óviðráðanlegum orsökum framlengist eitthvað fram í október.

Mikið prjónað:
Mikil sala hefur verið í garni og lopa frá áramótum hérna í Bókabúðinni Eskju enda hafa nýlega verið gefin út frábær prjónablöð á íslensku bæði með flíkum úr lopa og garni. Nýjustu blöðin frá Ístex hafa gert mikla lukku og mjög mikil sala hefur verið í léttlopa (Ístex og Álafoss ) . Prjónablaðið ýr hefur einnig höfðað vel til fólks og mikið verið keypt af garni í flíkur úr þeim. "Gamla góða garnið" stendur alltaf fyrir sínu og eins hafa komið á markaðinn undanfarið margar nýjar tegundir af garni (Tinna) .

Efni til skartgripagerðar:
Bókabúðin Eskja selur ýmislegt til skartgripagerðar s.s. eyrnalokkafestingar, keðjur, lása, nælur, pinna, glerperlur og fleira.

Gjafavörur fyrir herra:
Bókabúðin Eskja hefur nýlega fengið vandaðar gjafavörur fyir herra, sem dæmi má nefna stálslegna, leðurklædda vasapela og í sama stíl nett skóburstasett og rak og naglasnyrtisett og svo mjög svo gagnlegt seðla-/kortaveski með vasapela, vindlahylki og vindlaskera.

Scrappvörur:
Bókabúðin Eskja hefur ýmislegt í skrappið, nú eru nýkomnar bækur með lausum blöðum þannig að bæta má blöðum inní, einnig blokkir með mjög fallegum pappír, í hverri blokk eru ákveðin litbrigði.

Vatnsbyssufaraldur:
Á hlýju dögunum í enduðum apríl sást varla barn eða unglingur á Eskifirði án þess að vera vopnað vatnsbyssu og gekk verulega á vatnsbyssubirgðir bókabúðarinnar sem voru þó snarlega endurnýjaðar. Vatnsstríð voru háð um allan bæ en þegar kólnaði í byrjun maí var gert vopnahlé.

Nýjar kiljur:
Bókabúðin Eskja hefur fengið gott úrval af nýjum kiljum, um er að ræða margar frábærar frumútgáfur í kiljuformi og einnig endurútgáfur á eldri bókum og jólabókunum frá síðustu vertíð.

Bókabúðin Eskja - Útkaupstaðarbraut 1 - 735 Eskifirði, Fjarðabyggð -  S:476-1160