Aðili að ICCF

 

Fréttir

Danmörk - Ísland
Landskeppni við Dani hófst 10. apríl 2012. Teflt er á 20 borðum. Sjá nánar hér.

Árni H. Kristjánsson Íslandsmeistari í bréfskák
22. Bréfskákþingi Íslands og minningarmóti um Sverrir Norðfjörð er lokið. Mótið hófst 1. mars 2010 og voru keppendur 13 og þar af 5 erlendir. Með þessu sniði gafst keppendum tækifæri til að ná SIM- og IM-áföngum. Leikar fóru þannig að Árni H. Kristjánsson sigraði með 8,5 vinninga úr 12 skákum. Í öðru til fjórða sæti með 8 vinninga, urðu Baldvin Skúlason, Sonny Colin (Svíþjóð) og Jónas Jónasson. Þessir keppendur náðu allir IM-áföngum. Með sigrinum tryggði Árni sér jafnframt IM, alþjóðlegan meistaratitil í bréfskák. Félag íslenskra bréfskákmanna óskar Árna til hamingju með sigurinn og IM-titilinn. Sjá nánar hér

Ný skákstig! Ný ICCF skákstig gefin út 12. mars 2012 hér

Níunda Evrópumót landsliða hófst 15. júlí 2011. Sjá nánar hér

Holland - Ísland
Landskeppni við Hollendinga hefst 1. maí 2011. Teflt er á 15 borðum og umhugsantími er 10 leikir á 50 daga. Sjá nánar hér

Nýr vettvangur!
Daði Örn Jónsson hefur komið á fót vefsvæði sem helgað er bréfskák. Sjá nánar hér

England - Ísland
Landskeppni við Englendinga hófst 26. mars 2011. Teflt er á 15 borðum og umhugsantími er 10 leikir á 40 daga. Sjá nánar hér

Spánn - Ísland
Landskeppni við Spánverja hófst 20. nóvember 2010. Meðalstig Spánverja eru 2282 á móti 2279 stigum okkar manna. Ef að líkum lætur þá má búast við harðri keppni þar sem mjótt verði á munum. Sjá nánar hér

Stjórnin

© 2006 Félag íslenskra bréfskákmanna