|
| |||||||
|
|
|||||||
| . |
Gamla Kaupfélagið ehf
Gamla kaupfélagshúsið var reist árið 1906 og mun vera elsta húsið á Breiðdalsvík. Um 1880 reisti Gránufélagið reyndar vörugeymsluhús, en það hafði nokkru áður farið að senda vöruskip til Breiðdalsvíkur. Megin verslun Breiðdælinga var samt sem áður við Örum og Wullf á Djúpavogi. Föst búseta varð þó ekki fyrr en árið 1896 er Brynesverslun frá Seyðisfirði reisir sér nýtt verslunar- og íbúðarhús efst á Selnesi undir starfssemi sína. Aðfaranótt 20. maí 1906 brann verslunarhúsið á Selnesi til kaldra kola og í september sama ár var byrjað að smíða nýtt verslunarhús innra megin við Selnesbót skammt frá gamla geymsluhúsi Gránufélagsins. Það hús, sem í dag er í daglegu máli kallað "gamla kaupfélagið" fóstraði verslun Breiðdælinga í rúma hálfa öld. Í húsinu voru einnig tvær íbúðir og eftir að verslun var flutt úr því var það áfram notað sem íbúðarhús, undir lok síðustu aldar var húsinu breytt í verbúð. Rétt eftir 1990, er húsið hafði verið ónotað um nokkurt skeið, voru uppi áform um að jafna það við jörðu. En með samstilltu átaki nokkurra einstaklinga tókst að koma í veg fyrir þann gerning og í framhaldinu var Gamla Kaupfélagið ehf stofnað. Gamla Kaupfélagið ehf hefur síðan unnið að endurbyggingu húsins í samráði við Húsafriðunar-nefnd ríkisins. Byggingarmeistari við þá vinnu er Björn Björgvinsson húsasmíðameistari á Breiðdalsvík. Eins og öllum mun ljóst vera kostar endurbygging sem þessi mikla vinnu og fé. Fram til þessa hefur stærsti hluti fjarmagnsins komið frá Húsafriðunarnefnd ríkisins og með framlögum frá einstaklingum. Á fjárlögum þessa árs eru tveim milljónum króna ætlaðar Gamla Kaupfélaginu ehf og lítur því út fyrir að á þessu ári takist að ljúka við allt ytra byrði húsins og jafnvel hefja undirbúning að framkvæmdum innandyra. En betur má ef duga skal og í þeirri vinnu er öllum góðum verkum fagnað, ef þau meiga verða til þess að þoka verkinu áfram. Stefnt er að opnun húsins á hundrað ára afmæli þess árið 2006. Nánari upplýsingar um "gamla kaupfélagið" eða starfsemi félagsins er hægt að nálgast með því að senda póst til sögufélagsins eða þá hjá formanni Gamla Kaupfélagsins ehf: Gamla Kaupfélagið ehf c/o Guðjón Sveinsson Mánabergi 760 Breiðdalsvík s: 475-6633 email: drstefan@strik.is
|
|
Hótel Bláfell Hótel Staðarborg Cafe Margrét Sumarbústaðaleigan Háaleyti Ferðaþjónustan Kleif Veiðiþjónustan Strengir Vélaverkstæði Sigursteins Melsted Sagnfræði: Bókasala stúdenta Bókavarðan History Today Kistan ReykjavíkurAkademían Sagnfræðingafélag Íslands Söguþing 2002 Sögusmiðjan Annað gott: Dúllarinn Stafræn fuglaljósmyndun Stefán Pálsson
|