Ölkelduætt


Ættarmót
Ölkelduættar verður haldið helgina 16. til 18. júlí. 1999.


Vilborg 100 ára
Vilborg 90 ára
Kveðja

Jólakveðja frá Afa

Loftmynd af Ölkeldu

Ljóð Vilborgar um lækinn á Hjarðarfelli
 

Vilborg Kristjánsdóttir og Gísli Ţórđarson.Á þessum síðum er niðjatal Gísla Þórðarsonar og Vilborgar Kristjánsdóttur á Ölkeldu í Staðarsveit. Að auki eru greinar sem skrifaðar voru í tilefni 90 og 100 ára afmælis Vilborgar og kveðjuljóð sem flutt var við jarðarför Gísla. Þá er hér að finna jólakveðju sem Gísli sendi barnabarni sínu.

Gísli var fæddur 12. júlí 1886, d 20. sept. 1962. Vilborg var fædd 13. maí 1893 á Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi. Hún lést 28. des. 1993. Þau bjuggu alla sína búskapartíð á Ölkeldu.

Börn Gísla og Vilborgar voru:

  • Þórður, fyrrverandi skólastjóri og bóndi að Ölkeldu II
  • Elín, húsfr. í Reykjavík
  • Alexander á Ölkeldu
  • Kristján Hjörtur, áður bóndi á Fossi í Staðarsveit, nú í Kópavogi
  • Ólöf Fríða, húsfr. á Hrossahaga í Biskupstungum,
  • Guðbjartur, bóndi á Ölkeldu
  • Lilja, sjúkraliði. í Reykjavík
Auk þessa ólu þau Gísli og Vilborg upp Kristján Guðbjartsson, bróðurson Vilborgar, frá 6 ára aldri.


Þessar síður eru upphaflega unnar upp úr riti sem Þórður Kárason og Elín Gísladóttir gáfu út í tilefni af 100 afmæli Vilborgar, 13. maí 1993. Viðbætur eru fengnar úr ýmsum áttum. Unnið er að uppfærslu niðjatalsins.

G.Sv.

[Borgartún] [Gísli Sverrisson]