-

sunnudagur, júlí 29

 
Jæja, nýjasta áhugamál Elsu eru Makrónur ;)
Eftir að hafa séð að í Frakklandi( http://www.laduree.fr er víst til í London líka)getur maður fengið makrónur í öllum litum, með allsskonar bragði. Elsan hefur samt ekki smakkað þær enn. En þar sem förinni er heitið þangað meðal annars í september ætlar elsan á prófa þær þar.
Gunninn er orðin pínu hræddur um að hann verði feitur þegar hann horfir á Elsu skoða allt hvað er í boði að borða í öllum borgum.
Eftir lestur um að það væri svakamikið mál að búa til flottar Makrónur ákvað Elsan að prófa og hér eru myndir af afrakstrinum:




En á http://www.laduree.fr er hægt að sjá hvernig þær eiga að líta út og ég er bara þokkalega sátt við niðurstöðuna, æfingin skapar jú meistarann, svo það er bara að prófa aftur. Þessar makrónur eru sem sagt búnar til úr flórsykri, möndlumjöli og eggjahvítum. Fullkomnar Makrónur skilst mér að eigi að hafa svona tær neðst og engar sprungur. Mínar hafa nú smá tær og þær brúnu engar sprungur, bleiku hafa hins vegar nokkrar sprungur en bragðast ekkert verr fyrir það ;) Hér eru líkar flottar Makrónur sem ein hefur verið að prufa sig áfram með.

Archives

janúar 2004   febrúar 2004   mars 2004   apríl 2004   maí 2004   júní 2004   júlí 2004   ágúst 2004   september 2004   október 2004   nóvember 2004   desember 2004   janúar 2005   febrúar 2005   mars 2005   apríl 2005   maí 2005   júní 2005   júlí 2005   ágúst 2005   september 2005   október 2005   nóvember 2005   desember 2005   janúar 2006   febrúar 2006   mars 2006   apríl 2006   maí 2006   júní 2006   júlí 2006   ágúst 2006   september 2006   október 2006   nóvember 2006   desember 2006   febrúar 2007   mars 2007   apríl 2007   maí 2007   júlí 2007  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?