Í
nútíma samfélagi velja flestir
að hafa þau réttindi að aka bifreið.
Þessum réttindum fylgir jafnframt mikil
ábyrgð þar sem akstur er ekki hættulaus.
Allt of margir hafa lent í alvarlegum slysum
og árlega látast margir af völdum
umferðarslysa hérlendis. Mikilvægt
er því að taka ökunámið
alvarlega og búa sig sem best undir aksturinn.
Til þess að öðlast
þennan rétt þarf viðkomandi
að hafa staðist ökupróf og vera
orðinn 17 ára gamall.
Ökunám er tvískipt
Verklegt
nám
Flestir fara þá leið að byrja námið
eftir að hafa náð 16 ára aldri
með því að hefja formlegt nám
hjá ökukennara. Byrjað er á því
að taka verklega kennslu á bilinu 10-12 tíma.
Þegar viðkomandi hefur náð tilskilinni
færni er hægt að sækja um leyfi
til æfingaraksturs en jafnframt þarf að
hefja bóklega námið. Leiðbeinandi
nemandans þarf að hafa gild ökuréttindi,
vera að lágmarki 24 ára gamall og
hafa að baki 5 ára akstursreynslu. Ökukennari
aðstoðar við að ganga frá tilskildum
pappírum og leyfum. Eftir að æfingarakstri
er lokið eru teknir nokkrir verklegir kennslutímar
til viðbótar og lokaundirbúningur
þá hafinn fyrir verklega prófið.
Að lágmarki verður að ljúka
16 tíma verklegri kennslu.
Bóklegt nám
Bóklega náminu er skipt í tvo hluta.
Fyrri hlutinn varðar almenna þekkingu á
umferðarreglum, umferðarmerkjum og öðru
sem nauðsynlegt er að hafa þekkingu á
þegar æfingarakstur er hafinn. Seinni hlutinn
er síðan enn víðtækari fræðsla
og undirbúningur. Eftir bóklega námið
þarf að taka staðlað skriflegt ökupróf
sem tekið er hjá Frumherja.
Allar
frekari upplýsingar um námið eru
fúslega veittar.