_________________________________
© Breiðdæla 2002-2006
Vefgerð: Páll Baldursson polsky@simnet.is
.
| |
Eldri frettir
breiðdæla | 25.01.06 | 21:00 Þorrablót:
|
Tveir góðir á Þorrablóti 2005.
Mynd: Páll Baldursson.
|
Nú er farið að líða að Þorrablóti Breiðdælinga, en það verður haldið laugardaginn 11. febrúar næstkomandi og
samkvæmt venju í Staðarborg.
Nefndarstarf mun vera komið á fullt skrið og m.a. búið að ráða Hljómsveit Eyþórs til þess að
spila fyrir dansi.
breiðdæla | 08.01.06 | 14:00 Morgunsól í janúar:
|
Við Meleryi. Mynd: Páll Baldursson.
|
breiðdæla | 15.10.05 | 16:00 Nett rigning:
|
Við Naustasand. Mynd: Páll Baldursson.
|
Það hefur verið nett rigning hér sl. sólarhring og lækir og ár því vaxið vel. Flætt hefur yfir
veginn við Naustasand og því hefur vegurinn verið auglýstur lokaður.
En þar sem þetta er nú ekki í fyrsta sinn að lækirnir fyrir utan Ós leita úteftir í stórrigningum
má velta því fyrir sér hvort ekki sé kominn tími á stærra ræsi á þessum slóðum.
pb.
breiðdæla | 04.10.04 | 21:00 Veiði lokið í Breiðdalsá:
Veiðitímabilinu í Breiðdalsá lauk nú um mánaðarmótin. Alls komu á land í
sumar 701 laxar, þannig að það er ljóst að áinn gerir gott betur en að
þrefalda sig. En árið 2003 veiddust 202 laxar.
Ljóst er að ræktunarstarf Þrastar Elliðasonar er að skila árangri og verður
fróðlegt að fylgjast með ánni á næstu árum.
pb.
breiðdæla | 03.10.04 | 11:00 Ályktun um þjóðveg 1:
|
Af Breiðdalsheiði.
|
Hreppsnefnd Breiðdalshrepps samþykkti síðasta fundi sínum 29. september
sl. eftirfarandi ályktun um þjóðveg 1:
"Sveitarstjórn Breiðdalshrepps mótmælir harðlega fram komnum
hugmyndum um lengingu þjóðvegar 1, þannig að hann liggi með
fjörðum í stað Breiðdals og Skriðdals. Sveitarstjórn skorar
á þingmenn og samgönguyfirvöld að standa gegn slíkum hugmyndum,
enda eru þær í andstöðu við þá stefnu sem lengi hefur verið fylgt,
að þjóðvegur 1 sé ávallt stysta hringleið í byggð um landið.
Þá bendir sveitarstjórn á að enn er nokkur hætta á aur og snjóspýjum
á veginum með fjörðum til Egilsstaða ( í Kambaskriðum og neðanverðum
Fagradal) og varla er það til þess falið að auka öryggi vegfarenda.
Ljóst er að meginþungi umferðarinnar velur sér ávallt stystu leið
milli áfangastaða, því myndi breyting sem þessi ekki auka öryggi
vegfarenda. Það er hins vegar brýnt að ljúka sem fyrst uppbyggingu
og bundinni slitlögn þjóðvegarins um Breiðdal og Skriðdal.
Sveitarstjórn Breiðdalshrepps beinir þeim tilmælum til
samgönguyfirvalda að hefja nú þegar athugun á jarðgöngum undir
Breiðdalsheiði og Berufjarðarskarð.. Þetta tvennt síðast
nefnda myndi auka mikið öryggi vegfarenda og stytta verulega
þjóðveg 1. Það hlýtur að vera framtíðin."
breiðdæla | 16.09.04 | 22:00 Metveiði í Breiðdalsá:
|
Veiðihúsið Eyjar.
|
Metveiði hefur verið í Breiðdalsá í sumar og eru nú komnir yfir
580 laxar á land, en síðustu þrjú ár hefur meðalveiði verið um 250 laxar.
Frábærar heimtur af gönguseiðasleppingum eru greinilega stærsti hluti þessarar
veiði, enda mikið veiðst í nágrenni sleppitjarna á veiðisvæðum. Mest
hafa 35 laxar komið á land á einum degi.
Veitt verður út september, þannig
að búast má við að heildarveiði verði um 700 laxar.
pb.
breiðdæla | 01.01.04 | 00:00 Gleðilegt ár:
|
|
Við áramótabrennu Breiðdælinga 2003.
|
breiðdæla | 11.12.03 | 11:00 Jólahlaðborð á Bláfelli:
|
Jóhannes Kristjánsson eftirherma í hlutverki
Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.
Mynd: Sigurður Aðalsteinsson.
|
Fullt var út úr dyrum á hinu árlega jólahlaðborði Hótel Bláfells sem haldið var föstudaginn 5. des. sl.
Að venju svignuðu borðin undan glæsilegum og gómsætum réttum Kristínar.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma skemmti gestum með því að bregða sér í hlutverk
þjóðþektra einstaklinga og
Jón Arngrims, Arna o.fl. sáu um dinnermúsik og dans á loknu borðhaldi.
pb.
breiðdæla | 09.12.03 | 11:30 Sjö milljónir til Gamla kaupfélagsins:
|
Gamla kaupfélagið.
Mynd: Páll Baldurs.
|
Gamla kaupfélagshúsið er meðal þeirra sem fá hæsta framlagið frá Húsafriðunarnefnd á næsta ári,
samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum
Alls munu sjö verkefni fá á næsta ári 7 mkr. hvert og er Gamla kaupfélagið meðal þeirra. Á árinu
sem er að líða var húsinu úthlutað 5 mkr.
Því er ljóst að endurbygging húsins er komin á gott skrið og vonir til þess að henni gæti lokið
árið 2006 eins og sefnt er að.
pb.
breiðdæla | 02.10.03 | 10:30 Kveikt á jólatré:
Kveikt var á jólatré Breiðdælinga við Bjarmaland á fyrsta sunnudegi í aðventu. Hljómsveit
tónlistaskólans lék nokkur lög og jólasveinar komu í heimsókn.
|
|
Myndir: Páll Baldurs.
breiðdæla | 01.12.03 | 22:30 Aðalfundur ÚB:
|
Útgerðarfélag Breiðdælinga hf.
