24. ágúst 2002

Um nokkurt skeið hafa flutningabílstjórarnir,
Vignir Siggeirsson á Ólafsfirði,
Sigurður A Magnússon á Akureyri
og fleiri átt þann draum,
að bílstjórar frá Flytjanda taki sig saman og
aki sínum flutningabílum hina gömlu þjóðleið um Kjöl.
Og nú hafa þeir ákveðið dagsetningu á ferðinni.
Farið verður laugardaginn 24. ágúst 2002.

Ástæður þess að þessi ferð verður farin, er:

· Þetta er jú styðsta leiðin á milli Norðurlands og Suðurlands.

· Heiðra minningu frumkvöðlana í flutningunum og reyna að
upplifa þeirra ferðamáta hér áður fyrr.

· Hittast og hafa gaman af.

Útbúa 30 mínútna videómynd um ferðina, sem dreifð verður meðal þátttakenda og
velunnara ferðarinnar.

Leið Flutningabílanna yfir Kjöl.
Ætlunin var að setja inn myndir á leiðinni, en þar sem tímaáætlun brenglaðist aðeins þá klikkaði það.
En nú eru myndir loksins komnar inn , og munu fleiri bætast við í vikunni.
Teknar voru á þriðja hundrað ljósmynda, og það tekur smá tíma að fínpússa þetta allt.

En ferðinn heppnaðist rosaalega vel og það voru ánægðir menn sem komu kl: 18:00 í höfuðstöðvar Flytjanda, og móttökurnar voru glæsilegar.

En nú eru komnar á annað tug mynda og munu bætast fleiri
í dag.

Og ekki gleyma gestabókinn

Og að sjálfsögðu kærar þakkir til styrktaraðila ferðar Flytjanda yfir Kjöl þann 24. ágúst 2002
 
Kraftur
Brimborg
Hekla
Ræsir
Vélaver
Flytjandi

Kjarnafæði
Staðarskáli
Stilling
Sæplast
Vagnar og þjónusta
Húsasmiðjan
Vörubíla og vinnuvélaverkstæði
Orka
Hótel cabin
Grillvagnin
Hrunamannahreppur
Ístöðin Dalvík

Og að sjálfsögðu NÝHERJI

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Gestabókinn
 
 
 
 
 
 
 
 
 


Kvennfatabúð
Drykkir og Blöndur
Fótbolti
Vogar
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 


 
 

  • Nokkrir punktar fyrir ökumenn:

  • Passa þarf sérstaklega upp á lestun á farmi, því brattar brekkur og holur er víða á leiðinni. Vegurinn er sæmilegur, en á stöku stað eru "þvottabretti".
  • Farþegar mega koma með.
  • Bílstjórar eru hvattir til að verða sér úti um sögur af okkar gömlu góðu bílstjórum frá því í gamla daga.
  • Veitt verða sérstök verðlaun fyrir besta bílstjóra klæðnaðinn.
  • Allir starfsmenn / bílstjórar úr Flytjanda flutninganetinu eru velkomnir í grillið og eru hvattir að taka með sér góða gesti, helst eldri flutningamenn eða starfsmenn stöðvanna.
  • Passa að vera til fyrirmyndar í umferðinni. Passa sérstaklega ef einhver vill komast fram úr.
  • Stoppa ekki til að taka myndir og þ.h, nema að það sé pláss fyrir allan flotann.
  • Gera eins og næsti bíll fyrir framan. Talstöðvar verða í fremsta og aftasta bíl. Öruggt er eftir að flotinn hefur farið fram hjá myndatökumanni, þarf að gefa sjens á að komast fram fyrir aftur. Hugsanlegt er því að fyrsti bíll stoppi á meðan og þar af leiðandi allir, en talstöð verður einnig í þessum bíl.
  • Taka með sundföt, ef við skreppum í bað á Hveravöllum.
  • GSM símasamband er ekkert, en ágætist samband á NMT kerfinu, en menn þurfa að nota símann í hófi, því fáar línur eru þangað inn eftir. Ekki teppa símann að óþörfu, ef einhver er að reyna að ná í okkur.