|
|
||
|
|
Lindarbrekkufrænkur ehf. keyptu Bókabúðina Eskju í ársbyrjun 2004 og tóku við rekstrinum 1. maí 2004. Seljandi búðarinnar var Víðivellir ehf. og hafði Guðrún Óladóttir séð um rekstur hennar en hún var ásamt Guðna Kristinssyni eigandi Víðivalla ehf.
Kaupfélag héraðsbúa hafði á 10. áratugnum stofnað Bókabúðina Eskju eftir að rekstur gamalgróinnar bókaverslunar á Eskifirði var lagður af.
Nafnið Eskja er það sama og á byggðasögu Eskifjarðar sem heitir ,,Eskja bókin um Eskifjörð´´ , Eskjan sú er í 5 bindum, mjög vandað og ítarlegt verk sem skráð var af Einari Braga Sigurðssyni, Eskfirðingi, skáldi, fræðimanni, frumkvöðli og frænda Lindarbrekkufrænkna en nafnið Lindarbrekkufrænkur er dregið af nafni húss móðurforeldra Einars Braga sem einnig eru afi og amma og langafi og langamma Lindarbrekkufrænkna.
Eskja bókin um Eskifjörð er til sölu í Bókabúðinni Eskju - að sjálfsögðu og verðið á henni fælir fólk ekki frá kaupum á þeirri merku bók.
Upphaflega var Bókabúðin Eskja til húsa á efri hæð verslunarhúss Kaupfélags héraðsbúa við Strandgötu á Eskifirði en þar var aðgengi erfitt og einnig háðu þrengsli vexti bókabúðarinnar og um áramótin 2005-2006 festu Lindarbrekkufrænkur ehf kaup á rúmgóðu verslunarhúsi við Útkaupstaðarbraut sem í tæp 50 ár hafði hýst Verzlun Elísar Guðnasonar og hin síðari ár einnig matvöruverslunina Eskikjör. Kaupsamningur vegna hússins var undirritaður föstudaginn 13.janúar 2006 og opnað var á nýja staðnum mánudaginn 6. mars 2006. Ekki þurfti að loka versluninni í svo mikið sem 1 dag vegna flutninganna en í raun hafa þeir staðið allt árið og er ekki enn lokið!
Í Bókabúðinni Eskju fæst mjög margt fleira en nafnið bendir til, auk innlendra og erlendra bóka, nýútgefinna og eldri og tímarita fást leikföng í góðu úrvali í búðinni, einnig myndarammar og albúm, kort, gjafapappír og aðrar umbúðir, púsl í úrvali, ritföng, blekhylki, skólavörur, skólatöskur, konfekt, sælgæti, dúkar, rúmföt, teigjulök með 3ja ára ábyrgð, vönduð ódýr handklæði, myndlistarvörur, kortagerðarefni, föndurvörur, garn fyrir prjón og hekl ásamt útsaumsgarni, hannyrðavörum, föndurvörum, ull, lopa, lopapeysum og öðrum ullarvörum, bútasaumsefnum, bucilla vörunum, tvinna, smávörum í saumaskap og ýmsu öðru þ.á.m. góðum snyrtivörum úr hreinum jurtaafurðum.
|
|
|
Bókabúðin Eskja
- Útkaupstaðarbraut 1 - 735 Eskifirði, Fjarðabyggð -
S:476-1160 |
||