Mynd: Páll Baldurs.
|
Aðalfundur Útgerðarfélags Breiðdælinga hf fyrir rekstrarárið 2002 var haldinn í liðinni viku. Rekstur félagsins var
erfiður á árinu en tap félagsins var rúmar 21 milljón kr. að teknu tilliti til afskrifta og
fjármagnsliða. Heildartekjur ÚB á árinu var 281,5 mkr. og rekstrargjöld 290,2 mkr.
Stjórn félagsins var endurkjörinn á aðalfundinum. Stærstu eigendur ÚB eru Ríkharður Jónasson
framkvæmdastjóri félagsins og Rúnar Björgvinsson fv. sveitarstjóri Breiðdalshrepps.
pb.
breiðdæla | 22.10.03 | 13:30 Fimmburarnir hennar Elínóru:
|
|
Út er komin ný barnabók eftir Guðjón Sveinsson rithöfund á Breiðdalsvík,
Fimmburarnir hennar Elínóru.
Barnabækur Guðjóns eru því ornar 22 að tölu, og heildarfjöldi ritverka hans því 33 á 36 árum.
Guðjón er fyrir löngu orðin þekktur fyrir kjarnyrt og litríkt málfar í sögum sínum og
myndrænan frásagnastíl. Ljóst er að honum bregst ekki bogalistin í þessu skemmtilega ævintýri.
Gullfallegar myndir Erlu Sigurðardóttur skreyta bókina. Guðjón gefur bókina sjálfur
út undir heitinu Mánabergsútgáfan.
Bókin fæst í öllum helstu bókabúðum landsins, en einnig mun vera hægt að nálgast hana hjá höfundinum sjálfum í síma 475-6633.
pb.
breiðdæla | 12.08.03 | 21:30 Er maðurinn göldróttur?:
Áhorfendur á kraftakeppninni Austfjarðatröll höfðu á orði að eflaust hefði mótstjórinn Njáll Torfason
verið settur á bálið fyrr á öldum. En Njáll sýndi um helgina hversu hann megnugur þegar hann dró bíl
með tönnunum og gekk um leið yfir glerbrot, síðan ýtti hann bílnum til baka með hnífum sem hann
setti um háls sér, og að lokum þá lagðist hann í glerbrotin á götunni og lét bílinn bakka upp á sig.
|
|
|
Myndir: Páll Baldursson.
breiðdæla | 12.08.03 | 20:30 Kraftakeppnin Austfjarðatröll:
Kraftakeppnin Austfjarðatröll fór fram í sjöunda sinn nú um helgina, alls tóku sjö tröll þátt að
þessu sinni og urðu úrslit sem hér segir:
- Jón Björn Björnsson 54,5 stig.
- Jón Valgeir Wilhams 53 stig.
- Ingvar Ingvarsson 43,5 stig.
- Jens Fylkisson 43 stig.
- Elvar Óskarson 41 stig.
- Baldur Sigurðsson 34 stig.
- Oddur Sigurðsson 25 stig.
|
|
Myndir: Páll Baldursson.
breiðdæla | 17.07.03 | 16:00 Glæsilegt hús kemur í ljós:
Elsta, og nú glæsilegasta, húsið á Breiðdalsvík naut sín vel í kvöldsólinni í gærkveldi eftir að
vinnupallarnir höfðu verið felldir utan af því.
|
|
Myndir: Páll Baldursson.
breiðdæla | 08.07.03 | 20:30 Veiðihúsið Eyjar tekið í notkun:
Veiðihúsið Eyjar var opnað um sl. helgi. Hið nýja hús er samtengt íbúðarhúsinu að Eyjum og er um
350 fm að stærð. Í húsinu eru átta tveggja manna herbergi, þar af ein stór svíta og sérstök herbergi
fyrir fiskmóttöku og vöðlur. Einnig er í húsinu gufubað og fyrir framan glæsilega setustofu er stór
verönd með grillaðstöðu og heitum potti.
Það var samdóma álit manna við vígslu húsins um liðna helgi að hér væri komið eitt glæsilegasta veiðihús landsins.
Eigendur eru hjónin Þröstur Elliðason og Ásthildur Sumarliðadóttir.
|
|
Myndir: Páll Baldursson.
breiðdæla | 29.05.03 | 09:30 Framkvæmdir við Byggðasafn:
Undafarna daga hafa verið gerðar endurbætur á neðri hæð Óskaupa, en gert er ráð fyrir að um miðjan
júni verði þar opnað byggðasafn.
|
|
Myndir: Páll Baldursson.
breiðdæla | 28.05.03 | 09:30 Lokahönd lögð á verkið:
Feðgarnir Þorri Guðmundarson og Guðmundur Björgólfsson voru í gær að koma fyrir pípuhliði við
heimreiðina við Þorvaldsstaði. Með því voru þeir að leggja lokahönd á endurbætur á innsta hluta
Norðurdalsvegar.
|
|
Myndir: Páll Baldursson.
breiðdæla | 28.05.03 | 09:00 Heimasíða Háaleitis:
breiðdæla | 03.05.03 | 10:30 Veiðitímabilið hafið!:
|
Súddi fyrir framan veiðihúsið í Eyjum í gær.
Mynd: Páll Baldursson.
|
Veiði á silungasvæði Breiðdalsár hófst 1. maí sl. Sigurður Staples veiðivörður prufaði ánna.
Þó nokkrar bleikjur komu á land og þar á meðal ein sem var 57 cm á lengd og tæplega 5 pund að þyngd.
breiðdæla | 03.05.03 | 10:00 Kuldalegt!:
|
Mynd: Páll Baldursson.
|
Það var heldur kuldalegt um að lítast hér á Breiðdalsvík í gær, eins og meðfylgjandi mynd ber með sér.
breiðdæla | 30.04.03 | 20:00 Sindri skyndihjálparmaður ársins 2002:
|
Vigdís Agnarsdóttir frá Rauða krossinum afhentir Sindra viðurkenninguna.
Mynd: redcross.is
|
Sindri Freyr Róbertsson var í dag útnefndur skyndihjálparmaður Rauða Kross Íslands árið 2002. Sindri
hlytur viðurkenninguna fyrir að hafa sl. sumar bjargað 18 mánaða gamalli systur sinni frá druknun, eftir að hún
hafði fallið í tjörn í húsgarði. Sindri blés í systur sína og beitti hana hjartahnoði þar til
sérhæfð aðstoð barst. Með framgöngu sinni bjargaði hann lífi hennar.
Fram kemur á vefsíðu Rauða krossins að tilgangur með vali
á Skyndihjálparmanni ársins sé að
vekja athygli á mikilvægi þekkingar í skyndihjálp.
