Einar
Már Guðmundsson er fæddur í Reykjavík
18. september 1954. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Tjörnina 1975
og B.A. prófi í bókmenntum og sagnfræði
frá Háskóla Íslands 1979. Hann
bjó í Kaupmannahöfn í sex ár
og stundaði framhaldsnám í bókmenntafræði
við Kaupmannahafnarháskóla.
Fyrsta
bók Einars Más, ljóðabókin
Er nokkur í kórónafötum hér
inni, kom út árið 1980. Árið
1985 fékk hann fyrstu verðlaun í bókmenntasamkeppni
Almenna bókafélagsins fyrir skáldsöguna
Riddarar hringstigans. Síðan hefur Einar Már
sent frá sér fjölda verka og hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf
sín. Bækur hans hafa verið þýddar
á fjölmörg tungumál og skáldsagan
Englar alheimsins fékk Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1995. Kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar sem byggð er á
sögunni var frumsýnd í Reykjavík
á nýjársdag árið 2000.
Einar
Már býr í Reykjavík, er kvæntur
og á fimm börn.