Fúþark

GALDRASTAFIR



Angurgapi

Þessi galdrastafur var notaður til að drepa gripi fyrir öðrum í hefndarskyni, þætti mönnum þeir eiga eitthvað útistandandi. Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar segir af manni sem taldi sig eiga sveitungum sínum ýmsa harma að hefna. Hann risti angurgapa á tunnuhlemm og skoppaði honum af stað í átt til fjandmmanna sinna til að drepa fénað þeirra. Hver skepna sem hlemminn leit féll umsvifalaust dauð niður og varð skepnufall gríðarlegt. Svo hratt snerist hlemmurinn að engin leið var að sjá hvaða tákn hann bar og réðu kunnáttumenn um galdra þennan ófögnuð svo, að tækist einhverjum að lesa hvað stæði á hlemminum yrði meininu létt. Loks tókst galdramanni úr Fljótunum að lesa táknið og féll hlemmurinn þá um koll og hreyfðist ekki framar.
(Heimild: Þjóðsögur Jóns Árnasonar 1.bindi bls.437)


Ægishjálmur

Ægishjálm skyldi þrykkja milli augabrúna mót öllu illu.

 

 


Þ.L.H.N.F.

Tákn Þórs, Loka, Hænis, Njarðar og Freys í einum staf.

 

 


Þundur

Óðinsheiti. Þessi stafur þótti æði kraftmikill og var mikið notaður til hjálpar gegn myrkfælni.

 

 

Róðukross
Róðukross

Fólk bar þetta tákn á brjósti sér til hamingju, sigurs og velfarnaðar. Það var einnig borið illum örlögum.

 

 


Ginfaxi

Gapaldur undir hæli,

ginfaxi undir tá.

stattu hjá mér fjandi

því nú liggur mér á.




Gapaldur

 




Munnlaugarstafur

Þennan staf ristu menn á botn munnlaugar til þess að geta séð þann sem stolið hafði frá þeim.Stafirnir eru fleirri og voru margar og mismunandi sermoníur viðhafðar við notkun þeirra

 

 


Fengur

Óðinsheiti.

Fjölnir

Óðinsheiti.

Freyr

Óðinsheiti.

Þekkur

Óðinsheiti.

 


Póstkort
 Galdrastafir

Postcards
 Magic symbols


Hönnun (design by) Oddur Sigurðsson
 
deda@simnet.is

Sign My Guestbook Guestbook by GuestWorldView My Guestbook

free counter

eXTReMe Tracker