"Veitt er viðurkenning fyrir að beita réttum aðferðum á slysstað og
þannig bjarga lífi eða koma í veg fyrir alvarlegri afleiðingar slyss."
breiðdæla | 31.03.03 | 10:30 Veiðihús risið!:
Framkvæmdir við Veiðihúsið í Eyjum ganga samkvæmt áætlun. Um miðja síðustu viku var byrjað að
reisa húsið og á laugardaginn var svo komið að hægt að flagga á stafni þess.
|
|
Myndir: Stefán Eðvald Stefánsson.
breiðdæla | 21.03.03 | 21:00 Skrifað undir samninga um Fáskrúðsfjarðargöng:
Í dag var í félagsheimilinu Skrúð á Fáskrúðsfirði skrifað undir verksamninga um gerð jarðganga milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar.
Framkvæmdir munu hefjast nú í aprílbyrjun, en gert er ráð fyrir að göngin verði fullbúin síðla árs 2005.
Ljóst er að með fyrirhuguðum göngum
munu samgöngur á Austfjörðum batna verulega og Suðurfirðir Austfjarða færast inn á áhrifasvæði stóriðjuframkvæmda. Með Fáskrúðsfjarðargöngum
verður ekki lengur þörf á að fara hinn hættulega veg sem liggur um Staðar-, Kyrruvíkur- og Vattarnesskriður. Göngin, sem verða tvíbreið og tæplega 6 km löng, munu stytta vegalengdin milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar um rúmlega 30 km.
Það vakti athygli manna í dag að eitthvað virtist stærðfræðin hafa vafist fyrir fréttamönnum í skrifum sínum um fyrirhugaða framkvæmd. Þannig
mátti sjá eftirfarandi klausu (endurtekna svo til orðrétta) á netmiðlunum
mbl.is og
local.is,
sem og á annars nýrri og glæsilegri heimasíðu
Búðahrepps:
"Með Fáskrúðsfjarðargöngum og tilheyrandi vegagerð styttist leiðin suður með Austfjörðum um 34 kílómetra og milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar um 31 km. Aðeins verða nú 18 km á milli þessara tveggja staða í stað 54 km nú."
Reikni nú hver fyrir sig.
breiðdæla | 15.03.03 | 14:00 Tímamót í sögu Austurlands:
Þessa stundina er á Reyðarfirði verið að skrifa undir alla samninga varðandi stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi.
Það má með sanni segja að hér sé um að ræða mikil tímamót í sögu Austurlands og ljóst er að
framundan eru bjartir tímar í fjórðungnum.
Íbúar í Fjarðabyggð, austfirðingar og aðrir landsmenn hjartanlega til hamingju með daginn.
breiðdæla | 15.03.03 | 13:30 Of mikið af Elísabetu:
Breiðdælu barst efirfarandi grein frá austfirðingi í höfuðborginni.
Of mikið af Elísabetu.
Hún Elísabet Jökulsdóttir er dugleg að skrifa. Það er varla hægt að opna dagblað án þess að sjá nafnið hennar hið minnsta einu sinni. Án undantekninga er Elísabet, að mínu viti, að misnota tjáningarfrelsið. Gott og vel; það er víst hennar réttur. Eini gallinn er sá að fólk gæti hugsanlega smitast af áróðri hennar. Jafnvel gæti einhver haldið að rangfærslur hennar væru ekki rangfærslur, heldur sannleikur. Svo er hins vegar ekki og fer hún ávallt með rangt mál eða að lágmarki afbakaðan sannleik. Það þyrfti því að hafa fyrirvara á greinunum hennar. Til dæmis væri hægt að enda þær á: "farið frjálslega með staðreyndir" eða "ýkjur miklar."
Hinn 13. mars sl. birtist grein eftir hana í Morgunblaðinu sem bar titilinn "Að höggva Ómar Ragnarsson" þar sem þeirri skoðun var lýst að ef ekki væri tekið tillit til myndar sem Ómar gerði um Kárahnjúka væri það eins og að höggva hann.
lesa meira.
breiðdæla | 14.03.03 | 11:50 Fundur í hreppsnefnd Breiðdalshrepps:
Fundur verður í hreppsnefnd Breiðdalshrepps
kl. 16:00 í dag á skrifstofu hreppsins. Meðal þess sem tekið verður fyrir á fundinum er fjárhagsáætlun
ársins 2003. Einnig verður tekið fyrir umsókn Gamla kaupfélagsins um styrk til áframhaldandi endurbyggingu elsta húsins á Breiðdalsvík, sem
og uppbyggingu Stofu dr. Stefáns Einarssonar.
breiðdæla | 11.03.03 | 13:00 Myndir úr fórum dr. Stefáns Einarssonar:
|
Einar Gunnlaugsson (1851-1942) bóndi og póstafgreiðslumaður á Höskuldsstöðum.
|
Síðastliðið haust bárust fyrirhugaðri Stefánsstofu mikil verðmæti, þegar erfingjar dr. Stefáns afhentu talsvert magn muna sem koma úr fórum
Stefáns. Þar á meðal eru nokkur gömul myndaalbúm. Myndirnar eru viða að eins og gefur að skilja, stór hluti er vestan úr Bandaríkjunum sem og
frá heimaslóðum Margrétar, fyrri konu Stefáns, í Eistlandi. Einnig er talsvert að myndum af Austurlandi og þá sérstaklega úr Breiðdal.
Meðfylgjandi mynd er af Einari Gunnlaugssyni föður Stefáns og væntanlega heimiliskettinum á bænum
fyrir framan íbúðarhúsið á Höskuldsstöðum.
breiðdæla | 05.03.03 | 13:30 Aðalfundur Gamla Kaupfélagsins:
Um síðustu helgi var aðalfundur Gamla Kaupfélagsins haldinn að Hótel Bláfelli. Á fundinum var
farið yfir starfsemi félagsins sl. ár, reikningar samþykktir og stefna mótuð um framhald verkefnisins, en
gert er ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun á hundrað ára afmæli þess árið 2006.
Í lok fundar voru ýmisir munir úr fórum dr. Stefáns Einarssonar skoðaðir, en eins og kunnugt er
þá er stofu til heiðurs dr. Stefáni ætlaður staður á efri hæð gamla kaupfélagsins. Í nýja stjórn
voru kosnir þeir Guðjón Sveinsson, Stefán Eðvald Stefánsson og Páll Baldursson.
breiðdæla | 26.02.03 | 09:30 Þröstur Elliðason með ýmsar framkvæmdir í gangi:
|
Myndir af framkvæmdunum. Myndir: Stefán Eðvald Stefánsson.
|
Eins og áður hefur komið fram á þessum vef eru ýmsar framkvæmdir í gangi
á vegum Veiðiþjónustunnar Strengir.
