Alla
tíð hef ég haft mikinn áhuga
á ökutækjum og akstri. Þannig
hef ég mikla reynslu í að keyra
vörubíla, rútur, leigubíla
og bifhjól.
Auk
þess að kenna á bíl er ég
menntaður tónlistarkennari og hljóðfærasmiður.
Ég stundaði m.a. nám í Tónlistarskólanum
í Reykjavík og lauk þaðan
kennaraprófi árið 1985. Eftir að
hafa stundað kennslu fór ég til
Hamborgar og lærði hljóðfærasmíði
hjá hinu heimsþekkta fyrirtæki
Steinway & sons. Að námi loknu fór
ég til Berlínar og bættti við
mig þekkingu varðandi viðgerðir
á eldri hljóðfærum.