Annar í jólum 2004
Hátíð hinnar heilögu fjölskyldu, Stykkishólmur
Aðeins með íhugun er hægt að skilja hina heilögu fjölskyldu. Ekki hafa margir hinna bestu málara reynt að mála myndir af hinni heilögu fjölskyldu. Undantekning frá því er El Greco, sem oftast er talinn spænskur að þjóðerni, en hann er „Grikki“, nákvæmlega eins og felst í heiti hans. Hann settist að á Spáni þegar Filip II var konungur. Ég hef séð að minnsta kosti þrjár myndir eftir hann af hinni heilögu fjölskyldu. Þeir eru vandaðar og bera vott um trúrækni en ekki tilfinningasemi. Hversu oft er það ekki sem hugleiðingar um hina heilögu fjölskyldu skortir þessa góðu nálgunarleið sem traustir ritskýrendur fara til að skilja guðspjallið?
Ástæðan er sú að margir byrja út frá umgjörðinni, eins venjuleg og hún er, og þegar þeir þurfa að beita ímyndunaraflinu, þá er hættan sú að þeir sjái ekki þá dýpt sem fyrirfannst í lífi þessarar fjölskyldu, sem var einstök. Hinni heilögu fjölskyldu hefur verið líkt við heilaga þrenningu. Það er sakir þess að hugur hvers og eins hinna þriggja meðlima fjölskyldunnar í garð hinna einkenndist af svo innilegum kærleika og svo miklum skilningi. Þau stóðu langt ofar venjulegu fjölskyldulífi á þeim tímum er fjölskyldulífið var í hávegum haft, enda byggði það á traustri hefð.
Nýlega las ég hugleiðingu um hina heilögu fjölskyldu eftir franskan karþúsamunk, en ég hef fylgst með skrifum hans um fjörutíu ára skeið. Hann var djúphugull maður en jafnframt siðfágaður. Listamenn og heimspekingar stóðu í sambandi við hann. Hann veitti þeim ómetanlegt ríkidæmi með íhugunum sínum. Hvers vegna skyldi ég því standa í vegi fyrir ykkur og hindra að hann tali beint til ykkar? Ég veit að þetta efni verður að þýða, fyrst á ensku af mér, og síðan einhver annar á íslensku. Það sem hann samdi við venjubundna íhugun sína má heita fágaðir gimsteinar í hugsun og er þó jafnframt algjörlega einfalt og heiðarlegt. Í dag dreg ég mig í hlé að baki orðum hans og læt hann sjálfan tala til ykkar! Hugleiðingin ber heitið „Vinna og íhugun“, og fer öll hér á eftir.
„Erfiðisvinnan – sem ekki er metin að verðleikum – hefur verið hafin af Jesú, syni Guðs, til slíkrar virðingar að henni hefur nánast verið jafnað við sakramenti. Drottinn vor er hinn fullkomni maður. Hann er það sem Guð vildi í upphafi; hann er hinn fullkomni maður sem allir verða að líkja eftir og hin heilaga fjölskylda frá Nasaret er fordæmið, fyrirmyndin. Guð elskar hana meira en aðra; hann elskar aðra ef þeir samlíkjast honum. En umgjörð þeirra er vinnan.
Þið segið á móti: þetta snýst um sálina, dyggðirnar, hinn innri mann og hina andlegu fegurð; og satt er það, að slíkt snertir ekki umgerðina. En hitt er jafnframt satt að umgerðin hefur ekki valdið neinum skaða. Heilagur Jósef og Drottinn vor voru saman á verkstæðinu og María mey í fátæklegu eldhúsinu. Ekkert kom í veg fyrir að þau lifðu andlegu sálarlífi á æðsta hugsanlega stigi.
En fleira kemur til: sá greinarmunur sem við höfum gert á ytri umgjörð og innra lífi er meiri tilbúningur en menn halda. Ég var að enda við að segja við ykkur: Jesús er fyrirmyndin, hinn fullkomni maður, hið fyrsta sem Guð vildi; og hin heilaga fjölskylda er þar fyrir neðan endursköpun himinsins og nefnist „þrenningin á jörðu“. En líf þeirra leið við erfiðisvinnu, þau stunduðu hana ekki bara suma daga lífs síns eða einhvern lítinn hluta hvers dags, heldur fyllti hún daga þeirra og tilveru.
Það var því vilji Guðs að persónurnar þrjár sem eru hátindur sköpunarverks hans skyldu erfiða allt sitt líf; hann kom á nánum og stöðugum tengslum milli þeirra og vinnunnar. Því er erfiðisvinnan ekki aðeins nokkuð sem er ekki í andstöðu við eininguna við Guð, heldur hlýtur að styrkja hana. Því Guð vill aðeins þetta: sameina okkur sjálfum sér; hann gefur okkur lífið til að við komum á þessum tengslum, hann skapar þær aðstæður sem nægja til þess að svo geti orðið. Við getum og verðum að hafa þetta samband við hann hvað þetta varðar. Hann sjálfur veit hvað er okkur fyrir bestu.
En hvers vegna? [Hérna verðum við að segja að] ástæður Guðs koma okkur ekki við: enginn skyldi fara of djúpt í saumana á þeim, en [við verðum] að trúa því auðmjúklega að allt sem hann gerir sé gott, og allt sem hann vill sé gott; svo einfalt er það og öruggt.“ Amen.