Við íbúðarhúsið í Eyjum er kominn upp grunnur
að 300 m2 veiðihúsi sem taka á í notkun í sumar við upphaf veiði í Breiðdalsá.
Við Tungufell í Norðurdal er verið að vinna við lokafrágang á seiðaeldisstöð. Einnig
hafa verið boraðar tilraunaholur eftir heitu og köldu vatni, bæði við Eyja og Tungufell. Meðfylgjandi
myndir voru teknar fyrir nokkrum dögum af framkvæmdunum.
breiðdæla | 26.01.03 | 12:00 Þorrablót Breiðdælinga:
Þorrablót Breiðdælinga verður haldið laugardaginn 15. febrúar nk. að
Hótel Staðarborg. Að loknu hefðbundu borðhaldi og skemmtiatriðum mun
Danshljómsveit Friðjóns leika fyrir dansi.
breiðdæla | 24.01.03 | 09:00 Bóndadagur - upphaf Þorra:
Árni Björnsson segir svo frá bóndadegi og upphafi Þorra í bók sinni Sögu dagana:
"Upphaflega virðist húsfreyja hafa
boðið þorra velkominn enda er ljóst að fyrsti dagur þorra hefur
verið tileinkaður húsbóndanum. Er hvorttveggja til að honum hafi
verið veitt sérstaklega í mat og að hann hafi þá átt að gera vel
við sitt fólk. Bóndadagsheitið er þó ekki kunnugt fyrr en í þjóðsögum
Jóns Árnasonar frá miðbiki 19. aldar. Þar er einnig minnst á hlaup
bónda kringum bæ sinn, en óljóst er hversu almennur slíkur siður hefur
verið og hver er uppruni hans. Vera kann að þar sé um að ræða leifar
af eldra þorrafagnaði. Á síðara hluta 19. aldar fóru mennta- og
embættismenn að tíðka samkomur sem þeir kölluðu "Þorrablót" að
fornum hætti, matar- og drykkjuveislur þar sem sungin voru ný
og gömul kvæði og drukkin minni Þorra og heiðinna goða."
breiðdæla | 19.01.03 | 17:30 Veturinn kominn!:
Með sanni má segja að vetur konungur sé kominn í Breiðdalinn, enda alhvít jörð. Meðfylgjandi
myndir voru teknar nú um helgina.
|
|
Vetrarmyndir. Myndir: Stefán Eðvald Stefánsson.
breiðdæla | 17.01.03 | 18:00 Allir í skóla og sjó á sumrin:
Í umræðum um fyrirhugaða virkjun og stóriðju á Austurlandi hafa fallið
mörg orð, og misgáfuleg. Það væri að æra óstöðugan að reyna fylgja
öllu því eftir, en sumt er með þeim hætti að maður óneitanlega
veltir því fyrir sér hvort ekki sé allt í lagi.
Í dægurmálaútvarpi Rásar 2 í gær var viðtal við Guðmund Pál Ólafsson og
Elísabetu Jökulsdóttur og ekki þarf að útskýra afstöðu þeirra til stóriðjuframkvæmda
á Austurlandi. Í miðju viðtalinu beindist talið að við
ættum "að gera eitthvað annað". Þar minntist Elísabet á að stofna
þjóðgarð og háskóla í tengslum við hann. Gott og vel.
En síðan sagði Elísabet:
"Sumir segja að við getum ekki bara alltaf verið í háskóla.
Ég meina, af hverju ekki? Við getum bara verið í háskóla og
farið svo á sjó á sumrin ".
Svo furðulegt sem það er þá þurfum við víst að fá tekjur inn í landið
til þess að geta staðið undir okkar lífskjörum, já og þá m.a. uppbyggingu
háskóla. Og tæplega getum við þjóðinn leyft okkur það að vera öll,
alltaf í háskóla, eða hvað?
En skyldi Elísabet vita að nú þegar er ýmislegt að gerast í þessum málum á Austurlandi. Í fyrradag
var t.a.m. stofnaður Kvískerjasjóður, en honum er ætlaðað styrkja rannsóknir
á náttúru- og menningarminjum í Austur-Skafafellssýslu. Einnig hafa
Hornfirðingar um nokkurt skeið unnið að verkefni sem ber heitið
Vatnajökulsþjóðgarður. A Hornafirði var einnig tekið sl. haust í notkun
rannsóknar- og skólasetrið Nýheimar sem verður miðstöð þekkingar, náms,
rannsókna og nýsköpunar. Ennfremur er nú verið að vinna að stofnun
Þekkingarseturs í Vonarlandshúsum á Egilsstöðum.
Því má ljóst vera
að Austfriðingar eru að móta sér sína stefnu í þessum málum og háskólamenntun á Austurlandi mun tengjast þessum þekkingarsetrum.
En til þess að standa undir lífskjörum okkar í framtíðinni, þá þurfum við einnig auknar tekjur og því miður er
það ekki svo gott að þar dugi að fara "bara á sjó á sumrin".
pb
breiðdæla | 15.01.03 | 11:10 Poppara svarað:
Óhætt er að segja að Jakob Frímann Magnússon hafi orðið sér til minnkunar
þegar hann lét þau orð falla í Kastljósþætti á föstudag, að Austfirðingum
væri nær að virkja fallvötnin á milli eyrna sinna en óska eftir
stóriðjuframkvæmdum. "Kýrhausinn" á vef local.is
hefur nú svarað popparanum með viðeigandi hætti.
Pistilinn má finna hér í heild sinni.
breiðdæla | 15.01.03 | 11:00 Menningarráð Austurlands auglýsir eftir styrkjum:
Menningarráð Austurlands
auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á
Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál. Styrkirnir eru til
eflingar menningarstarfs á Austurlandi.
Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og
sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um, en skilyrði er að
umsækjendur sýni fram á mótframlag. Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar nk.
Vegna úthlutunar á menningarstyrkjum verður Signý Ormarsdóttir
menningarfulltrúi með viðveru í sveitarfélögum á Austurlandi. Á
Breiðdalsvík verður Signý á skrifstofu hreppsins þriðjudaginn 4. febrúar
milli kl. 15.00 - 18.00.
Annars verða viðtalstímar menningarfulltrúa eftirfarandi:
- Hornafjörður 16. janúar kl. 14.00 -18.00.
Skrifstofa Þróunarstofu Austurl. Nýheimum
- Fjarðabyggð Reyðarfirði 20. janúar kl. 13.00 - 16.00.
