Hróarskelda 25.6.2005 - 05.07.2005

Hér á eftir kemur frásögn um ferð mína til Danmerkur á tilteknum dögum. Sökum þess að svona saga sem ég skrifaði fyrir tveimur árum vann mér ferð á Hróarskeldu í ár, þá er bara vitfyrra að skrifa ekki aðra frásögn. Ég fór að vísu mjög ítarlega í allt tengt Hróarskeldu síðast, þannig nú er bara að vona ég hafi eitthvað nýtt og ferskt efni til þess að tala um í þetta sinn. Mér til stuðnings mun ég nota margar myndir, því eina (jú aðeins eina) kvörtunin sem ég fékk síðast var að það var ekki nógu mikið af myndum. Ég verð að vísu að viðurkenna að ég fékk mikið af þessum myndum lánaðar frá félögum mínum því einnota myndavélarnar sem ég notaði voru álíka áræðinlegar og margnota smokkur.

Frásögn þessi er dregin af minningum mínum og glósum sem ég páraði í litla stílabók, því minnið nær jú aðeins að halda um viss marga hluti eftir meðferðina sem það fær á hátíðinni. Ég kenni sólinni um, því bjór er óumflýjanlega og ómótstæðilega besti kælvökvinn á heilann.

Vill ég byrja á að kynna hetjurnar sem voru í ferðinni með mér sem dúkka upp hér og þar í umsögnum mínum (nema þegar óskað var eftir nafnleynd fyrir eitthvað bull). Fríðari hópur fólks finnst varla á netinu.

Þeir sem komu saman
Ólafur (Óli)
Gauti (Gauti)
Ragnar (Raggi (Ég))
Róbert (Robbi)
Sæþór (Sæi)

 

Restin af liðinu
(í stafrófstöð)
Ernir
Gaui
Geiri
Gunnar Steinn
Gunni Palli
Hersteinn
Hjalti
Hrefna
Óli (Indy)
Ingi
Ragnheiður
Solla
Steinunn
Stína
Svenni
Þrándur

Svo eru fleiri að vísu, en ég annaðhvort á ég ekki myndir af þeim, man ekki nöfnin eða þessar manneskjur voru ekkert markverðar.

P.S. Það gæti vel verið að Solla heitir Steinunn og öfugt (50% líkur). Þetta eru tvíburar for crying out loud. Hvernig á ég að þekkja þetta?

og svo áfram með söguna...