Bæjarskrifstofum Reyðarfirði
- Fjarðabyggð Eskifirði 20. janúar kl. 16.10 - 18.30.
Kirkju- og menningarmiðstöð
- Fjarðabyggð Neskaupstað 21. janúar kl. 15.00 - 18.30.
Fundarsal Egilssbúð
- Vopnafjörður 22. janúar kl. 14.00 - 18.00.
Miklagarði
- Bakkafjörður 22. janúar kl. 20.00 - 22.00.
Grunnskólanum
- Seyðisfjörður 27. janúar kl. 16.00 - 19.00.
Menningarmiðstöðinni Skaftfelli
- Norður - Hérað 28. janúar kl. 9.00 - 12.00.
Skrifstofu sveitastjórnar Brúarási
- Fáskrúðsfjörður 29. janúar kl. 14.00 - 18.00.
Skrifstofa sveitastjórnar, Hafnargötu 12
- Stöðvarfjörður 30. janúar kl. 15.00 - 18.00.
Skrifstofu sveitastjórnar, Fjarðarbraut 41
- Borgarfjörður 31. janúar kl. 16.00 - 18.00.
Hreppsstofunni
- Djúpivogur 3. febrúar kl. 15.00 - 18.00.
Löngubúð
- Breiðdalsvík 4. febrúar kl. 15.00 - 18.00.
Skrifstofu sveitarstjóra
- Fljótsdalshreppur 5. febrúar kl. 15.00 - 18.00.
Skriðuklaustri
Einnig mun vera hægt að óska eftir viðtölum á örðum tímum eða koma við
á skrifstofu Menningarráðs Austurlands að Miðvangi 2-4 á Egilsstöðum.
breiðdæla | 07.01.03 | 09:30 Framkvæmdir hafnar á veiðihúsi:
|
Myndir af framkvæmdunum. Myndir: Stefán Eðvald Stefánsson.
|
Nú nýverið hófust framkvæmdir á veiðihúsi við bæinn Eyja í sunnanverðum
Breiðdal. Í veiðihúsinu er gert ráð fyrir 10 herbergjum, en alls mun
húsið verða um 300 m2 og tengjast íbúðarhúsinu á staðnum.
Það er Þröstur Elliðason sem rekur Veiðiþjónustuna Strengi
og hefur verið
leigutaki Breiðdalsár undanfarin ár sem stendur að byggingu húsins.
Gert er ráð fyrir að taka húsið í notkun þegar Breiðdalsá verður opnuð
í sumar.
breiðdæla | 24.12.02 | 18:00 Gleðilega Jólahátíð:
|
Sólarlag. Mynd: Páll Baldursson
|
breiðdæla | 22.12.02 | 16:00 Útgerðarfélagi Breiðdælinga úthlutað viðbótarbyggðakvóta:
Sjávarútvegsráðuneytið úthlutaði þann 20. desember sl. viðbótarbyggðakvóta.
Suðurfjörðum Austurlands er samtals úthlutað 183 tonnum, sem skiptast niður á 9
aðila. Útgerðarfélag Breiðdælinga hf er þar úthlutað stærsta hlutanum
62 tonnum. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef ráðuneytisins
sjavarutvegsraduneyti.is
.
breiðdæla | 18.12.02 | 22:00 Fíflaháttur, umhverfisslys, rugl og vitleysa.... ARRRGG!!!:
Suður fór hann og þegar er leiksýningin komin á fullt í húsdýragarðinum, ef marka
má frétt Local.is
, en þar segir að búið sé að bjóða fréttamiðlum að mynda gripinn. Er ekki allt
í lagi???
Velta má fyrir sér tilgangi svona vitleysu. Í því sambandi er rétt að taka undir
með Binna á Hornafirði,
en eins og hann bendir réttilega á þá kemur fjöldi flækinga á hverju
hausti hingað til lands og þá sérstaklega á suðausturland. Kannski er
nú þess að vænta að ráðherra eigi eftir að gera út enn fleiri útsendara til þess að safna
í sýningabúr í húsdýragarðinum.
Nær hefði frekar verið að leyfa þessum flækingsfugli að vera í friði á þeim stað
sem hann sjálfur hefur valið. Síðan hefðu fuglaáhugamenn, fræðingar og aðrir
áfram getað fylgst með atferli hans og hegðun.
Þegar og ef hefði svo farið að sverfa að honum í vetur, þá er ég viss um að heimilisfólkið
á Ásunnarstöðum eða Kleif hefði litið til með honum, eins og þau hafa reyndar þegar
gert í allt haust.
Nei, það gat náttúrlega ekki gengið, leiksýningin varð að hafa sinn gang og borgarbörnin að
fá sýnishorn af náttúrunni í dýragarðinn sinn.
En fyrst að ruglið er byrjað á annað borð, þá er réttast að ríkið taki sig til og
klári vitleysuna með því að senda fuglinn til suðlægri landa, í staðinn fyrir að
gera hann að sirkusdýri í borginni.
pb
breiðdæla | 18.12.02 | 12:45 Suður skal hann!:
Undanfarna daga hafa tveir útsendarar frá höfuðborginni setið um
nýjasta málleysingjann hér í sveitinni. Já, það er ekki nóg að
mannfólkinu sé öllu stefnt í sódómu.
Sennilega vont til afspurnar að einhverjum lítist vel á dalinn,
allavega skal komið í veg fyrir að hann dvelji þar of lengi.
Já fuglinn skal suður, og í húsdýragarðinn, svo að borgarbörnin og
aðrir náttúruverndarsinnar geti notið návistar hans.
En miðað við aðfarir útsendarana síðustu daga virðist ekki mikil
hætta á að fuglinn verði fangaður í bráð, .....sem betur fer. Hvort þar
sé um að kenna einkennilegum vinnubrögðum eða gleði útsendarana
yfir að vera loksins fjarri sódómu á dagpeningum og svo videre,
skal ósagt látið.
Allavega er undirritaður farinn að skipuleggja ljóðalestur, mótmæli,
skrílslæti og guð má vita hvað á Austurvelli, ja eða frystihúsplani.....
pb
breiðdæla | 18.12.02 | 22:00 Fíflaháttur, umhverfisslys, rugl og vitleysa.... ARRRGG!!!:
Suður fór hann og þegar er leiksýningin komin á fullt í húsdýragarðinum, ef marka
má frétt Local.is
, en þar segir að búið sé að bjóða fréttamiðlum að mynda gripinn. Er ekki allt
í lagi???
Velta má fyrir sér tilgangi svona vitleysu. Í því sambandi er rétt að taka undir
með Binna á Hornafirði,
en eins og hann bendir réttilega á þá kemur fjöldi flækinga á hverju
hausti hingað til lands og þá sérstaklega á suðausturland. Kannski er
nú þess að vænta að ráðherra eigi eftir að gera út enn fleiri útsendara til þess að safna
í sýningabúr í húsdýragarðinum.
Nær hefði frekar verið að leyfa þessum flækingsfugli að vera í friði á þeim stað
sem hann sjálfur hefur valið. Síðan hefðu fuglaáhugamenn, fræðingar og aðrir
áfram getað fylgst með atferli hans og hegðun.
Þegar og ef hefði svo farið að sverfa að honum í vetur, þá er ég viss um að heimilisfólkið
á Ásunnarstöðum eða Kleif hefði litið til með honum, eins og þau hafa reyndar þegar
gert í allt haust.
Nei, það gat náttúrlega ekki gengið, leiksýningin varð að hafa sinn gang og borgarbörnin að
fá sýnishorn af náttúrunni í dýragarðinn sinn.
En fyrst að ruglið er byrjað á annað borð, þá er réttast að ríkið taki sig til og
klári vitleysuna með því að senda fuglinn til suðlægri landa, í staðinn fyrir að
gera hann að sirkusdýri í borginni.
pb
breiðdæla | 05.11.02 | 11:45 Sorkur við Ásunnarstaði:
Síðustu daga hefur storkur verið á ferli í Breiðdalnum og í gær var
hann á vappi á túninu á Ásunnarstöðum. Brynjúlfur Brynjólfsson fulgaáhugamaður frá
Hornafirði náði þessari mynd af storknum. Síðan er bara bíða og sjá hvort nærvera
storksins eigi eftir að hafa áhrif á fjölda íbúa í dalnum.
breiðdæla | 10.09.02 | 21:00 Sextíu ár frá skotárásinni á Hamar:
Í morgun var þess minnst að sextíu ár eru liðin frá því að skotið var á
á húsið Hamar. Eigandi húsins Birgir Einarsson fv. skólastjóri á
Breiðdalsvík lét af þessu tilefni setja minningarskjöld á húsið. Birgir
sem var á fermingaraldri þann 10. september 1942 var að leik við húsið, þegar
þýsk herflugvél flaug inn Breiðdalinn, snéri við og lét skotum rigna
yfir húsið. Vélin flaug síðan út fjörðinn, skaut á vitann á
Kambanesi og á trillur sem voru á veiðum þar fyrir utan. Alls
hæfðu um níu kúlur húsið og þar af fór ein í gegnum þykkan steinvegg
þess. Kúluna varðveitir Birgir ennþann dag í dag, og hefur ekki
látið gera við gatið sem hún skildi eftir sig að innanverðu.
breiðdæla | 20.08.02 | 09:00 Framkvæmdir við Gamla kaupfélagið:
|
unnið við að bera grunn á húsið á dögunum.
|
Þessa dagana standa yfir framkvæmdir á gamla kaupfélagshúsinu á
Breiðdalsvík. En ljúka á við húsið að utan í þessum áfanga. Þ.e.a.s.
endurnýja þak, ganga frá skrauti í kringum glugga og hurðir, og mála.
Verkstjóri við þessa vinnu er sem fyrr Björn Björgvinsson húsasmíðameistari
Breiðdalsvík. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið í byrjun september.
breiðdæla | 13.08.02 | 22:00 Austfjarðatröll:
|
tröll í víkingaglímu.
|
Um síðustu helgi var kraftakeppnin Austfjarðatröll haldin á Djúpavogi
og á Breiðdalsvík. Keppt var í átta greinum, þrjár greinar
voru á Djúpavogi á föstudegi (bíldráttur, drumbapressa og brúsalyfta).
Á laugardag var síðan keppt í fimm greinum á Breiðdalsvík, (steinatökum,
þrælaþraut, bóndagöngu, víkingaglímu og trukkadrætti).
Alls tóku átta tröll þátt í keppninni og einungis eitt stig skildi á milli
í fyrsta og öðru sæti, en sigurvegari var Jón Valgeir Wilhams með 54 stig.
meira
Fleiri myndir
breiðdæla | 02.07.02 | 13:10 Góð byrjun í Breiðdalsá:
|
við Breiðdalsá í gær
|
Veiði í Breiðddalsá hófst í gær og má með sanni segja að hún hafi byrjað með látum.
Samkvæmt frétt á vefsíðu Veiðiþjónustunar Strengs þá komu fimm laxar á land á fyrstu vaktinni
og að fleiri hafi sloppið eftir æsispennandi viðregnir, allt
4 til 7 kg. fiskar. Sjá nánar í frétt á
strengir.is.
breiðdæla | 07.06.02 | 09:10 Endurbætur á vefnum:
Eins og lesendur hafa væntanlega tekið eftir hefur lítil
hreyfing verið á síðunni um nokkurt skeið, og er því rétt að biðja
unnendur vefsins afsökunar á þessum dofa. En nú mun vera hugmyndin að
spýta í lófana - fylgist með!
breiðdæla | 17.04.02 | 10:50 Nýr vefur:
Opnaður hefur verið kosningavefur fyrir Austurland á slóðinni
austurland.net. Á vefnum má finna ýmsar upplýsingar
og fréttir sem tengjast komandi sveitarstjórnarkosningum, einnig er þar
að finna umræðuvettvang þar sem Austfirðingar geta tjáð sig um
sveitarstjórnarmál í sínu héraði og eða annara.
breiðdæla | 13.04.02 | 09:10 Framkvæmdir í Norðurdal:
Miklar framkvæmdir standa yfir í Norðurdal þessa dagana. Þeir
Þröstur Elliðason og Guðmundur Björgólfsson eru þar að reisa stálgrindahús,
en í því á m.a. að vera seiðaeldisstöð fyrir Breiðdalsá. Í gær var
lokið við að gera húsið fokhelt. Einnig var þar í síðustu
viku boruð 50 m. tilraunahola eftir heitu vatni.
breiðdæla | 09.04.02 | 22:00 Byggðakvóti til krókabáta:
Sjávarútvegsráðuneytið tilkynnti í dag kvótaúthlutun til
krókaflamarksbáta, en sú úthlutun er til að efla sjávarbyggðir sem
háðar eru veiðum þeirra. Alls er úthlutað til 11 byggðarlaga og í
hlut Breiðdælinga komu 6 tonn.
sjá fréttatilkynningu
breiðdæla | 18.03.02 | 20:40 Menningarráð Austurlands úthlutar styrkjum:
Menningarráð Austurlands úthlutaði í fyrsta sinn strykjum við hátíðlega
athöfn í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði í dag. Alls hlutu 42 verkefni
styrk, samtals að upphæð 17 milljónir króna. Tvö verkefni í Breiðdal fengu styrk, annars vegar
Gamla Kaupfélagið ehf kr. 200.000 vegna Stefánsstofu og hins vegar fékk Guðjón Sveinsson rithöfundur kr. 150.000 vegna útgáfu á
ljóðabók og geisladiski.
meira
breiðdæla | 28.02.02 | 22:00 Styrkur til Stefánsstofu:
Á síðasta fundi hreppsnefndar Breiðdalshrepps var samþykkt að fela sveitarstjóra
að afhenda stjórn Gamla Kaupfélagsins kr 400.000. Um er að ræða styrk sem EBÍ
(Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands) úthlutaði í október sl. til uppbyggingar
Stefánsstofu.
breiðdæla | 28.02.02 | 21:40 Austfjarðamót í bekkpressu:
Austfjarðamót í bekkpressu verður haldið nk. laugardag á Hótel Bláfelli kl. 16:00,
en þetta mun vera í fjórða sinn sem mótið er haldið á Breiðdalsvík. Keppt verður í 6-7 þyngdarflokkum og
lofar mótshaldari
Njáll Torfason að íslandsmet verði sett, enda munu margir sterkustu menn landsins mæta.
Má þar m.a. nefna Víking Traustason, Ingvar Ingvarsson, Björgólf Stefánsson, Kára Elísson og
Friðrik Jósefsson. Ennfremur hafa keppendur frá Egilsstöðum, Fáskrúðsfirði, Breiðdalsvík,
Djúpavogi og Hornafirði skráð sig til keppni.
breiðdæla | 28.02.02 | 21:30 Fjárhagsáætlun Breiðdalshrepps samþykkt:
Fjárhagsáætlun Breiðdalshrepps fyrir árið 2002 var samþykkt á fundi hreppsnefndar á
þriðjudagskvöld.
Áætlunin gerir ráð fyrir að tekjur ársins verði rétt rúmar 82 milljónir
og að rekstur málaflokka verði um 65 milljónir, eða um 79%. Helstu
fjárfestingar eru áætlaðar: Sundlaug 11.5 milljónir, hafnarframkvæmdir
5 milljónir, til hlutafjárkaupa 1.8 milljón, frágangur við íþróttahús 1 milljón, v/tækjabúnaðar
slökkviliðs 700 þús., ruslagámur 500 þús., holræsi 500 þús. og til öldrunarmála 500 þús.
breiðdæla | 23.02.02 | 10:30 Fundur í hreppsnefnd Breiðdalshrepps:
Næstkomandi þriðjudag verður fundur í hrpppsnefnd Breiðdalshrepps á
skrifstofu sveitarfélagsins. Á fundinum fer fram síðari umræða að
fjárhagsáætlun fyrir árið 2002, en fyrri umræðan var tekin fyrir á
síðasta fundi 22. janúar sl. Fundurinn hefst kl. 17:30.
Meira - dagskrá
breiðdæla | 13.02.02 | 23:15 Vegaframkvæmdir í Breiðdal boðnar út:
Vegagerð ríkisins hefur boðið út vegaframkvæmdir á þjóðvegi 1 í Breiðdal. Um er
að ræða vegarkafla frá vegamótunum við Heydali inn að Ásunnarstöðum í Suðurdal. Er
vegaframkvæmd þessi mikið fagnaðarefni, enda er stór hluti af þessum vegarkafla að stofni til
frá fjórða áratug síðustu aldar. Útboðsfrestur rennur út 25. febrúar nk.
breiðdæla | 13.02.02 | 23:00 Lausn í verslunarmálum Stöðfirðinga:
Svo virðist sem að lausn sé í sjónmáli í verslunarmálun Stöðfirðinga, en
Bæjarslúðrið
greinir frá því að 21. febrúar nk. muni ný verslun taka til starfa og að forsvarsmaður hennar
sé Jósef Auðunn Friðriksson sveitarstjóri Stöðvarhrepps. Það sem af er þessu ári hefur
verslun Kaupfélags Stöðfirðinga verið rekin á ábyrgð þrotabúsins
og þá með mjög svo takmörkuðu vöruúrvali.
breiðdæla | 31.01.02 | 18:50 Menningarráð Austurlands auglýsir styrki:
Menningarráð Austurlands, sem stofnað var eftir samning sveitarfélaga
á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál þann 14. maí 2001, hefur nú birt
fyrstu auglýsingu sína um verkefnastyrki. Fram kemur að gert sé ráð fyrir tveim úthlutunum
á árinu, þá fyrri í mars og þá síðari í október. Umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar er til
og með 20. febrúar nk. Frekari upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofum
sveitarfélaga á Austurlandi, sem og á vefsíðu Menningaráðs Austurlands www.skriduklaustur.is/menning.
breiðdæla | 31.01.02 | 12:00 Nýtt blað á Austurlandi:
Í morgun kom út fyrsta tbl. af nýju austfirsku fréttablaði, sem hlotið hefur nafnið
Austurglugginn.
Í ávarpi útgáfustjórnar segir ma:
Austurglugginn verður óháð fréttablað sem leggja mun áherslu á að greina
frá því sem efst er á baugi í landhlutanum auk þess sem blaðinu er ætlað að vera vettvangur
umræðu um austfirsk málefni. /.../ Flestum er ljóst að blaðaútgáfa er menningarauki. Þá gegnir
austfirskt blað mikilvægu hlutverki hvað það varðar að upplýsa íbúa landshlutans um athyglisverða
atburði í mannlífinu sem ekki ná athygli þeirra fjölmiðla er starfa á landsvísu. Fyrir
sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök getur greiður aðgangur að blaði sem kemur út
reglulega skipt miklu máli og einnig þjónar landshlutablað því hlutverki að varðveita
upplýsingar um sögulega framvindu á viðkomandi svæði.
Breiðdæla óskar aðstandendum blaðsins sem og austfirðingum öllum hjartanlega til hamingju með hið
nýja blað.
breiðdæla | 30.01.02 | 21:15 Engin kjarnorkuvopn takk!:
Á síðasta fundi hreppsnefndar var samþykkt að taka undir erindi frá Samtökum herstöðvaandstæðinga og lýsa því yfir að
Breiðdalshreppur væri kjarnorkuvopnalaust sveitarfélag. Fjöldi sveitarfélaga hafa að undaförnu
lýst umráðasvæði sín sem kjarnorkuvopnalaus svæði, en söfnun slíkra
yfirlýsinga er aðferð alþjóðlegra friðahreyfinga til þess að reyna þrysta á
um útrýmingu gjöreyðingavopna.
breiðdæla | 30.01.02 | 10:30 Tíu daga til stefnu:
Þorrablót Breiðdælinga verður haldið laugardaginn 9. febrúar næstkomandi kl. 20:00. Forsala aðgöngumiða hefst á morgun og stendur til næstkomandi
fimmtudags (7.feb.). Sala aðgöngumiða er hjá Lindu (892-8813), Hjördísi (475-6623), Þresti (475-6626) og Hafþóri (478-8984).
breiðdæla | 29.01.02 | 10:45 Framtíð Ferðaþjónustu Áka ehf:
Síðastliðinn laugardag var haldinn fundur á Hótel Bláfelli um framtíð ferðaþjónustubátsins Áka, en
hann á við töluverða rekstarerfiðleika að striða. Elís P. Sigurðsson eigandi Ferðaþjónusu Áka ehf
boðaði til fundarins, en á hann mættu um 15 manns og var fundurinn sammála um að yfirvofandi
brotthvarf bátsins væri áfall fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Ennfremur kom fram að
starfsemin á ýmsa möguleika til vaxtar og framgangs.
Ákveðið var að halda framhaldsfund eftir 4-6 vikur, en fram að því nota tímann til fjárhagslegar
endurskipulagningar á starfsseminni.
breiðdæla | 24.01.02 | 12:00 Fjárhagsáætlun Breiðdalshrepps:
Í fyrrakvöld var fjárhagsáætlun Breiðdalshrepps vísað til síðari umræðu. Samkv. henni er
gert ráð fyrir að tekjur sveitarsjóðs verði um 80 m.kr og af þeim
fari um 77% í rekstur málaflokka. Helstu framkvæmdir á árinu verði sundlaug 11,5 m.kr.
og hafnargerð 9 m.kr., en hlutur sveitarsjóðs í þessum framkvæmdum er áætlaður tæpar 5 m.kr.
Helstu breytingartillögur minnihluta hreppsnefndar, sem teknar verða til afgreiðslu við síðari umræðu,
er framlag til endurbyggingar Gamla Kaupfélagsins 1 m.kr, í
undirbúnings og hönnunarkostnað við að breyta Hrauntúni 8-12 í dvalarheimili og miðstöð
öldrunarmála kr. 500 þús. Einnig að hafist verði handa við lagningu holræsa og pípuhliða við
lögbýli í sveitarfélaginu. Ennfremur að tryggingar sveitarsjóðs, sem og ræsting leik- og grunnskóla verði boðin út.
breiðdæla | 21.01.02 | 17:00 Sundlaug við íþróttahúsið:
Hafnar eru framkvæmdir á sundlaug við vesturenda íþróttahúsins. Sundlaugin verður 12,5 X 8 m. útilaug, ásamt
heitum potti. Gert er ráð fyrir að laugin verði tekin í notkun á vori komanda.
breiðdæla | 18.01.02 | 16:30 Hreppsnefndarfundur:
Næstkomandi þriðjudag verður fundur í Hreppsnefnd Breiðdalshrepps, sá fyrsti á nýju ári.
Á fundinum verður fyrri umræða um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2002. Eins og öllum er kunnugt um
mun þetta verða síðasta fjárhagsáætlun nefndarinnar á þessu kjörtímabili og því verður forvitilegt að sjá
hvort og þá hversu mikil áhrif sú staðreynd á eftir að hafa.
breiðdæla | 17.01.02 | 12:30 Kaupfélag Stöðfirðinga svf komið í þrot:
Töluverð óvissa er nú með framtíð verslunarreksturs á Stöðvarfirði eftir að rekstur Kaupfélagsins komst í þrot.
Enn sem komið er verslunin rekin á ábyrgð skiptarstjóra, en óvíst er hversu lengi svo muni verða.
Brotthvarfi KSF markar ákveðin kaflaskil í
verslunarsögu á Suðurfjörðum Austfjarða. En félagið var stofnað árið 1931 og var lengi vel
umsvifamikið í verslunar- og atvinnulífi á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík.
breiðdæla | 15.01.02 | 19:30
Nýtt kaffihús!:
Um helgina var opnað nýtt kaffihús í Breiðdal - Café Margret. Kaffihúsið,
sem er bjálkahús, er í eigu þýskra hjóna: Margretar og Horst Müller.
Það var fyrir um tveimur árum sem þau Horst og Margret
komu til Íslands með þá hugmynd í farteskinu að setjast að og reisa sér lítið
kaffihús. Eftir að hafa skoðað sig um á sunnanverðum Austfjörðum ákváðu þau að
reisa hús sitt rétt fyrir ofan þéttbýlið á Breiðdalsvík. Framkvæmdir
hófust síðla árs 2000.
breiðdæla | 15.01.02 | 18:30
Ný heimasíða:
|
Breiðdalsvík
|
Velkomin á nýja heimasíðu - Breiðdælu.
Síðunni er ætlað að segja frá hugarefnum Páls Baldurssonar sagnfræðings á Breiðdalsvík, sem og birta
fréttir úr Breiðdal og nærsveitum eftir því sem við á hverju sinni.
Meira
breiðdæla | 15.01.02 | 18:45 Þorrablót Breiðdælinga:
Tuttugu og fimm dagar til stefnu! Já, það nálgast óðfluga. Þorrablót Breiðdælinga verður haldið laugardaginn
9. febrúar nk. Síðustu daga hefur borið á því að nokkrir einstaklingar væru að hópa sig saman að kvöldlægi úti í Nesbúð. Heimildir vefsins
segja að þar sé Þorrablótsnefndin að færa liðið ár í leikrænan búning. Lítið hefur aftur á móti fréttast hvað þar muni bera hæst, eða þá hverjir það
verði sem lenda í klóm nefndarinnar þetta árið.
Upphafssíða
|
Hótel Bláfell
Hótel Staðarborg
Cafe Margrét
Sumarbústaðaleigan Háaleiti
Ferðaþjónustan Kleif
Veiðiþjónustan Strengir
Vélaverkstæði Sigursteins Melsted
heim
Sagnfræði:
Bókasala stúdenta
Bókavarðan
Gvendur Dúllari
History Today
Kistan
ReykjavíkurAkademían
Sagnfræðingafélag Íslands
Söguþing 2002
Sögusmiðjan
Annað gott:
Dúllarinn
Stafræn fuglaljósmyndun
Stefán Pálsson
|
|